Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Page 18
18 FIMMTUDAGUR 23. JÚN/2005 Sport DV Urslitaeinvígi NBA fer í oddaleik í fyrsta skipti í 11 ár eftir að Detroit jafnaði metin gegn San Antonio í fyrrinótt og ætla sér að brjóta blað í sögunni með sigri í oddaleiknum í kvöld. „Þegar í hreinan úr- slitaleik sem þennan er komið, er það oftar en ekki hreint og klárt hungur og sigurvilji sem gerir útslagið." Meistarar Detroit Pistons sýndu fádæma karakter þegar þeir knúðu fram sigur í sjötta úrslitaleiknum við San Antonio Spurs í fyrrinótt, 95-86 og munu nú reyna að komast í sögu- bækurnar með sigri í sjöunda leiknum í kvöld. Ekkert lið í sögu úrslitakeppninnar hefur náð að verða meistari með þvl að sigra í tveimur síðustu leikjunum á útivelli, en meistar- arnir hafa ítrekað sýnt að engum ber að vanmeta þá og gam- an verður að sjá hvaða leikmenn taka af skarið í kvöld. Sögulegur úrslitaleikur. Urslitaeinvígi í NBA hefur ekki farið alla leið í sjö leiki síðan árið 1994 þegar Houston Rockets sigr- uðu New York Knicks í sjöunda leik, en þess má til gamans geta að þá var Robert Horry einmitt í liði Houston þegar hann var á sínu öðru ári í deildinni. Þegar í hreinan úrslitaleik sem þennan er komið, er það oftar en ekki hreint og klárt hungur og sigur- vilji sem gerir útslagið. ,, W Heimavöllur- rW® inn gæti hjálpað liði i San Antonio ef þeir ná góðri ættu lífið að leysa og munu fr eista þess að komast á spjöld sögunnar með sigri í hreinum úrslitaleik í kvöld. Rasheed Waliace bætti fyrir mistökin sem hann gerði í vörn- inni á lokasekúndunum í fimmta leiknum, með því að vera óstöðv- andi á lokasprettinum í fyrrinótt og hann var með skýr skilaboð til leikmanna San Antonio eftir sig- urinn. „Ég veit að allir voru búnir að afskrifa okkur og voru farnir að munda kampavínsflöskurnar, en ég get sagt ykkur að það , verðum við sem skálum í j kampavíni á fimmtudags- r kvöldið," sagði Wallace. un, en eins og komið hefur í ljós í úrslitakeppninni í ár, skyldi eng- inn vanmeta lið Detroit, sem virð- ist alltaf geta unnið sig út úr erfið- um aðstæðum þvert á allar spár. Tim Duncan hefur verið óvenju dapur í síðustu tveimur leikjum og engu líkara en að kappinn sé að fara á taugum. Vöm Detroit hefur verið frábær og liðið hefur náð að taka Spurs úr takti við sína uppáhalds leikaðferð, sem felst í að láta allar sínar að- gerðir renna í gegnum Duncan. Manu Ginobili virkar sömu- leiðist óömggur í sínum sóknar- aðgerðum í síðustu leikjum og ljóst aö San Antonio er í veruleg- um vandræðum ef þessir lykil- menn þeirra ná ekki að hrista af sér slenið í hvelli. Leikir eins og oddaleikur Spurs og Pistons í kvöld fara oftar en ekki í sögubækurnar og nú kemur í ljós úr hverju menn em gerðir, hverjir skara fram úr á ögur- stundu og hverjir láta undan pressunni. Leikurinn verður í beinni útsendingu á sjónvarps- stöðinni Sýn klukkan eitt eftir miðnætti. baldur@dv.is Flestir hölluðust að því að San Antonio næði að knýja fram sigur í sjötta leiknum, þar eð þeir vom komnir aftur á heimavöll sinn, þar sem þeir tapa afar sjaldan. Detroit liðið spilar þó aldrei betur en þeg- ar þeir em króaðir af úti í horni og sú var raunin í sfðasta leik. Eftir að hafa skoraði aðeins átta þriggja stiga körfur í fyrstu fimm leikjunum, tvöfölduðu þeir þá tölu í fyrrinótt með Chauncey Billups í miklu stuði sem fýrr. Ric- hard HamUton var stigahæstur í liði Detroit með 23 stig og Billups skoraði 21, þar af fimm þriggja stiga körfur. Það var fyrst og fremst hörku- góður varnarleikur meistaranna og sú staðreynd að þeir töpuðu boltanum aðeins fimm sinnum í leiknum, sem skóp sigur þeirra. Tim Duncan var atkvæðamestur í liði San Antonio með 21 stig og 15 fráköst og Manu Ginobili skoraði einnig 21 stig og hirti 10 fráköst. Það nægði slökum heimamönnum þó alls ekki gegn Detroit, sem léku eins og þeir I„Ég veit að allir voru búnir að afskrifa okk ur og voru farnir að | munda kampavíns- flöskurnar. En það 4 verðum við sem skálum á fimmtudag. Tim Duncan Hefur ekki náö sér á strik meö San Antonio f undan- förnum leikjum og vfst er að leikmenn Detroit munu reyna að nýta sér sdlrænt ástand hans til hins ýtrasta iieiknum fnótt. Hvernigspá sérfræðingarnir? Friðrik Ingi Rúnarsson „Ég var búinn að segja oð þetta færi 4-3 ■ fyrir San Antonio og að Manu Ginobih M yrði valinn verðmætasti leikmaður úrslit- | onna, svo að þetta er allt ó hdrréttri leið »' núna. Ginobili mun eiga stórleik I síðasta a Svali Björgvmsson „Ég neyðist til oð standa við spd mína og segjaað DetroftWnní þennan leik. Þeir þurfa að brjóta blað I sögunm og ^nfa/ianoupp d nýtt til að verða meistorar og efeitthvað hð getur l>a*W erJ>a þetto Detroit-lið. Þetta verður rosalegur leikur, Detroit vinnur þetta og þoð verður Chauncey áHLPHm Billups sem verður hetjan. Hann er búinn að » vera fróbær I þessu einvígi ogefeinnmað- K 1 ur er i erfiðleikum hjó Detroit, virðist alltaf pís^iSi tff. ' vero einhver annar sem getur tekið af skar- m 1 ið I staðinn. Tim Duncanáí erfiðleikum og m iep möguleikar San Antonio liggja að mínumati í ^ því að Ginobili eigi góðan leik/'sagði Svali ’Björgvinsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.