Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Side 8
8 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ2005
Fréttir DV
Olísrán
óupplýsf
Rán sem framið var í
Olís í Hamraborg þann 13.
júní er enn óupplýst. Lög-
reglan í Kópavogi fer með
rannsókn málsins og segir
hvorki af eða á um hvort
einhverjir liggi undir grun
vegna málsins, eða hvort
nokkur hafi verið handtek-
inn. Hún vill ekki gefa upp
hvort nýjar upplýsingar séu
fyrir hendi sem leitt geti til
vísbendinga. Ránið lýsti sér
þannig að maður labbaði
inn á stöðina vopnaður
skrúfjárni. Hann hrifsaði
peninga úr peningakassa
og hvarf sjónum sjónar-
votta.
Innbrotíbíl
í Sandgerði
Víkurfréttir greindu
frá því að í kringum 17.
júní hefði verið brodst
inn í Pontiac Grand Am-
bifreið í Sandgerði.
Skemmdir metnar á um
hálfa milljón voru unnar
á bílnum og var búnaði
uppá um 300 þúsund
kró>. ^tclið úr bílnum.
Meo. -nnars var tekinn
skjár o, islaspilari
ásam> .u hljóðkerfi
bflsins sem var í veglegri
kantinum. Lögreglan
hefur hafið rannsókn á
málinu og þákkar allar
upplýsingar sem gætu
varpað skýrara ljósi á
málið.
Sjálfsvígum
karla fækkar
Sjálfsvíg karla yngri en
24 ára fækkaði um meira
en helming á árunum
2002-2004 borið saman við
árin 1999-2001. Að meðal-
tah voru 13,8 sjálfsvíg á
hverja hundrað þúsund
íbúa í þessum aldurshópi á
síðustu þremur árum. Þau
voru hins vegar að meðal-
tali 29,6 á fyrra tímabilinu.
Ekki hefur verið sambæri-
leg þróun í tíðni sjálfsvíga
hjá konum, en hún hefur
haldist nánast óbreytt síð-
ustu áratugi og er mun
lægri en hjá körlum.
Lögfræðingurinn Einar Páll Tamimi er ekki vinsælasti maðurinn í Brúnási í Garðabæ.
Tilvonandi nágrannar hans hafa farið i mál og vilja að hús hans verði rifið. Hatrammar
nágrannadeilur hafa blossað upp í þessu friðsæla hverfi og mætast nú stálin stinn.
Nágrannar lögfræðings
vilia hann burt
„Við ætluðum að byggja garðskála
og setja heitan pott þarna en það er
ekki hægt lengur því sólin sést ekki
þarna fyrr en upp úr hádegi,"
ið hafi verið leyft. f raun má segja
að bæjaryfirvöld skammist sín
fyrir þetta mál,“ segir Bjöm Rún-
ar, en hann hefur verið í forsvari
fyrir þá sem standa í málaferlum
við Einar.
Björn segir bæjaryfirvöld hafa
rangtúlkað deiliskipulagið varð-
andi leyfðan nýtingarrétt á lóð-
um. „Nýtingarhlutfallið var vissu-
lega hækkað en það á bara ekki
við í þessu tilfelli, þetta hús upp-
fyllir ekki þau skilyrði sem til þarf,"
segir Björn sem er einnig ósáttur við
malarpúðann og segir hann hafa
skemmt töluvert af gróðri í sínum
garði.
Ótrúleg heift
ÖIl spjót beinast því að Einari
Páli Tamimi, nýskipuðum lögfræð-
ingi íslandsbanka, sem stendur nú
sjálfur í málaferlum.
„Mér finnst ótrúleg heift í mál-
inu. Ég bý í borg og reikna með að
fólk búi í kringum mig,“ segir Einar
og furðar sig á að málið hafi aldrei
verið rætt við hann persónulega.
„Enginn hefur haft samband við
mig. Þetta mál hefur bara farið í
gegnum embættismenn og því eru
samskiptin stirð.“
Kjartan@dv.is
Hús Einars PálsTamimi
Hér sést hvernig mölin renn-
urígarð nágranna hans.
„Hús Einars Páls varpar töluverðum skugga á mitt hús og hefur
það dregið stórlega úr verðmæti eignar minnar,“ segir Björn
Rúnar Lúðvíksson, tilvonandi nágranni Einars Páls Tamimi lög-
fræðings. fbúar í grennd við hús Einars eru æfir vegna fram-
kvæmda á lóð hans sem þeir segja ólöglegar.
„Við ætluðum að byggja garð-
skála og setja heitan pott þarna en
það er ekki hægt lengur því sólin
sést ekki þarna fyrr en upp úr há-
degi,“ segir Björn R'nar og ítrekar
að skuggavarpið
af húsi
Einars hafi hindrað framkvæmdir á
lóð sinni. Nágrannar Einars Páls
Tamimi fara fram á að húsið verði
rifið en því er lögffæðingurinn ekki
sammála. Hann hefur einnig stuðn-
ing Guðjóns Friðrikssonar, bæjarrit-
ara í Garðabæ, sem segir of mikil
verðmæti vera falin í húsinu til
þess að það sé hægt.
Grjót í beði nágranna
Blaðamaður DV gerði
sér ferð í Garðabæ og
ræddi við tilvonandi
nágranna Einars Páls.
Flestir voru sam-
mála um að þarna
væri Einar að
sýna samborg-
urum sínum
óvirðingu og
vönduðu honum ekki
kveðjurnar.
Eittafþvísemferí
taugarnar á nágrönn-
unum er svokallaður
malarpúði við húsið sem er
gerður til að hækka það
upp. Súsanna H. Davíðsdótt-
ir er ein þeirra sem stendur í
málaferlum við Einar ásamt
eiginmanni sínum
Skafta
Gunn-
ars-
sym
Einar Páll Tamimi
lögfræðingur
Skilur ekki heift
nágranna sinna.
„Púðinn er í fyrsta lagi ekki lög-
legur, þar sem hann hallar of mikið,
forsenda þess að Einar Páll fengi að
nota púðann var samþykki okkar,
sem aldrei fékkst. Einnig erum við
orðin þreytt á því að mölin rennur
inn í beðið okkar og er bara látin
liggja þar. Einar Páll hefur einu sinni
látið taka grjót úr garðinum okkar
sem er bara alls ekki nóg,“ segir
Skafti.
Bæjaryfirvöld skammast sín
Annar nágranni, Björn Rúnar
Lúðvíksson, segir að bæjaryfirvöld
skammist sín fyrir að hafa gefið Ein-
ari grænt ljós á þessa byggingu.
„Meira að segja bæjarstjórinn
hefur furðað sig á þessari byggingu
og aðalhönnuður svæðisins skilur
hvorki upp né niður í því að hús-
Rannsókn á barnaklámhring hæggeng
Sjö barnaklámstölvur eftir
„Við erum rétt að byrja á
þessu og því er ekkert hægt
að staðfesta ennþá,“ segir
Hörður Jóhannesson yfir-
lögregluþjónn hjá Lögregl-
unni í Reykjavfk um rann-
sókn á máli manns sem tal-
inn er tilheyra alþjóðlegum
barnaklámhring. Lögreglan í
Reykjavík tók þátt í átaki
Evrópulögreglunnar,
Europol, gegn þessum alþjóðlega
barnaklámhring, en alls náði að-
gerðin til þrettán landa. Einn maður
var handtekinn hér á landi
Hvað liggur á?
að morgni 14. júní, en
honum var sleppt eftir yf-
irheyrslur.
A heimili mannsins
fundust átta tölvur,
geisladiskar og mynd-
bönd sem lögreglan lagði
hald á. „Við erum búnir
að fara yfir eina tölvu sem
vinur mannsins átti en
var fyrir tilviljun heima
hjá honum. Það var ekkert á henni,“
segir Hörður. Eftir standa þó sjö
aðrar tölvur sem fundust á heimili
mannsins auk myndbanda
geisladiska.
Grfðarlegt magn
Lögreglan lagöi hald
á átta tölvur.
og
„Mér liggur á aö koma kvöldþættinum í loftið á nýrri sjónvarpsstöð,'1 segir Guðmundur
Steingrimsson þáttarstjórnandi á nýrri sjónvarpsstöö sem ber nafnið Sirkus.„Ég er mjög
tímabundinn og má engan tfma missa. Ég er ekki alveg búinn að ákveða hverjir verða hjá
mér í settinu á föstudagskvöld en ég get lofað að það verða súperstjörnur. Núna er ég á
leiðinni í æfingarennsli, sem tekur u.þ.b. klukkutíma. Svo þarfég að kaupa mér föt fyrir
þáttinn."
Þorsteinn McKinstry grunaður um undanskot
Leitað hjá sonum
leikskólaforstjóra
Mál Þorsteins Mc-
Kinstry, forstjóra gjald-
þrota einkarekinna leik-
skóla, gegn tveimur sonum
hans var tekið fyrir í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur í gær.
Um er að ræða riftunarmál
þrotabúa. Þorsteinn, for-
stjóri Leikskóla fyrir alla
sem rak Korpukot og
Fossakot, var dæmdur til
greiðslu 55 milljón króna í
sektir í nóvember síðast-
liðnum fyrir að halda eftir
sköttum af launum starfsfólks. At-
hygli vakti á þeim tíma að hann
keyrði um á tæplega 10 milljón
króna Porsche-bifreið. Aðspurður
sagðist Þorsteinn sjálfur ekki vera að
Þorsteinn McKinstry
Skuldaði tugi milljóna í
launatengd gjöld af
starfsfólki slnu en átti á
samatfma lObíla.
sækja að sonum sínum
fyrir dómi. Það væri
skiptaráðandi.
Ástæða málaferlanna
er að einhverjar eignir
Þorsteins eru taldar hafa
verið skráðar á tvo syni
hans, 19 og 23 ára.
Kannað er hvort Þor-
steinn hafi skotið undan
eignum.
Þorsteinn segist vona
að allt fari vel og hægt sé
að ljúka málunum gegn
honum eftir að í ljós kom í janúar í
fyrra að 150 milljónir króna hvfldu á
einkareknum leikskóla hans í Graf-
arvogi og að hann hafði ekki greitt
launatengd gjöld af starfsfólki sínu.