Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Qupperneq 14
74 FIMMTUDAGUR 23. JÚNl2005
Fréttir DV
Jóna Hlín Guðjónsdóttir gekkst undir offituaðgerð fyrir þremur árum. Hún hefur lést um 85 kg síðan þá
og segir líf sitt hafa breyst mikið eftir að aukakílóin fengu að fjúka eftir aðgerðina og með breyttum
lifnaðarháttum.
Loksins laus
Jóna Hlín var 160 kg þegar hún var þyngst, en nú þremur
árum síðar er hún 75-80 kg. Hún segir offituaðgerðina,
sem hún fdr í fyrir þremur árum hafa gefið sér nýtt líf. í
kjölfar aðgerðarinnar náði Jóna af sér 20 kílóum á mjög
skömmum tíma og er nú 80 kilóum léttari en hún var í
upphafi. Fjöldi fólks er á biðlista eftir offituaðgerðum,
en offita er vaxandi vandamál að sögn Ludvigs Guð-
mundssonar læknis á Reykjalundi.
fólki sem vill grenna sig sem flest
hefur prófað mörg önnur úrræði.
Sumir af þeim sem eru í offituhóp-
um á Reykjalundi fara í aðgerð sem
minnkar magamál. „Ég beið í níu
mánuði eftir að komast í aðgerðina,
en fyrir þann tíma hafði ég prófað
fjöldann ailan af kúrum. Mest náði
Jóna að létta sig um 20 kíló í átaki hjá
Gauja hda.
Jóna Hlín fór í aðgerðina fyr-
ir þremur árum eftir að hafa
barist við offim frá sjö ára aldri.
Jóna var 160 kfló þegar hún
var þyngst. Jóna var í
;'c: N
* :
I
*sa^. fyrsta „Reykja-
Fyrir og eftir Eins
og sjá má á þessum
myndum hefur útlit
Jónu Hllnar gjör-
breyst eftir aðgeröina.
Stórkostlegur árangur
Eftir 5 vikna prógramm á Reykja-
lundi hafði Jóna lést um sjö kfló. Þá
tók við tveggja vikna bið eftir að-
gerðinni. Aðeins einum mánuði eft-
ir aðgerðina hafði Jóna lést um tutt-
ugu kfló. „Ég missti nánast alla mat-
arlyst í tvo til þrjá mánuði eftir að-
gerðina og þurfti að minna mig á að
borða, full matarlyst kom síðan ekki
fyrr en ári eftir aðgerð." f dag segist
Jóna borða skynsamlega og þakkar
hún aðgerðinni sem hún fór í að
matarlystin er minni og ekki síður
breyttu viðhorfi til matar.
Ein af þeim heppnu
Jóna segist þekkja fullt af fólki
sem hefúr farið í svona aðgerð og
segir það frekar vilja þola auka-
verkanir sem aðgerðinni kunna að
fylgja en aukakílóin. Helstu auka-
verkanir eftir offituaðgerðir geta ver-
DV leitar að fólki
DV leitar að sjúklingum sem eru á biðlista
eftir aðgerðum eða lyfjum. Hafðu
samband i sima 550 5090 eða sendu póst
á ritstjorn@dv.is
„Þessi aðgerð breytti
lífi mínu og ég sé svo
sannarlega ekki eftir
því að hafa lagtþetta
ámig"
ið ákveðið fæðuóþol, Jóna segist t.d
þekkja fólk sem getur ekki
borðað pasta eða drukkið
mjólk. Sjálf segist hún eiga
erfitt með að borða reyktan
mat síðan hún fór í aðgerð-
ina. „Ég er ein af þessum
heppnu þar sem aðgerðin
heppnaðist mjög vel.
Strax eftir aðgerðina
fékk ég leiðsögn
næringarfræðinga
sem kenndu mér
að borða upp á
nýtt."
2VI
halda mér
við efnið
Þegar Jóna
fór að sjá ár-
angur breyttist
hugarfar
hennar til mat-
ar og hún fór að
borða hollari
fæðu. „Ég er ekki mjög dugleg að
hreyfa mig, en reyni að halda mér
við efnið til að halda aukakílóunum í
skeíjum." Eins og margir sem hafa
átt við offituvandamál að stríða hef-
ur Jóna kynnt sér tölfræði varðandi
árangur af megrunum og segir að
aðeins um 3% sem fari í megrun nái
að halda sér í kjörþyngd.
Var þess virði
Jóna segist hafa fundið fyrir
nokkrum fordómum í sinn
garð á meðan hún var hvað
þyngst. Þeir birtust m.a í
augngotum og hún fékk að
heyra athugasemdir eins
og „djöfuil ertu feit" frá
ókunnugu fólki. Þá
gáfu nokkrir sjúkra-
þjálfarar á Reykja-
lundi í skyn að
svona aðgerðir
væru óþarfar.
„Þessi aðgerð
ChctSös
breytti lífi
mínu og ég sé
svo sannarlega
ekki eftir því að
hafa lagt þetta
á mig. Það var
þess virði,"
sagði Jóna
Hlín.
hugrun@dv.is
Áhættusöm aðgerð
Ludvig Guðmundsson, læknir á Reykjalundi, sem ennfremur er yfirum-
sjónarmaður offituteymis á staðnum, segir einstaklingsbundið hve lengi
fólk þurfi að bíða eftir offituaðgerð. Nú er um 10 mánaða bið eftir við-
tali á göngudeild. Að sögn Ludvigs fylgir offituaðgerðunum ákveðin
áhætta. „Aðgérð fylgir alltaf áhætta og hún verður meiri ef fólk er mikið
yfir kjörþyngd." Hér má t.d. nefna aukna áhættu á blóðtappa, að lungun
falli saman, ásamt aukinni sýkingarhættu. Að aðgerð lokinni er ákveðin
hætta á magabólgum og magasári ásamt leka á skurðsamskeytunum.
Þá getur blætt inn í kviðarholið. Ludvig segir að algengt sé að hungurtil-
finning minnki eftir aðgerð, en hún komi aftur með tímanum. Sjúklingar
sem fara í offituaðgerð þurfa að liggja á sjúkrahúsi í 3-4 daga.
Fjöldi sjúklinga sem þjást af offitu hefur aukist mikið á undanförnum árum.
75% úr meðferðarhópum fara í aðgerð
Áður en fólk byrjar í meðferðar-
hópum við offitu er æúast til að
það hefji undirbúningsvinnu
heima. Það fær ráðleggingar og
stuðning á göngudeild. Þeir sem
ná tilskyldum árangri komast á
forgangslista fyrir meðferðarhópa.
Tíminn getur verið breytilegur eft-
ir þeim árangri sem fólk nær. Að
lokinni meðferð á Reykjalundi fara
þeir sem það velja í aðgerð eða alls
3/4 af þeim sem offtumeðferðina
sækja. Til að komast að í aðgerð
þarf fólk að vera 80% yfir kjör-
þyngd við upphaf meðferðar
(þyngdarstuðull 45 eða meira).
Hafi menn alvarlega fylgikvilla
offitu, eins og sykursýki, hjarta-eða
æðasjúkdóma, kæfisvefn eða slit-
gigt, er miðað við 60% yfir kjör-
þyngd (þyngdarstuðull 40 eða
meira).
Tvenns konar hópar eru nú í
gangi á Reykjalundi, annars vegar
á dagdeild þar sem eru 8 manns á
hverjum tíma, en hins vegar inn-
lagnardeild sem er fýrst og fremst
æúuð fólki utan af landi, en þar eru
5 inniliggjandi á hverjum tíma.
Sjálf meðferðarvinnan felst í breyt-
ingu á lífsháttum (næring og hreyf-
ing).
Ludvig Guðmundsson, yfir-
læknir á Reykjalundi, hefur fýlgst
með holdafari sjúklinga á Reykja-
lundi frá árinu 1994. Það ár mæld-
ust 26% með þyngdarstuðul yfir 30
(sem er viðmið þess að greinast
með offitusjúkdóm). Nú er þessi
tala 48%. Út frá þessu má sjá að
offita er greinilega aukið vandamál
hjá landanum og um leið aukin
áhætta á ýmsum öðrum kvillum.
Ludvig Guðmundsson
læknir og umsjónarmað-
ur offituteymis á Reykia-
lundi.