Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2005, Blaðsíða 27
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚNÍ2005 27 ý Gandhi barðist í Suður-Afríku Á þessum degi árið 1893 neitaði Mohandas Ghandi, sem þá starfaði sem lögfræðingur í Suður-Afríku, í fyrsta sinn að fara eftir reglum um kynþáttaaðskilnað í landinu. Þetta átti eftir að hafa gríðarlega mikil- væg áhrif í heimalandi hans, Ind- landi, og er einnig af mörgum tal- inn sá atburður sem markaði upp- haf margra áratuga friðsamrar bar- áttu hans fyrir borgaralegum rétt- indum og sjálfstæði Indlands. Eftir að hafa numið lögfræði á Englandi settist Ghandi að í Suður- Afríku og hóf störf í Natal. Þar urðu hann og fjölmargir aðrir Indverjar sem störfuðu þar fyrir barðinu á gríðarlegu kynþáttahatri. Ghandi lýsti því eitt sinn þannig að hann hefði upplifað það sem hann kall- aði „stund sannleikans" 7. júní 1893. Þá var honum var vísað frá fyrsta farrými lestar sem hann ferð- aðist með og hent frá borði. Þetta var dropinn sem fýllti mælinn hjá Ghandi og allar götur síðan barðist hann gegn óréttlæti og fyrir mann- réttindum. Eftir margra ára baráttu fýrir réttindum Indverja í Suður- Afríku séri hann loks heim til Ind- í dag árið 1958 fæddist tónlistarmaðurinn Prince lands árið 1914. Þar vann hann að sjálfstæði landsins þar til Indland hlaut loks sjálfstæði árið 1947. Ári síðar, þegar hann vann að lausn á _______deilu á milli hindúa og múslima í landinu, var hann skotinn til bana af öfgafullum hindúa andvígum' umburðarlyndi Ghandis í garð múslima. Mohandas Ghandi var ávallt nefndur Ma- hatma eða „hin mikla sál“. Mahatma Ghandi Upplifði stund sann- leikans og hóffrið- samlega baráttu sfna. Ur bloggheimum „Hver er eiginlega munurinn á skoðun (doxa) og þekkingu (ep- isteme)? Gæti verið að þessi spurning sé af sömu tegund og að spyrja epli hvað það dreymdi slðustu nótt? Ætli það megi ekki færa einhver rök fyrirþvl aösvoséekki. Geturþá verið að spurningin sé hætt að bera ávöxt? Kristinn Már Ársælsson. httpMamor- fati.blogspot.com/" Draumórar... „Ég er með mjög virkt Imyndunarafl. Mér þykir gott að loka augunum.þvíþá get ég séð sjálfan mig sem mikilvæg- asta mann I heimi. Ég erfallegastur, bestur, mestur og frá- bærastur ogá 50 eigin- konur, sem eru einmitt 50 fallegustu kon- ur I heimi! Já, það er gott að láta sig dreyma. Þess vegna líkar mér illa fólk sem að viröist gera sitt besta til að eyðileggja draumóra mfna..“ Kristján Atli Ragnarsson. http://www.eoe.is/liverpool/ R-listinn „igærtókégþáttí tilraun tilaðráðaR- listasamstarfið af dögum, ekki bárum viðisigur úr býtum I þeirrl báráttu enda voru rúmlega þrír andstæðingar á hvern okkar uppreisnar- manna. Virðist sjúklegur íhaldsótti og minnimáttarkennd helst há mönnum. Þrátt fyrir að orustan hafi tapast er ekki vfst að strlðið sé tapað, við verðum að haldalvonina." Sverrir Aðalsteinn. http://www.komm- unan.is/sverrir/ Séö á Einkamál.is „Fjárhagslega sjálf- stæður ungur maður leitar eftir lauslátri vændiskonu.“ Ekki ernú öll vitleys- an eins.. Brynjar Hermanns- son. http://www.mglu- bulli.blogspot.com/ Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Meðal-Jón og Meðal-Gunna Einailngvi Magnússon skriíar: Hugsandi kona lét þau orð falla í Fréttablaðinu sunnudaginn 29. maí að samfélagið byggi til öryrkja. Und- anfarin ár hefði orðið umtalsverð aukning í framleiðslunni. Hún sagði einnig að fmynd velgengninnar ætti stóran hlut að máli. Menn h'ta á velgengni og frama með einhvers konar Hollywood- augum. Ef konur eru ekki Barbie- dúkkuvaxnar eins og ameríska ímyndin segir til mn leggst stór hluti þeirra í þunglyndi, sjálfsmorðshug- leiðingar eða lystarstol. Hollywood- ímynd karlmanna hefur einnig leik- ið margan íslendinginn grátt með töffaraímyndum sem leitt hafa til niðurbrotins sjálfstrausts hjá ís- lenskum karlmönnum sem uppfylla ekki kröfur Hollywood-tískunnar og íslenskra kvenna á hinum fullkomna töff karlmanni. Lesendur Fólk er ofurselt hættulegri forrit- im samfélagsins. Sjónvarp, útvarp, dagblöð og tímarit forrita nútíma- manneskjur án afláts með hégóm- legum og mannskemmandi tísku- straumum. Fólk er orðið að við- undri, hugsun þess og lífsstíll stór- hættulegur líkamlegri og andlegri heilsu vegna þess að búið er að skemma eðlilega hugsun með af- káralegum hugmyndum um hinn fullkomna nútímamann. Auðvitað er það maður, sem á mikið af pen- ingum og fasteignum og klæðir sig eftir nýjustu tísku. Þannig er einnig búið að skemma íslenskar konur því þær telja það fyrir neðan virðingu sína að hta við öðruvísi mönnum en að ofan getur. Þar sem meir en helmingur fólks uppfyllir ekki þessar kröfur verður stór hluti þess imdir- málsfólks sem að lokum gefst upp og lifir í veröld vansældar og sjúkra- húsheimi sem endar í stofrianaþræl- dómi fýrr en seinna. Ranghugmyndir þjóðfélagsins eru að ganga af hálfri þjóðinni lif- andi dauðri. Meðal-Jón og meðal- Hallgrímur Kúld veltirfyrirsér misskiptingunni i samfélaginu. Tvær konur „Það sem brennur á mér þessa vikuna, og brann á mér alla síðustu viku einnig, eru tvær konur. Það er annars vegar konan í ís- landsbanka, konan sem er að selja hlut sinn í bankanum fyrir 8 milj- arða, en það eru 8.000 miljónir sem við erum að tala um. Maður spyr Gunna eru á geðlyfjum til að remb- ast við að ná upp réttum dampi í lífshlaupi til lífsgæða þeirra sem samfélagið telur velgengnisleg. Auð- vitað eftir tískustefnu amerískra eða evrópskra auðkýfinga. Það er eins og það sé orðið ljótt að vera meðalmaður. Hann þarf ekki að vera á gleðipillum vegna vansældar. Hann getur hfað ham- ingjusamur. Meðalfólk þarf að skilja að það lifir í sjúku samfélagi sem er fuht af ranghugmyndum um lífsstíl og tilgang mannlífsins, því hamingj- an er innra með manninum og velt- ur ekki á fáránlegum tískustraumum eða veraldlegum eignum. Neyslu- samfélagið er um áratugaskeið búið að forrita fólk og gera að ofurneyt- endum. Tilgangur mannlífsins er annar. Það þarf að forrita fólk upp á nýtt svo það megi finna hamingju hversdagslífsins og njóta hfsins and- lega og líkamlega. Sjúkt þjóðfélag getur ekki séð um það endurreisnar- starf. Ef til vill gerist það eingöngu í gegnum einstaklingslega opinberun sem er laus við allar samfélagslegar sýkingar og mannskemmandi rang- hugmyndir Hohywood-tískunnar. sig bara hvernig þetta sé hægt, við erurn að tala um 8.000 miljónir. Hin konan sem brennur á mér vinnur hjá íslandspósti en hún er við vinnu níu tíma á dag og hefur 120 þúsund á mánuði fyrir það. í vinnunni þarf hún að dreifa 120 kílóum af pósti á mánuði, það er að segja hún fær 1.000 krónur fýrir hvert kíló af pósti í laun á mánuði. Og í þessu tilfelli spyr ég sjálfan mig einnig, hvernig er þetta hægt? Hvernig getur óþekkt kona *' eignast allar þessar miljónir í ein- um banka? Hvaðan fékk hún pen- ingana upphaflega til að kaupa í bankanum? Á móti getur maöur líka spurt sig hvemig hægt sé að bjóða hinni konunni upp á að lifa í sama sam- félagi með sín lúsarlaun. Hvemig velferöarsamfélag er það sem við búum í þar sem þessi greinilega stéttaskipting kemur ahtaf betur og betur í ljós? Ég bara spyr, ég get ekki svarað! ; Ú’jJ Mikilvægt að röddin í símanum hafi andlit Anna R. Ingólfsdóttir þýðir sakamálasögur Lisu Marklund og stendur sjálf að baki bókafor- laginu sem gefur bækumar út. Bækur Lisu Marklund hafa náð talsverðum vinsældum hér- lendis og em orðnar sex talsins á íslensku. Anna er maður dags- ins í dag og segir okkur frá þýð- ingarvinnu í sumarbústaðnum og baráttunni á bókamarkaðn- um. „Rétt í þessu er ég að ganga frá bókinni Friðland sem er framhald bókarinnar Huldu- slóð, og em þær báðar byggðar á sannri reynslu konu sem varð fýrir miklu heimhisofbeldi í Sví- þjóð og sætti stanslausum of- sóknum. Hún braut blað í sögu Bandaríkjanna með því að verða fyrsta evrópska konan sem fékk þar hæh á þessum for- sendum. Ég vinn mikið að þýðingum í sumarbústaðnum mínum í Munaðamesi. Umhverfið þar er laust við erhinn sem fylgir því að reka bókaforlag og má því segja að vinnan mín sé algjörlega tvískipt. Annars vegar er það þýðingarvinnan sem er í eðh sínu róleg og krefst einbeitingar og yfirlegu. Hins vegar em það útgáfumálin og markaðssem- ingin. Það er að mörgu að hyggja, allt frá bókarkápu og prentun th auglýsinga og dreif- ingar. Það er líka talsverð sam- keppni í bókaútgáfunni og það þarf ahtaf að passa upp á að bækurnar séu sýnhegar. Ég sé um aht sjálf í þessu samhengi, vinn lagerstörfin, passa upp á bókhaldið og reyni að auglýsa eftir megni. Mér hefur þótt það athyghs- vert þegar ég skoða sölutölur og Ég vinn mikið að þýðingum í sumar- bústaðnum mínum íMunaðarnesi. Um- hverfið þar er laust við erilinn sem fylgir því að reka bókaforlag. pantanir að svo virðist sem meira sé keypt af bókunum á Vestfjörðum og Norðurlandi, miðað við íbúafjölda, en ann- ars staðar. Það er erfitt að segja hvað veldur, en það getur verið að það séu sterkari lestrarhefðir í ákveðnum landshlutiun. Bókin sem ég er að reka smiðshöggið á núna kemur út snemma í haust. Það sem tekur við þegar ég er búin að koma henni í prentun er að keyra um landið og heimsækja söluaðh- ana sem ég tala venjulega að- eins við í gegnum símann. Það er mildlvægt að byggja upp tengsl við fólkið og þekkja and- litin sem tilheyra röddinni í símanum." Anna R. Ingólfsdóttir er maður dagsins. Lisu Marklund ur sænsku. Hun rekur einnig bókaforlagið ARI og se um öll útgáfumálin sjálf. Sterk glaepasagnahefð er I SviÞóðogvuð ast margar sagnanna höfða til fslenskra lesenda. BækurUsu Mark- lund virðast tilheyra þessari hefð og ná þær athygl) landans._____

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.