Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Síða 23
DV Lífið
FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ2005 23
Jónsmessuhátíðin er mikil náttúru-
hátið og má segja að landið lifni
við á þessum tíma. Harpa Arnar-
dóttir, leikari og náttúrubarn, á
r ^ *" jfr'-
fáttúrubarnid
faqnar Jóns-
Harpa Hefur ekki enn
velt sér upp úr dögginni
á Jónsmessunótt. Hún
hefurþó velt sér upp úr
Móðurjörð.
messunm
Jðnsmessuhátíðin á rætur sínar
að rekja til sólhvarfahátíða for-
feðranna. í kaþólskum sið var þessi
tími helgaður Jóhannesi skírara og
er 24. júní er afmælisdagur hans.
Jónmessan er eiginleg hátíð nátt-
úruaflanna í íslenskri þjóðtrú. Kýr fá
mál þessa einu nótt, selir fara úr
ham sínum, álfar fara á stjá og jurtir
fá lækningamátt. DV ræddi við eitt
helsta náttúrubarn íslands, Hörpu
Arnardóttur, um minningar og
skoðanir hennar á þessari hátíð.
„Ég hef reyndar ekki ennþá velt
mér upp úr dögginni á Jónsmessu.
En ég hef náttúrlega velt mér um
Móður jörð á góðum degi,“ segir
Harpa og hlær dátt. „Svo hef ég nátt-
úrlega verið að synda í fjallavötnum.
Þegar ég er uppi á hálendi reyni ég
ailtaf að henda mér út í vatn eða læk
og sameinast lífsvatninu."
Harpa ædar að fagna sólstöðum
sumarsins í góðum félagsskap vina
og kunningja. „Ég er að fara á sól-
stöðufagnað í kvöld. Ég verð í góðra
vina hópi. Ég veit ekki alveg hvað
verður gert. Ég býst við að þetta
verði eitthvað óvænt. Mér finnst
þetta óskaplega dásamlegur tími.
Það er náttúrulega fuilt tungl og
mikill fagnaður hjá náttúrunni. Mér
finnst þetta alltaf mikil hátíðar-
stund. Þetta er hátíð ljóssins o:
landið er í blóma og miídl birta,
þessum tíma reyni ég bara að vaka
ogveratil."
í gegnum tíðina hefur Harpa
haldið upp á þennan tíma með ýms-
um hætti „Ég á miklar minningar ff á
þessum árstíma sem sólin sest ekki.
Ég sé bara fyrir mér djúpblá fjöll og
eldrauðan himinn og öll þessi lit-
brigði. í minni fjölskyldu er alltaf
haldin Jónsmessuhátíð uppi í sveit.
Þá borðum við saman, kveikjum bál
og syngjum saman. Það er haldið í
kringum Jónsmessuna. Þetta er fyrir
ofan Mosfellssveitina og við kveikj-
um bál við læk þar og borðum og
syngjum og njótum okkar.“
Harpa segist einnig ætla að
stefna út í náttúruna og endurvekja
tengslin við lífsandann. „Það stend-
ur til hjá mér að ganga á Heklu með
Ferðafélaginu. Þá er gengið um
nóttina og komið í bæinn um morg-
uninn. Svona næturganga. Ég gekk
síðast á Heklu þegar ég var 12 ára og
á dásamlegar minningar af því að
grilla pulsur á toppnum. Að grafa
pulsur ofan í gíginn og ég man að
mér fannst þetta mikið undar að
þær skildu soðna. Þannig að ég vona
að komist í þessa ferð."
toti@dv.is
í kvöld er Jónsmessa sem upphaflega var kennd við Jóhannes skírara. Kýr munu tala í kvöld, selir
munu fara úr hömum sínum og brennur verða víða um landið til þess að fæla burt illa anda sem verða
á sveimi í nótt. DV kannaði nokkrar Jónsmessuhátíðir sem boðið er upp á.
Galdrar
1. Viðey
Jónsmessuhátíð verður í Viðey á
sunnudaginn. Hún hefst með guð-
spjalli í Viðeyjarkirkju kl. 14. Að lok-
inni guðsþjónustu verður kaffisala í
félagsheimili Viðeyinga í gamla
vatnstankinum á Sundbakka. Ef
veður leyfir verður kveikt í risavöxn-
um bálkesti við sjávarbakkann.
2. Hellisgerði
í Hellisgerði verður krökkt af álf-
um og öðrum vættum í kvöld. Jón-
messudagskráin hefst kl 10 og tekur
Sigurbjörg Karlsdóttir, sagnakona, á
móti leikskólabörnum og fræðir þau
um álfa og dulúð Helhsgerðis. Dag-
skrá kvöldsins hefst kl. 20 þar sem
Benedikt búálfur skemmtir börnum.
Mikið verður um tónlistaruppákom-
um fram eftir kvöldi og leiðir Hol-
lenska reggí-hljómsveitin Five4Vibe
mannskapinn inn í nóttina. Nánari
upplýsingar veitir Marín Hrafns-
dóttir í síma 664 5776.
3. Eyrarbakki
Jónsmessuhátið verður haldin í
sjötta sinn á laugardaginn kemur. Á
dagskránni yfir daginn er m.a. að
finna mikið af myndlista- og ljós-
myndasýningum og uppákomum.
Um kvöldið kl. 22 verður kveikt í
Jónsmessubrennu vestan við
bryggjuna og stiginn verður trylltur
dans eins og Eyrbekkingum er ein-
um lagið. Nánari upplýsingar veitir
Magnús Karel Hannesson f síma 483
1443 og vinnusíma 515 4900.
4. Seltjarnarnes
í kvöld verður farin Jónsmessu-
ganga kl 20.30 og lýkur um 22.30.
Gangan hefst á Valhúsahæð við út-
sýnisskífuna þar sem Þór Whitehead
segir frá hernaðarviðbúnaði á Sel-
og óhreinar vættir í nótt
tjarnarnesi á stríðsárunum. Gengið finna útilaug. Lagt verður af stað frá
verður af stað og skoðaðar stríðs- Suðurgötu 3 í Reykjavík kl. 21.30.
minjar á hæðinni. Því næst verður Þau sem vilja baða sig taki með sér
gengið niður að dæluhúsi Hitaveitu baðföt. Nánari upplýsingar á
Seltjarnarness. Þar fá göngumenn www.vinstri.is
hressingu og loks verður kveikt í bál-
kesti í fjörunni við Seltjörn. Að sjálf- 7. Fimmvörðuháls
sögðu verður gripið í nikkunna og Útivist stendur fyrir Jónsmessu-
söngelskir göngumenn leiða íjöru- göngu helgina 25. - 26. júní. Farið
söng. verður á Fimmvörðuháls og gist í
tvær nætur í tjaldi og skálum. Farið
5, Fjölskyldu- og húsdýra- verður kl. 20 frá BSÍ. Nánari
garourinn, Reykjavík upplýsingar er að finna á
Ókeypis verður inn í Fjölskyldu- www.utivist.is
og húsdýragarðinn í kvöld. Kyngi-
mögnuð dagskrá verður á milli 23 og
til 1 eftir miðnætti. Því miður eiga
þeir sem heyra
kýrnar í Húsdýra-
garðinum tala til
að sturlast og
verður því til
boða sérstakt
afsturlunarte i
fyrir þá sem
þurfa á því að
halda. - .
Brenna
verður
haldin í Þjófadölum. Englar
og djöflar í umsjón Götuleik-
hússins verða á sveimi
ásamt öðrum furðu-
verum. Hljóm-
sveitin Liama mun
halda uppi stemn-
ingu í Vísindaveröldinni.
6. Heliisheiði
Hvað er betra á Jónsmessunótt
en að baða sig undir berum himni í
guðsgrænni náttúrunni? Eflaust
eitthvað, en ekki margt. Því ætla ung
vinstri-græn að ganga að
Klambragili á Hellisheiði á Jóns-
messunótt, en þar er einmitt að