Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNl2005 Bílar DV Kappakstur glaumgosa endar í tárum Um helgina var haldin hin árlega Player Run-keppni í Bandaríkjunum. Keppnin snýst um að keyra milli borg- anna Seattíe, Portíand, Ashland, San Francisco, Los Ang- eles og San Diego og ná í pókerspil frá hverri borg. Keppnin endar síðan í Las Vegas þar sem öku- þórunum og glaumgosunum er launað með þyrluferðum og kokkteilboðum um borð í lúxussnekkjum. Keppnin í ár var sérstaklega litrík þar sem um fimmtíu ökumenn voru handteknir í Washington-fylki fyrir of hraðan akstur, sumir þeirra á lúxusbifreiðum á borð við Porsche, Ferrari og Lam- borghini sem útbúnar voru með lögreglu- skönnum og vídeóeftirlitsbúnaði. Aðstandendur keppninn- ar segjast ekki hvetja til hraðaksturs og leggja áherslu á að þetta sé keppni en ekki kappakst- ur. DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, Nýr Suzuki Switt Hann levnlr í #p hnssl! Bílasérfæðinqur DV Fæstir veita því athygli að elstu bílar í umferðinni eru japanskir smábílar. Þetta eru bílar sem um 1990 voru á meðal þeirra ódýrustu á markaðnum. Fjöldi þeirra er at- hyglisverður þegar þess er gætt að jafn gamlir evrópskir smábílar eru löngu horfnir. Á meðal öldunganna ber mest á Daihatsu Charade og Suzuki' Swift en báðir eru með þriggja sflindra eins lítra vélar og eru enn þann dag í dag meö spar- neytnustu bílum. Sé þessi mikla ending ekki staðfesting á vandaöri smíði og styrk bfls þá veit ég ekki hvernig gæöi verða metin. fí Engar sviptingar en... Þriggja sflindra vél- in sem lengst var í Suzuki Swift og var hönnuð í upphafi 8. áratugs fyrri aldar, er fyrir löngu orðin að þjóðsögu - hún hefur, í orðsins fyllstu merk- ingu, reynst ódrepandi og hafi einhver haldið að dagar hennar væru taldir fer sá villur vega - hún er enn í fullu fjöri, í uppfærðri útgáfu, t.d. í Daewoo Matiz. Swift hefur ekki verið réttnefni því engar sviptingar hafa fylgt inn- gjöfum í Suzuki Swift; þetta var aldrei kraftmikill bfll enda ætlað það hlutverk að vera sparneytinn og níðsterkur snattari og því ef til vill ekkert sérstaklega spennandi, salan hefur ekki verið beinlínis ríf- andi enda verið hlutfallslega dýrari en keppinautar frá Kóreu. Jafnvel risavaxnir... ' í september síðastíiðnum kom á markaðinn nýr Swift sem er ólflc- ur fyrirrennaranum að öðru leyti en því að vera lítill utanum sig en furðulega rúmgóður að innan. Sá nýi er þriggja eða fimm dyra og í laginu eins og fótíagaskór með hjólin á bláhornunum - útíit sem er afleiðing hönnunar, en ekki öf- .Vgt- Árangurinn er athyglisverður: Leitun er að smábfl á markaðnum með jafh langa stillifærslu á fram- stólum (24 sm). Einhver myndi telja það minniháttar mál. Það get- ur þó skipt sköpum því fyrir bragð- ið geta jafnvel stærstu rumar og þeir leggjalengstu notið þeirrar hagkvæmni sem fólgin er í spar- neytnum og liprum smábfl og látið fara sæmilega um sig undir stýri (hallastillt). Innrétting eins og í BMW Á meðal atriða sem ráða miklu um hve þægilegur bfll er í borgar- umferð er útsýn ökumanns. Góð útsýn eykur öryggistilfinningu f akstri og góð útsýn afturfýrir og til Ailiðanna auðveldar manni að leggja í þröng stæði sem ökumönn- um annarra bfla dytti ekki í hug að Engin dós Öfugt við það sem einhver kynni að álykta þá er ekkert dósar- hljóð í þessum Suzuki, bfllinn er vel hljóðeinangraður jafnvel Flottur Innréttingin myndisóma sérvell miklu dýrari bll. , ■kíí;'; Nýr og gjörbreytt- ur Suzuki Swift Leit un aðsmdbllmeð meira innra rými. reyna við. í þessum nýja Swift er útsýn ökumanns mjög góð, ekki síst vegna þess að fremur hátt er upp á sessur stólanna - maður sit- ur hátt. Annað atriði sem skiptir máli varðandi þægindi er að sess- urnar í nýja Swift eru dýpri (lengri) en gengur og gerist í smábflum sem gerir stólana þægilegri - sér- staklega í lengri ferðum. Meira að segja aftursætíð er þægilegt sem er ekki algengt í þessari stærð af bfl. Farangursrýmið er 213 lítrar og flutningsrými með aftursætið fellt er 562 lftrar. Innréttingin þolir samanburð við miklu dýrari bfla. Sparneytinn Flérlendis er Swift einungis fá- anlegur með 1,5 lítra 16 ventía vél, beinskiptur eða sjálfskiptur. Vélin er með breytilegum ventíatíma og fjölinnspraumn. Þegar haft er í huga að bfllinn vegur rúm 1000 kg og vélin er 102 hö (við 6000 sm) er vélaraflið ekkert til að kvarta undan (hámarkstog er 133 Nm við 4100 sm). Snerpa er um 10 sek. 0-100 km/klst. Kemst 100 km á fimm lítrum Sparneytni beinskipta bílsins er athyglisverð með tilliti til vélar- aflsins. í akstri á þjóðvegi má kom- ast 100 km á 5 lítrum en í blönduð- um akstri er meðaleyðslan um 6,5 lítrar. Góð útsýn eykur öryggistilfinn- ingu í akstrí og góð útsýn aft- urfyrír og til hliðanna auð- veldar manni að leggja í þröng stæði sem öku- mönnum annarra bíla dytti ekki í hug að reyna við. þótt fjöðrunin sé í stinnara lagi. Drifið er á framhjólunum og að framan er hefðbundin fjöðrun. Að aftan er hins vegar nýjasta tækni og vísindi frá Suzuki - eins konar blanda af sjálfstæðum hjólörmum og stífri hásingu - hönnun sem ger- ir bflinn stöðugan í akstri og eykur burðargetu - en hún er 450-485 kg. Verð Susuki Swift kostar 1500-1600 þús. kr. og er ýmis þægindabúnað- ur innifalinn í verðinu, m.a. rafhit- aðir stólar og öryggisbúnaður á borð við ABS með sjálfvirkri jöfn- un. Endursöluverð skiptir miklu máli við val á nýjum bfl. Sam- kvæmt gagnasafni Bflgreinasam- bandsins er endursöluverð Suzuki Swift hátt í þessum flokki bfla t.d. 46% hærra en á sambærilega bún- um Daewoo Lanos. Leó M. Jónsson véla tækniíræöingui, leoenam.com. Hróbjartur Örn Guðmundsson er veikur fyrir Sunbeam-forn- bílum og hefur hann gert upp tvo slíka í frítíma sínum. Hróbjartur Öm Guðmundsson, kennari í MR, hefúr verið að gera upp gamla evrópska sportbfla síðustu ár. Hann hefur átt í ævilöngu ástarsam- bandi við Sunbeam-bfla, allt frá því hann fékk fýrsta bflinn. „Fyrsti bfllinn sem ég átti var Sunbeam og í kjölfarið keypti ég þennan græna [Sunbeam Álpine ‘64 blæjubíll] og gerði hann upp, þegar fyrsti bfllinn var eiginlega búinn að vera. Eftir það bættist þessi grái [Sunbeam Alpine ‘70] við. Ég fékk hann hálfpartinn gefins þar sem eigandinn vildi að hann færi í góðar hendur. Fyrsta bflinn erfði ég frá pabba sem átti hann frá 1970. Þannig að það hafa verið Sunbeam-bflar í mínu lífi frá þriggja ára aldri.“ Bíllinn stóð í hlöðu í 20 ár Hróbjartur á þessa tvo Sunbeam- bfla og standa þeir fyrir framan húsið á Grandaveginum, standa vörð um innkeyrsluna í bflskúrinn. Bflamir tveir vom í misjöfnu ástandi þegar Hróbjartur tók við þeim. „Þessi grái var búinn að standa inni í hlöðu í 20 ár. Það var engin vél í honum en svo fékk ég vélina gefins. Svo púslaði ég honum öllum saman og ryðbætti hann. Ég prófaði að sprauta þennan gráa sjálfur úti á fflaði og það tókst svona ágætlega. En hinn bflinn keyptí ég af náunga í Fornbflaklúbbnum á 100 þúsund krónur. Sá var orðinn frekar illa far- inn og ég tók hann af götunni. Ég var um þtjú ár að dunda við hann og lét svo sprauta hann.“ Að dunda sér yfir sumarmán- uðina Hróbjartur segir að það að gera upp bfla sé meira áhugamál en leit að peningagróða. „Ég hef þannig séð ekkert grætt á þessum bílum. Maður fær ekki vinnuna borgaða. Það er örugglega hægt að fá svona bíl á 700 þúsund kall úti í Bretlandi en svo verður að bæta öðru eins við þegar hann er kominn hingað. Minsk-mótorhjól eiga tryggan aðdáendahóp Farartæki, vinur, Gjaman myndast aðdáenda- hópur í kringum ákveðnar tegund- ir eða týpur af mótorhjólum. Oft vill það verða að fyrsta hjólið sem mótorhjólakappar eignast verður jafnframt að ævilangri þráhyggju, hvort sem það er ákveðin árgerð eða týpa af Harley- Davidson eða gamalt Norton- eða Kawasaki- torfæruhjól. Það er eitt hjól sem á einn tryggasta aðdáendahóp í heiminum en er jafnframt næst- um óþekkt hér á landi. Það er Talíbanar notuðu Minsk f baráttu sinni við Rússa og Bandaríkjamenn. mótorhjól sem kallast Minsk. Minsk-hjólin koma frá Hvíta- Rússlandi, eins og nafnið gefur tíl

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.