Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1949, Síða 22

Freyr - 01.01.1949, Síða 22
16 FREYR hagnýta hér á landi, nema ef vera skyldi á einum eða tveim stöðum til reynslu. Ég mundi geta mælt með því, að verja gjald- eyri fyrir einum tæmingartækjum til reynslu, en alls ekki öðruvísi fyrst um sinn. Þessi afstaða mín byggist á eftirgreind- um forsendum: 1. Tæmingartækin eru allt of dýr til þess að nota til jafn lítils starfs og raun er á almennt hér á landi og verða mun um sinn, enda þótt vothey kunni að verða verkað í stærra mæli en féndur þess óska. Hvort tækin lækka í verði, ef framleiðsla þeirra vex að mun, verður ekki fyrir séð, en þau munu nú kosta 8—10 þúsund krónur að minnsta kosti. 2. Þess er getið af þeim, sem séð hafa tækin í gangi, að þau séu ágæt til að losa vothey, sem gert er úr maís eða grófu grænfóðri, en þeim verði að breyta svo að vel reynist til þess að losa vothey, sem gert er úr grasi. 3. Þó að á hverju heimili sé ein gryfja eða turn, eða tvennt af hvoru, þá er verkið við að losa dagsgjöfina handa kúnum, þeir smámunir, að ekki kemur til greina að setja svo dýr tæki til jafn lítilfjörlegs starfs, eða hvort mundi nokkrum detta i hug að kaupa slíku verði vél, til þess að losa þurr- heyið í hlöðunni, og er það þó bæði erfiðara verk og meira heilsuspillandi, Illuti af turnveggnum tekinn burt, svo að afstaða sést og umbúnaður tœmin gartœkjanna.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.