Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Qupperneq 33
Menning DV FIMMTUDAGUR 23. JÚNl2005 33 Bóksölulistar Listinn er gerður eftir sölu dagana IS.júni til 21.júni og tekur til versl- unar i bókabúðum Máls og menningar, Eymunds- sonar og Pennans. AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR SÆTi BÓK HÖFUNDUR 1. Útivistarbókin Páll Ásgeir Ásgeirsson | 2. Kleifarvatn (kilja) Arnaldur Indriðason 3. Alkemlstinn (kilja) Paulo Coelho | 4. Hveitibrauðsdagar (kilja) James Patterson Paulo Coelho 6. Englar og Djöflar (kilja) DanBrown 7. Myndir á þili Þóra Kristjánsdóttir 8. Kortabók (kilja) Mál og menning 9. íslenskur fuglavísir Jóhann Oli Hilmarsson 10. Kalaharí-vélritunarskólinn Alexander MvCall-Smith | mmé 4. Ritsafn Davíö Stefánsson 1 5. Perlur úr Ijóðum íslenskra kvenna - Silja Aðalsteinsdótt 6. Ljóðasafn Steinn Steinarr 7. Þriðja gráða James Patterson 8. Ritsafn Snorri Sturluson 9. Ljóðasafn Hannes Pétursson 10. Perlur í skáldskap Laxness Halldór Laxness SKÁLDVERK - KIUUR 1. Kleifarvatn Arnaldur Indriðason 2. Alkemistinn (kilja) Paulo Coelho 3. Hveitibrauðsdagar James Patterson 1 4. Ellefu mínútur (kilja) Paulo Coelho 5. Englar og djöflar Dan Brown 6. Kalaharí-vélritunarskólinn Alexander McCall-Smith 7. Belladonna skjalið lan Caldwell 8. Skítadjobb Jón Egill Bergþórsson 9. Da Vincl lykillinn Dan Brown 10. Úlfurinn rauði Liza Marklund HANDBÆKUR - FRÆÐIBÆKUR - ÆVISÖGUR 1. Útivistarbókin Páll Ásgeir Ásgeirsson 2‘ Myndir á þili Þóra Kristjánsdóttir arnaldur ÍNDRíOASON 3. Kortabók (kilja) Mál og menning 4. íslenskur fuglavísir Jóhann Óli Hilmarsson 5. Sumarsalöt Margrét Þora Þorláksdóttir 6. íslendingar Sigurgeir Slgurjónsson og Unnur Jökulsdóttir 7. íslenska vegahandbókin Stöng 8. íslenska plöntuhandbókin Hörður Kristinsson 9. íslensk fjöll Ari Krístinsson 10. Skyndibitar fyrir sálina Barbara Berger BARNABÆKUR 1. Skóladagbók Galdrastelpnanna 2005/2006 2. Þankastrik 1 Walt Disney 3. Galdrastelpur Vaka Helgafell 4. Þankastrik 2 Walt Disney 5. Fjörefni Edda 6. Geitungur 1 Arni Arnason og Halldór Baldursson 7. Þankastrik 3 Walt Disney 8. Úrvalsævintýri H.C. Andersen 9. Litli prinsinn Antoine de Saint Exupery |— 10. Bókin mín um orðin Angela Wilkes ; m ERLENDAR BÆKUR - ALLIR FLOKKAR 1. Whiteout Ken Follett 2. Hat full of Sky Terry Pratchett mm 3. Black Rose Nora Roberts 4. Mao: the unknown story Jung Chang og Jon Halliday 5. The Colour of Death Elizabet Lowell 6. Fashion History Taschen 7. Art Now Tashen 8. Gaudi Rainer Herbst 9. Hour Game David Baldacci 10. Lazarus Vendetta Robert Ludlum og Patrick Larkin ERLENDAR VASABROTSBÆKUR 1. Black Rose Nora Roberts \(m 2. Whiteout Ken Follett mms 3. Hat full of Sky Terry Pratchett 4. Wolves of the Calla Stephan King B | ; |, | 5. Sam’s Letter to jennifer James Patterson s u< >si’ 6. The Color of Death Elizabeth Lowell I 7. Sunday Philosophy Club Aleexander McCal Smith 8. Metro Girl Janet Evanovitz 9. Lazarus Vendetta Robert Ludlum og Patrlck Larkin 10. Hero Come Back Stephanie Laurens og fleiri. Vasabókalistinn byggir á sölu í ofannefndum verslunum auk dreifíngar í aðrar bókabúðir og stórmarkaði á vegum Pennans/Blaðadreifíngar. Skáld vill lesendur Hermann Stefánsson rithöfund- ur og fræðimaður vill efla tengslin. Hann hefur sett upp sérstaka síðu fyrir bloggið sitt og býður lesend- um upp á næstum líkamlegt sam- band í samtalinu. Hann kallar bloggsíðu sína Norðanáttina, viss um að það liggur mönnum mest á hjarta að tala um veðrið áður en þeir vinda sér yfir í aðra sálma. Um síðuna segir skáldið: „Þetta er norðanáttin. Hún feykir öllu lauslegu með sér, sópar upp öllu sem á vegi hennar verður. Að reka veitingahús er eins og að reka stórt heimili, allt sem þú finnur á mat- seðlinum getur endað á dúknum. Eins er með norðanáttina. Allt sem hún hrifsar með sér getur endað einhvers staðar annars staðar í öðru samhengi, í bók eða sönglagi eða hljóðlegu ljóði. Ég er ekki læs. Mildi er æðst dyggða. Norður er ekki höfuðátt heldur hugarástand." Ratast kjöftugum satt á munn. Þeir sem vilja reka nefið oní vit Hermannsins fari á slóðina: http: / /nordanattin.blogspot.com/ Hermann horfir til himins og bfður eftir móttöku ZikZak-bræður gleðjast yfir velgengni stuttmyndar sinnar og eru að hefja tökur á nýrri stuttmynd undir stjórn Ósk- ars Þórs Aðalsteinssonar Síðasti bærinn verðlaunaður á Spáni Leikstjóri og aðalleikarinn: Jónamir Snæbjörnsson og Sig- urbjörnsson við tökur á hinni lofuðu stuttmynd. Sigurganga stuttmyndarinnar Síðasti bærinn eftir Rúnar Rúnars- son heldur áfram, en myndin vann aðalverðlaun á Huesca inter- national fllm-hátíðinni sem haldin var á Spáni dagana 9. - 18. júní sl. Myndin fékk einnig sérstaka til- nefhingu frá gagnrýnendum. Fyrir vikið er Síðasti bærinn komin í for- val vegna óskarsverðlaunanna á næsta ári. „Þetta var mikilvægur áfangi," sagði framleiðandinn Skúh Malmquist. „Hún er nú tæk í val fyrir Óskarinn og þarf ekki að fara í forsýningar. Það er ekki þar með sagt að hún fái tilnefningu." Síðasti bærinn hefur verið sig- ursæl á hátíðum undanfarna mán- uði, en hún hefur meðal annars verið valin besta stuttmyndin á Nordisk Panorama 2004, besta stuttmyndin á Kiev International Film Festival Molodist 2004 og hún fékk Edduverðlaunin í sínum flokki árið 2004. Auk þess hefur sjónvarpsstöðin Arte í Frakklandi keypt sýningarrétt á myndinni, en hún var framleidd með tUstyrk Kvik- myndastöðvar ís- lands, Norræna kvikmynda- og sjón- varpssjóðsins auk sænska sjónvarpsins. Síðasti Bærinn fjallar um aldraðan bónda sem er orðinn einn eftir í dalnum ásamt konu sinni, þar sem aðrir bæir eru komnir í eyði. Mjög er að þeim hjónum lagt að bregða búi og flytja í þéttbýlið. Með aðal- hlutverk fer Jón Sigurbjörnsson, en með önnur hlutverk fara Kristjana Vagnsdóttir, Sigurður Skúlason, Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Am- heiður Steinþórsdóttir. Framleiðendur myndarinnar, Þórir Snær og Skúli, halda sig enn við framleiðslu stutt- mynda hjá kvikmynda- gerðinni ZikZak. 2. júlí hefjast tökur á verki Óskars Þórs Að- alsteinssonar sem er nýútskrifaður frá háskólan- um í New York. Myndin kallast Misty Mountain og gerist á Langanesi í um- hverfi afskekktrar ratjárstöðvar. Þema hennar byggir á tímaflakks- hugmyndinni. Hún verður tekin á 35 mm filmu og verður stór hópur tækniliðs á Langanesinu í júh'. Eggert Pétursson hlýtur viðurkenningu fyrir einstök blómamálverk sín Carnegie-verðlaunin veitt Carnegie Art Award eru norræn myndlistarverðlaun sem stofnað var til af D. Carnegie &Co árið 1998. Þetta eru ein stærstu mynd- listarverðlaun sem veitt eru í dag, ef miðað er við þær upphæðir sem falla í hlut einstakra listamanna. Tilkynnt var um úrslitin í gær. Sænska listakonan Karin Mamma Andersson (f. 1963) hlaut fyrstu verðlaun upp á eina milljón sænskra króna fyrir málverk sín, en árum saman hefur hún fjallað um norræna náttúru í verkum sínum og teflt henni gegn þjóðsögum og goðsögnum. Önnur verðlaun að upphæð 600.000 sænskra króna hlaut Egg- ert Pétursson (f. 1959). Um verk hans segir dómnefnd: „Sérstæð blómamálverk listamannsins eru ólík öllum öðrum útlistunum á náttúru eða grasafræði. í þeim er að finna ótrúlega nákvæmni og flókna innviði; þau eru nánast staðffæðileg í áþreifanleika sín- um.“ Eggert tók einnig þátt í Carnegie-sýningunni árið 2004. Eggert var að vonum glaður þegar DV náði í hann í gær. Var á milli síma. Þetta er annað árið í röð sem hann er valinn til þáttöku í því úrvah norrænna myndlistarmanna sem myndar þessa stóru farand- sýningu sem fer milli ahra höfuð- borga Norðurlandanna og mun nú fara bæði til Nizza í Suður-Frakk- landi og Lundúna. „Það er varla til meira prófes- sjónal sýning en þessi og staðið er að þessu. 1 ■er gefin út vegleg bó með verkunum og skipulögð viðtöl við aha þá sem að málinu koma." Hvað hann ætlar að gera við pen- inga? „Við keyptum okkur loksins hús í fyrra og ég gat komið mér upp almenni- legri vinnustofu. Þannig að þetta fer í það." Finnska lista- konan Petra Lind- holm, sem fædd er 1973 í Karjaa, hlýtur þriðju verðlaun að upphæð 400.000 sænskar krónur fyrir ljóð- rænt myndbandsverk sitt „Uns“. Af þeim 115 listamönnum sem upphaflega voru thnefndir til sýn- ingarinnar voru 21 valdir th þátt- töku í sýningunni Carnegie Art Award 2006. Hér er um að ræða al- þjóðlega farandsýningu sem sett verður upp í höf- uðborgum ahra Norð- urlandanna, auk þess sem hún verður sett upp í Nizza og Lund- úrium. Sýningin verður opnuð í Listasafni Reykja- víkur, Hafnar- húsi, þann 10. júní nk. og stendur hún til 20. ágúst 2006.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.