Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Page 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Page 32
32 FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ2005 Menning DV Þorgerður Katrín vill skála í Feneyjum Líkt og greint var írá hér á opnunni á þriðjudag hefur menntamálaráðherra lýst því yfir að þetta sumarið verði það síðasta sem gamli Finnlandsskálinn eftir Alvaro Aalto hýsi framlag íslands tii tvíæringsins í Feneyjum. Þetta var staðfest með frekari ff étt í Morgunblaðinu í gær, þar sem Guðmundur Ámason ráðuneytisstjóri sagði vilja ráðherra að reist verði nýtt hús undir íslenska myndlistarmenn þar í borg, en við- ræður standi yfir við yfirvöld um lausn á húsnæðisskorti landa okkar annað hvert ár í Feneyjum. Segir Guðmundur koma til greina að fengin verði aðstaða í Asenalinum eða ný lóð í Görðunum. Samkvæmt fréttum Arts International, mánaðarrits um listaheiminn, í síðustu viku munu íslendingar vera í viðræð- um við Finna um samstarf í Feneyjum en þjóðirnar munu hyggja á Listastefhuna í Miami nú í haust. Ráðherrann vill byggja ( Görðunum Q Oktett Ragnheiðar Gröndal spilar á Græna hattinum á fyrsta Heita fimmtudegi sumarsins Djass á Akureyri Akureyringar halda upp á sumarið með röð listviðburða af ýmsu tagi. Þar stendur nú yfir leiklistarhátíð og annað kvöld hefst á Græna hattinum röð djasstónleika. Það er áttæringur Ragnheiðar Gröndal sem fyrstur rær á miðin og situr hin glæsilega, unga og vinsæla söngkona í stafni. Oktett hennar er fjölmennasta hljóm- sveit sem leikið hefur á Heitum fimmtudegi á Listasumri til þessa. Ragnheiður sagðist hafa stað- ið fyrir þessu bandi frá því um áramót, en bróðir hennar Hauk- ur væri aðal- maðurinn. „Hann er stóri bróðir minn,“ sagði hún hreyk- in. Þau komu fram á djasshátíð- inni í Vest- Brosandi formaður í átta manna svelt: Ragnheiður Gröndal mannaeyj- um og spila seinna í sumar í Garðabæ og í Fossatúni í Borgar- firðinum hjá Steinari Berg og frú hans sem þar hafa reist ferða- mannaskjól. Bandið spilar tvö sett og síðan aukalög svo þetta eru nær tveir tímar sem þau hafa æft upp. „Við erum að kynna óþekktari standarda og svo er svolítill blús með,“ sagði Ragn- heiður brosmild að vanda. Þessir tónleikar heíjast á Hattinum ld. 21.30 en aðrir djasstónleikar á dagskrá Lista- sumars fara fram í Grófargili, í Deiglunni eða Ketilhúsi. A tón- leikunum á morgun leikur Oktett Ragnheiðar Gröndal sígildar djassperiur og blús í nýjum út- setningum eftir Hauk Gröndal, bróður söngkonunnar. Hann leikur á altósaxófón og klarínett, Eyjólfur Þorleifsson á tenórsaxó- fón, Ólafur Jónsson á tenórsaxó- fón, Sigurður Flosason á barítonsaxófón og þverflautu og ÁsgeirÁsgeirsson á gítar. Á kontrabassa leikur hinn kanadíski Graig Earle og Svíinn Erik Qvick leiktu á trommur. Skipshöfnin ætlar að sigla víðar: í júlíbyrjun koma þau fram á hinni víðþekktu djasshá- tíð í Kaupmannahöfn auk þess að leika á nokkrum vel völdum stöðum á íslandi og einnig er áætíað að gera upptökur af efn- inu í sumar með útgáfu í huga. Lifsspursmál fyrir bókaútgefendur að fá styrki til að gefa út þýddar fagurbókmennt- ir, segir formaður félags bókaútgefanda, en Þýðingarsjóður hefur úthlutað í ár. Snæbjörn Arngrfmsson: Formaður útgefanda segir Þýðingarsjóðinn og við- gang hans lífsspursmál fyr- ir útgefendur þýddra fagur- bókmennta. I Cornelia Funke: áfram heldur bálki hennar frá Feneyjum Hin vinsæla Allende skrifar um Zorro. K T -1. SBHIk Bfl ■mm | Susan Sontag: | "s % , ^ f; JÁ Varðandi þján- f ingarannarra verðurþýdd. [f Þýðingarsjóður hefur lokið út- hlutimum þetta árið og fara tólf og hálf milljón af almannafé til að styrkja bókaútgefendur til þýðinga á bókmennta- og fræðiritum. Stærsti styrkþeginn er bókaútgáf- an Bjartur, en almenningur styrkir útgáfri tíu bóka fyrir böm og full- orðna sem forlag Harry Potters og Da Vinci lykilsins gefur út á næstu miss- erum. Nemur styrkurinn rúmum tveimur milljónum. Á lista Bjarts em þýðingar á sög- um fyrir böm á borð við nýja sögu af Molh', Blekhjartað eftir verðlaunahöf- undinn Comeliu Funke og framhald sagnabálksins um ljóndrenginn. Þá sækja þeir og fá styrki til að vinna þýðingar á skáldsögum eftir Murakami, Kirino, Kurkow og Cercas. Allt em þetta mætir höfundar og ánægjulegt að bækur þeirra skuli þýddar. Bókmenntastofnun Háskólans er styrkt um rúma milljón til að gefa út fræðitexta, þar á meðal ritgerðasöfn eftir Baktín hinn rússneska og Foucoult sem lengi hefur verið goð á Melunum. Hólaútgáfa nyrðra hyggst láta þýða hið mikla verk Antony Beevor um fall Berlínar í stríðslok, en hann er rómaður fyrir stórvirki sín, bæði um Berlín og ekki síður Stalíngrað. Þeir fá líka styrk til þýðingar á nýrri sögu eftir Philip Roth, Plottinu gegn Amer- íku. Salka hyggst láta þýða söguna af frú Dalloway eftir Virginíu Woolf og Skjaldborg söguna af Borgarstjóran- um í Castbridge eftir Tómas gamla Hardy. Edda fer næst Bjartí í styrkjum: Isabella Allende, Lars Saaby Christi- ansen, Marques, Mankell og Jakob- sen bíða þýðingar við Suðurlands- brautina. Hið íslenska bókmenntafé- lag lætur vinna Kuhn, Popper, Sartre og Sontag. Jóhann Páll ætíar að láta þýða söguna um Frankenstein og svo er að vænta enn eins rómanans eftir Pál Cuoelo, aukýmislegs annars svo sem Flugdrekahlauparans eftir afganska skáldið Khaled Housseini. Alls var sótt um styrki til 99 verk- efria og vom umsækjendur 33. Styrkimir em hlaupandi frá 100 upp í 400 þúsund krónur. Formaður Félags bókaútgefanda, Snæbjöm Amgrímsson í Bjarti, segir algert lífsspursmál að hafa aðgang að þessum sjóði til útgáfú á þýddum fagurbókmenntum. Þær seljist ekki nóg til að standa undir kosmaði og almenningi sé nauðsynlegt að hafa aðgang að nýjum og gömlum verk- um í íslenskum þýðingum. „Við þurf- um þennan sjóð," segir Bjartsbónd- inn. Hann hefúr líka sótt í þýðingar- sjóði Evrópusambandisns en segir það flóknara mál og mikla skrif- finnsku og ekki sé vitað hvort þar verði framhald á. Snæbjöm giskar á að þýðingarlaun fyrir skáldverk hlaupi frá 400 þúsundum og upp fyr- ir milljónina, en þýðendur fá 1,20 krónur greiddar fyrir slag. Og nú taka lyklarnir að dansa og verður þess að vænta að flest þessara verka h'tí dagsins ljós á komandi ári. Lista yfir styrki Þýðingarsjóðs má finna á vef ráðuneytisins. Loksins hefur myndlistarmönnum verið Norræna hússins og er það í fyrsta sinn er sýning í rýmið í mýrinni. Grús í mýrinni falið að búa til sýningu ofan í kjallara í langri sögu hússins þar sem pöntuð Sýningin verður opnuð kl. 18 í kvöld. Grús er samsýning þriggja ungra myndlistarmanna, þeirra Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur, Helga Þórssonar og Magnúsar Loga Kristinssonar sem hafa sýnt víða, bæði heima og erlendis, á undanförnum árum og sýna nú saman í fyrsta sinn. Með sýningunni er brotið blað í sögu Norræna hússins, sem ásamt sýningarstjórunum Hönnu Styrm- isdóttur og Rúrí fór þess á leit við listamennina, að þeir ynnu verk sérstaldega fyrir sýningarrýmið. Titill sýningarinnar vísar að hluta til sögu sýningarrýmisins en einnig til fjölbreytileikans sem þess hvata sem þarf til að skapa. Þar kallast á f rýminu, ríma, sjón- rænir eiginleikar hússins og mögu- leikar þess með ólíkum miðlum og aðferðum. Segir í lýsingu á verkimum: „Tfmavíddin er innbyggð í hst þeirra allra, í formi gjöminga, myndbandsverka og virkra inn- setninga. Þó að hér séu á ferðinni ólíkir listamenn, em leikur og frjálsleg nálgun við efiii og miðla sterkur þáttur í verkum þeirra. Undir htrfku og léttu yfirborði býr jafnframt rík samfélagsleg vitund.“ Hópurinn sem sýnir er ferskur: Ásdís Sif Gunnarsdóttir (1976) er menntuð í Ameríku og hefur hald- ið einkasýningar í gaheríi Smekk- leysu, í Pýramídum Ásmundar- safns 2004 og tekið þátt í samsýn- ingum á Ítalíu, í Berlín, Glasgow og Gent í Belgíu árið 2004. Helgi Þórsson (1975) er lærður í Hohandi. Hann hefur sýnt í Fries Museum og í Amsterdam árið 2004 og á fjölda samsýninga, m.a. í Rott- erdam, Amsterdam, Lubeck, Safnasafiúnu á Akureyri og Boekie Woekie í Amsterdam. Helgi er einnig þekktur sem annar helm- ingur tUraunatvíeykisins StiUupp- steypu. Magnús Logi Kristinsson lauk nýverið námi í Helsinki. Hann hef- ur haldið einkasýningar í Berhn 2005, GaUeríi i8 „undir stiganum" 2003 og hefur tekið þátt í fjölda samsýninga, m.a. í Helsinki og Amsterdam. Magnús hefur tekið þátt í fjölda annarra viðburða, m.a. í Cable Factory Performance með Obhvia-hópnum í Helsinki 2005. í tengslum við sýninguna verð- ur opnuð vefsíða á slóðinni www. this.is/Grus sem kemur í stað sýningarskrár og opnar föstudag- inn 1. júh'.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.