Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 23.06.2005, Blaðsíða 39
DV Síöasten ekkisíst FIMMTUDAGUR 23. JÚNÍ2005 39 4* Hlemmur R-listinn villmenn- ingarlegt miðbæjarhverfi með kaffihúsum i stað rónanna. R-listinn er kominn með svaka áætlun um að reisa Hlemmsvæðið við. Hann ætlar að færa Hlemm upp úr sollinum og búa til menningar- legt miðbæjarhverfi með fuilt af kaffihúsum. Þar á að búa og starfa mikið af listafólki eins og þegar er kominn vísir að með Klink og bank í Þverholtinu. Spennandi. Ég ákvað að máta hverfið með þetta í huga. Beitti ímyndunaraflinu og nýtti mér þá gríðarlegu framtíð- arsýn sem ég er þekktur fýrir. Ég sá fyrir mér alls konar kaffihús þar sem fastagestir yrðu listamenn í djúpum þönkum við kaffidrykkju. Rónarnir á Hlemmi munu þá væntanlega hverfa. Hvert vfil R-list- inn að þeir fari? Fá þeir einhverju ráðið um það? Ég spurði þá út í þetta og þeim leist vel á að fá kaffihús í ná- grennið. Þeir voru alveg með það á hreinu að þar yrðu þeir velkomnir, enda er þetta hverfið þeirra. Ég reyndi að segja þeim að R-listinn ætlaði að svæla þá burt. En rónamir vildu ekki hlusta á mig. Ég prófaði að drekka kaffið mitt á ýmsum stöðum í hverfinu og eftir nokkra stund fannst mér ég vera orðinn iðjuleysingi. Ég var orðinn Sigurjón Kjartansson skrifar í DV alla fimmtudaga. Kaffi á Hlemmi „Ég prófaði að drekka kaffið mitt á ýms- um stöðum i hverfinu og eftir nokkra stund fannst mér ég vera orðinn iðjuleysingi." meiri iðjuleysingi en rónarnir. Þeir voru þó að minnsta kosti á röltinu að leita sér að brennivísdropa. Ég bara sat og drakk kaffi. Og þetta vili R-listinn fá í Hlemmhverfið. Iðjuleysingja sem hanga á kaffihúsum afia daga. List- ræna „klink og bank“ iðjuleysingja. Er nú ekki verið að sækja vatnið yfir lækinn? Eigum við ekki bara að leyfa rónunum að eiga Hlemm fýrir sig? Skipulagið Nýja skipulagið gerir ráð fyrir að rónar víki fyrir kaffihúsum. Rónarnir halda þó að þeir fái að vera áfram. Nýir tímar á Hlemmi Rónar og það sem áður einkenndi Hlemm á að vikja á næstunni. 4 morgun Nokkur vindur Þokan er mætt á svæðið eða svokallaðir þokubakkar eins og vðurfræðingar kjósa _ að kalla þetta fyrirbæri. Það kemur ekki óvart að enn _ Y, . tI einn daginn verður hlýrra Nokkur vlndur sunnlands en norðan. Llkur eru á vindi og vætu við í _. vesturströndina en /CX-c annars ættu allir að vera Gola þokkalega 'M * ánægðir með jHyA veðriðídag. mWjW- Hinn daginn Algarve Mallorca Krit/Chania Barcelona Róm Alicante Kýpur Rimini Kaupmannahöfn 19 Osló 20 London 27 Paris 34 Sólarupprás Sólarlag i Árdegisflóð 07.01 " i Reykjavík Reykjavík Siðdegisflóð 1926 0255 24.04 Sigurjón Kjartansson heirnsótti Ulcmnn í vik- unni en þar standa iniklar breytingar fyrir dyrum. JMistinn vill búa tii menningarlegt miöbæjarhverfi vneö kaffihúsum og fá þar _ tí i' j . _iíj_ - _____________J ' 'ii r i Jakob Bjarnar Grétarsson • Ófremdarástand er innan VG þótt tilefnið sé gleðilegt. Þannig er að vara- formaður flokksins og helsti talsmaður hans í borginni, Katrín Jakobsdóttir er með barni. Hún ætlar því ekki í borgarstjórnarslag- inn næsta vor. Árni Þór Sigurðsson sit- ur þéttur fyrir og ætlar að leiða þar á bæ sem fyrri dag- inn en þá vantar konu í framvarðar- sveitina. Klóra menn sér nú í höfðinu með hver kemur til greina, því Svandís Svavarsdóttir formaður VG í Reykjavík var búin að gefa það frá sér að fara í væntanlegan slag... • Hagnaður af Bjarti og Ferdin- ant, dótturfyrirtæki Bjarts í Dan- mörku, er sagður slfkur að Snæbjöm Amgrímsson viti vart aura sinna tcd. Góðærið er einkum vegna Harry Potter bókanna og svo Da Vinci lykilsins. Þó svo að Snæbjörn sé manna líkleg- astur til að láta það fé sem eftir , stendur renna til ‘skálda og menn- ingarlegrar útgáfu sem seint BTART U R telst gróða- J vænleg hefur hann nú af því mestar áhyggjur hvernig gengur með pípulagnir í sumarhúsi sem hann festi á kaup. Húsið er í Puglia - sunnanverðri Ítalíu. Eins og duglegir lesendur vefs Bjarts vita stendur nú forlagið að ólífurækt á Ítalíu þannig að yf- irráð á bókamarkaði þar hljóta að vera á dagskrá nú þegar Danmörk steinliggur... • Líkt og sjá má inni í blaðinu logar nú Hafnarfjörður stafna á milli vegna sölu stofnfjáreigenda á hlutum sínum í Sparisjóði Hafnar- fjarðar. Em þeir sem málinu tengj- ast því fegnastir að vera fjarri góðu gamni og einn slík- ur er Ingvar Viktors- son fyrmm bæjarstjóri, sem í gær hélt utan til að iðka golf. í ferðina var jafiiframt skráð- ur til skamms tíma Páll Pálsson, stjóm- arformaður SPH, kenndur við Fjörð, en hann flautaði af þátttöku með nokkmm fýrirvara. Hann hefur enda í nægu að snúast... ** • Ekki verður svo frá þessum dálki gengið að ekki sé einn af eft- jr. irlætis bloggumm blaðsins nefiidur. Smásagna- og auglýs- ingagerðarmaðurinn Agúst Borg- þór hefur náð hæstu hæðum í skrifum sínum með einlægni í bland við nokkra vissu um eigið ágæti að vopni. Þannig segir Ágúst af því að húsgagnasali hafi sagt sér formálalaust að hann hefði skrifað smásögur alla æfi en aldrei fengið birtar. „Þetta var eins og áhugagítar- leikari væri að tala við Jimi Hendrix,“ segirÁgúst Borgþór og kvaddi þennan veruleikafirrta __ húsgagnasmið með handabandi...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.