Freyr - 01.01.1949, Side 32
26
FREYR
gert úr efni, sem ekki gefur matnum aukabragð og ekki
verða efnabreytingar í þó að snerti mat eða ræstiefni.
Og svo verður það að hafa hæfilegan styrkleika. Þau
eldhúsáhöld, sem algengust eru við daglegu störfin, verð-
ur að athuga sérstaklega.
Pottar.
Húsmóðirin þarf að eignast pott af hæfilegíi stærð
og ekki bara einhvern pott. Stærðin miðist við fjölda
heimilisfólksins. Þá verður einnig að taka tillit til hvaða
hitagjafa er um að ræða. Sami potturinn er ekki jafn-
góður við rafmagnshita, gashita og kolavél.
Potturinn, sem keyptur er og nota á á kolavél, getur
t. d. verið gleraður (emailleraður). Gleraður pottur er
ekki góður nema glerunginum sé smurt á í þunnum
lögum. Stej'pujárnspottar, sem gleraðir eru að innan,
eru sjaldan traustir því að þeir verða varla gleraðir
svo að í lagi sé, nema með því að smyrja þykkum Iög-
um á í einu, og þess vegna er glerungnum mjög hætt
við að flagna af slíkum pottum. En flestar húsmæður
þekkja, að það er ekki létt að fást við pottana þegar
glerhúðin er farin að flagna af. Og þeir eru ekki alveg
hættulausir, því að það er ekki létt að fyrirbyggja að
glerungsflísar fari í matinn og berist með honum í melt-
ingarfæri manna. Mörgum húsmæðrum þykir hvítir
gleraðir pottar skemmtilegir, og verzlunarmenn fullyrða,
að þeir séu allra potta mest eftirsóttir.
En það eru til pottar gerðir úr stálþynnum og þeir
eru einatt húðaðir með granítglerungi. Þessir pottar eru
léttir og auðvelt að hita þá. Granít-glerungurinn eða
demant-glerungurinn, eins og hann er oft nefndur, er
sterkur af því að honum er smurt á í mjög þunnum
Iögum. Þessir pottar þola mikinn hita, án þess að saki,
og vel má brúna steik í þeim. Þeir þola betur misjafna
meðferð af öllu tagi en hvxtu gleruðu pottarnir.
Slórir pottar, af þessari gerð, eru ekki hentir þegar
sjóða skal í þeim mjólkurmat; til þess eru þeir of þunnir.
Smá-pottar, sem nota skal yfir gasi eða á prímus, eru
gerðir úr sama efni og að framan er getið. Hér er þó
um þá staðreynd að ræða, að aluminíumpottarnir vinna
markaðinn, en litlir pottar, úr stáli eða steyptir, verða að
víkja. Aluminíumpottar eru líka ágætir, en ætíð skyldi
velja þá þykka. A markaðnum eru oft skaftpottar úr
alúminíum, svo þunnir, að þeir mega teljast ónothæfir,
af því að þeir beyglast og eyðileggjast svo fljótt. Lít-
ilsháttar högg veldur geiflu á þeim og uppþvott þola
þeir naumast, enda er það algengt að slíkir pottar eru
með gati eftir fárra vikna notkun. Svona pottar hafa
alltaf umbeygða rönd í opi, það eykur styrk þeirra að
ofan en botninn er jafn lélegur fyrir því, og jafnhætt
við að maturinn brenni við þó að framleiðandinn hafi
aukið styrk opsins á umræddan hátt.
Pottar, sem ætlaðir eru til notkunar við rafmagns-
hita, geta verið þykkir eða þunnir eftir atvikum. Þeir,
sem eru úr þykku efni gerðir, em jafnhæfir til notk-
unar hvort sem um háa eða lága spennu er að ræða.
en til notkunar á venjulegum suðuplötum er sjálfsagt
að hafa potta með þykkum botni og umfram allt að
gæta þess, að botninn sé vel sléttur svo að hann falli
allur vel að suðuplötunni og ekki bara á smáblettum.
Þessir pottar eru oft með skörpum löggum, en það er
ekki hent af því að hætta er á að þar brenni við, þar
eð skeiðar, sem hrært er í með, komast naumast út í
löggina.
Mjög er æskilegt, að á þessum pottum séu handföng,
er ekki leiða hita, t. d. gerð úr tré eða ebonit. Velja
ber fyrst og fremst þá potta, sem hafa tryggilega fest
handföng, því að það er ógaman ef þau detta af.
Aluminíumvörur er hægt að fá gljáfægðar eða ófægð-
ar, eða þá elokseraðar. Eloksering gefur málminum
l'allegt útlit og varanlegt, með veikum gljáa, og hvaða
lit sem vera skal, en því ræður framleiðandinn að sjálf-
sögðu.
P'önnur.
Það er með pönnurnar eins og pottana, að hér ber
að greina á milli áhalda eftir því hvort þau skulu not-
uð á eldavél eða við aðra hitagjafa.
Til eru ágætar pönnur til notkunar á venjulegum elda-
vélum, stundum gleraðar, en einnig pönnur úr stál-
þynnurn geta verið ágætar.
Á gasvél, eða suðuáhöld af öðru tagi, er bezt að
nota pönnur úr aluminíum, hinna þykku tegunda, þær
leiða hitann bezt og af því að loginn lendir þar alltaf á
miðjum botni, er þykktin mikilsverð, svo að ekki mis-
hitni.
Aluminíumvörur teljast þykkar þegar þær eru meira
en IV2 mm.
Katlar.
Ef nota á ketilinn á eldavél með hringum, er sjálf-
sagt, að hann sé með börðum eða hring, er leggist á
eldavélarhringina en hluti ketilsins nær þá niður í eld-
hólfið. Flautukatlar, sem settir eru ofan á hitunará-
hald, skulu vera með ójafnan botn, þá er flöturinn
stærri en annars og hitagjafinn vermir fljótar.
Um ketil, sem nota skal við rafmagn, gildir hið sama
og potta, er notaðir eru við sömu skilyrði.
Handföng katla þurfa að vera tryggilega fest. annað-
hvort með skrúfum eða hnoðnöglum, og ekki kveikt á.