Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1949, Qupperneq 33

Freyr - 01.01.1949, Qupperneq 33
FREYR 27 Kringlóttir katlar eru oft strendir á belti um ketil- mn neðanvert. Hinir sléttu fletir auka styrkleikann og eru í þeim tilgangi einungis. Við notkun er vert að minnast þess að halda katlinum hreinum og gæta þess að ekki setjist í hann ketilsteinn. Pottlok. í*að er þýðingarmikið atriði að lokin, sem notuð eru, hæfi pottunum og sjaldan hafa húsmæðurnar fleiri en einn pott, sem hægt er að nota sama lokið á. En það segir það sama sem: Hver pottur sitt lok. Pottlokið þarf að vera mátulega stórt; þegar það fellur vel, þá sparar það margar hitaeiningar, flýtir suð- unni og hlífir eldhúsinu gegn gufu. Hvít gleruð lok eru ljómandi falleg, en þau eru ekki jafn hentug. Glerungnum hættir til að flagna af, eða hrynja af, þegar það kemur fyrir, að lokið fær sér veltu eftir gólfinu, en það hendir jafnvel í fínustu eldhús- um, og lok, sem eru blettótt, skrámótt og ryðguð, eða beygluð í rendur, eru óásjáleg og til engrar prýði í eld- húsi og ekki alltaf til þess gagns, sem þeim er ætlað að gera. Flöt lok, með dökkum glerungi, eru betri, og alu- miniumlok geta verið góð en þau eru sjaldgæfari nema þau fylgi pottunum. Handföngin á lokunum þurfa að vera tryggilega fest. Framh. Coloradobjallan í októbermánuði 1947 var haldin ráð- stefna í Bruxelles, sem fjallaði um varnir gegn Coloradobjöllunni. í ráðstefnu þess- ari tóku þátt aðilar frá flestum þjóðum Vestur-Evrópu. Niðurstöður þær, sem þar voru samþykktar, gerðu ráð fyrir fram- kvæmdum á vegum nefndar, er kjörin var til þess að sinna þeim. í nefndina voru kjörnir fræðimenn á sviði tækni og svo framkvæmdastjórar frá Hollandi, Belgíu, Luxemburg, Eire, Bretlandi, Frakklandi og Jersey. Ríkisstj órnir þessara landa veittu fé til þess að hægt væri að hafa allan við- búnað í lagi, ef í það færi, að heyja þyrfti stríð við vágest þann hinn mikla, Colorado- bjölluna. Af fjárfúlgu, er lögð var fram í þessu skyni, voru launaðir 20 sérfræðing- ar, sem í sumar höfðu yfirumsjón með úðun allra kartöfluakra við landamæri Þýzkalands, og af sama sjóði var greitt öllum öðrum sem að því unnu, og svo sprautur, lyf og annað, sem með þurfti. Ennfremur hefir þessi allsherjarnefnd haf- ið framleiðslu kvikmyndar um Colorado- bjölluna og varnir gegn henni, og þetta ár hefir verið varið stórfé til áróðurs, sem miða skyldi að því að gera almenningi ijóst, að brýn þörf er á að vera á verði gegn vágesti þessum. Samvinna hefir verið milli deildanna í hinum einstöku löndum, og þótt bjallan hafi heimsótt öll ofan- greind lönd, þá hefir útbreiðsla hennar ver- ið heft svo hún hefir þar hvergi valdið verulegu tjóni. Bjallan hefir komið bæði til Englands og Jersey, á stríðsárunum var allmikið af henni á Jersey, en öflugar varn- ir hafa haldið henni í skefjum og útrým- ing er kappkostuð. Ennþá mun bjallan ekki hafa komið yfir norður-landamæri Þýzkalands, en Norðurlandabúar eru þar á verði. DANIR VILJA SELJA HROSS, því að nú er hafinn innflutningur á dráttarvélum í verulegum mæli. Gert er ráð fyrir að Danir fái 10 þúsund Ferguson- dráttarvélar fyrir árslok 1949. Er því auð- sætt, að þeir geta selt fjölda hrossa, sem dráttarvélarnar leysa af hólmi við dag- legu störfin. Um undanfarin ár hefir landbúnaðar- ráðuneytið haft umsjón með hrossasölunni og selt til Póllands og Frakklands aðal- lega. Nú eru einstaklingar hvattir til þess að leita markaða erlendis fyrir bæði af- sláttarhross og dráttarhesta.

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.