Freyr

Árgangur

Freyr - 01.01.1949, Síða 25

Freyr - 01.01.1949, Síða 25
FREYR lð átt sér stað né fósturmyndun, nema viss- um lágmarkskröfum um karótínmagn sé fullnægt. Kýrin þarf að fá ákveðið minnsta ftiagn til þess að geta eignast kálf, og enn- þá meira en minnsta magnið ef kálfurinn á að reynast hraustur og heill. Tilraun hefir sýnt, að ef kýrin er á lágmarki þá Þarf hún að fá að minnsta kosti 75 mg áaglega til þess að viðhalda eðlilegum frjó- semis-lífshræringum. Tilraunir og athug- anir hafa oft sýnt, að fósturlát á sér stað vegna skorts á karótíni (A-vitamíni). Á svipaðan hátt hefir karótínið einnig áhrif á frjósemi nautanna. Að öllum athugunum samanlögðum þyk- ir rétt að gera áætlun um, að ef kýrin fær 80—100 mg karótín daglega að vetrinum, þá sé ekki hætta á truflunum í frjósemi hennar, en svo verður hún að fá til við- bótar jafnvirði þess, sem hún skilar í mjólkinni. Þegar um heygjöf er að ræða, eins og gerist hér á landi, er engin hætta á karó- tínskorti framan af vetri, en seinni part vetrar þverr karótínið mjög í heyinu og getur þá verið ástæða til að gefa því gaum sem betur má fara. Karótínið í heyi og mjöli, sem gert er af jurtum (alfa-alfa), þverr mjög við geymsluna og í gömlu heyi er venjulega ekkert karótín. Hey, sem hafa hrakist mjög að sumrinu, eru oft gjör- sneydd karótíni þegar á haustnóttum, og hey, sem hitnar í eftir að látið er i hlöðu, tapar meira eða minna magni af þessu verðmæta efni. Karótín í alfa-alfamjöli þverr og mjög við geymslu. Er það meira en vafasamur greiði, sem bændum er gerð- ur með því að láta þá kaupa alfa-alfamjöl í kúablöndu síðari hluta vetrar. Bændur eiga sjálfir að tryggja sér nægilegt karótínmagn heima með því að verka vothey og þurrka heyin vel. Það getur verið ástæða til að gefa karótínþörfunum gaum þegar illa árar og heyin hrekjast, en við venjuleg skilyrði erum við íslendingar allvel settir að þessu leyti ,enda tæpast ástæða til að gera ráð fyrir truflunum í frjósemi kúnna sökum karótínskorts, nema eftir hrakviðrasumur þegar heyið er hismi líkt og ekki fóðri. En bót er hér í máli, að þegar nokkurt magn heyfengsins er verkað sem vothey þá er öryggið miklu meira, því að í góðu vot- heyi er megin þess karótíns, sem var í gras- inu, og karótínið í votheyinu þverr sára- lítið við geymslu frá hausti til vors. Þess vegna er gott vothey sá bezti karótín- sparisjóður, sem bóndinn hefir og gildir notkun hans ekki aðeins öryggi í naut- griparæktinni heldur og í allri búfjárrækt, og meira að segja nær þetta atriði til manneldisins um leið, því að karótín vot- heysins fer að nokkru yfir í mjólkurfituna og gefur hénni aukið gildi sem næringar- efni fyrir mannanna börn. G. írlendingar selja Englendingum egg í vaxandi mæli. I viðskipta- samningi fyrir 1949 er ákveðið, að magnið skuli vera 198 milljónir eggja, og í eftirfylgjandi 3 ár er um- samið magn 234 milljónir árlega. Er það sem næst sama- magn og árlega var selt til Englands á árunum 1936—40. Meginhluta þess fóðurs, sem þarf til eggjaframleiðsl- unnar ,verða Irlendingar að flytja inn. Á Eggjasölusamlagið er nú að skipuleggja starfsemi sína og færa út kví- arnar. Það greiðir fyrir dreifingu eggja innanlands og útvegun fóðurs og annarra nauðsynja er hafin. Mark- miðið þarf að vera að Eygjasölusamlagið hafi íhlutun um innflutning alls fóðurs sem nota skal handa ali- fuglum.

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.