Freyr

Árgangur

Freyr - 01.08.1951, Blaðsíða 4

Freyr - 01.08.1951, Blaðsíða 4
240 FRE YR bezt, sem byrjuðum að starfa sem bænd- ur, upp úr síðustu aldamótum. En betur má ef duga skal og alltaf verðum við, sem landbúnað stundum, meira og minna háð sól og regni, skini og skúrum. Þegar við fáum köld og skúralítil vor, svo grasspretta verður lítil, þá hjálpar okkur mikið hin aukna ræktun; vel ræktuð tún bregðast sjaldan með sprettu og sízt þó þegar við höfum tilbúinn áburð með húsdýraáburð- inum. Og þegar skúrirnar verða of marg- ar og skinin of fá um heyannatímann, þá hafa margir tryggt sig með súgþurrkun og votheysgerð, þótt of fáir séu það enn, sem tryggir eru fyrir slíku. En á grundvelli þessara framfara stöndum við betur að vígi að taka á móti hinum hörðustu vetr- um og vorum, og ef við höfum það alltaf hugfast, á haustnóttum, þegar setja skal á vetur, að búast við þvi versta, og ef von okkar rætist um að við fáum góðan vet- ur og vor, þá safnazt fyrir í fóðurforðabúr okkar, er verður okkur styrkur um fóður- þörf á komandi missirum, og með mark- vissri framför í þessa átt færumst við smátt og smátt fjær því að eiga allt undir sól og regni, þó við lengst af verðum að sætta okkur við það, að vera veðráttunni mikið háðir. En við, búandfólk, stefnum að því með forsjá og dugnaði að gera búrekstur- inn sem tryggastan. Það á að vera og er okkar stolt, og þá fyrst getum við örugg- lega tileinkað okkur þessar setningar: „Bóndi er bústólpi. Bú er landstólpi." Og þá þurfum við heldur ekki að kvíða því, að það fólk, sem vinnur að landbún- aðarstörfum, verði ekki „virt vel“ af al- þjóð, að verðleikum. í nýútkomnu riti, er heitir Heima er bezt, er grein svohlj óðandi: „Verðmætasta og tryggasta eign er vel ræktað og vel byggt sveitabýli. Um skeið hefir fólksstraumurinn legið frá fram- leiðslunni úr sveitum landsins og jarðir hafa lagzt í eyði. Nú eru að verða straum- hvörf í þessum málum. Eyðijarðir byggj- ast. Nýbýlum fjölgar, og eftirspurn eftir jarðnæði vex mikið. Sú kynslóð, sem nú er að kasta af sér reyfum unglingsáranna, mun marka stór- stígar framfarir í búnaðarframkvæmdum þjóðarinnar á komandi árum. Hún mun. leysa úr læðingi ómetanleg auðæfi úr skauti moldarinnar og skapa sjálfri sér og niðjum sínum öruggari og bjartari fram- tíð.“ Því tek ég þessar setningar hér upp, að ég tel þær falla vel við það, sem mér sýn- ist vera framundan í þessu efni. Mér sýn- ist, og ég trúi því, að landbúnaðurinn haldi áfram að þróast í þá átt að farsælla verði við hann að búa í framtíð en nokkra aðra atvinnugrein. Vel ræktað og vel byggt sveitabýli er í vaxandi mæli hugsjón æ íleiri ungra manna og kvenna. Eitt það affarasælasta, sem ég hefi allt- af séð framundan fyrir ungum manni og svanna, og ég sé nú ennþá skýrar en nokkru sinni áður, er að byggja upp og starfrækja vel byggt og vel ræktað sveitaheimili. Það þarf ekki að vera svo stórt, en hjónaefnin og hjónin þurfa að byggja það sem mest upp sjálf í sameiningu, og umfram allt að þau skapi sér þar lífsöryggi. Það er hverj- um manni meira virði, sem hann hjálpar til að skapa sjálfur, með hugsjón sinni og og atorku en það, sem hann eignast átaka- lítið. Og sem betur fer er land vort svo lítt numið, að nóg er af glæsilegum verkefnum í byggðum landsins um ófyrirsjáanlegan tíma. Fyrst og fremst að byggja ofan á það, sem þegar er byrjað og færa út á marga vegu, og svo hreint og beint land- nám. Fólkið finnur, að á slíku býli er „heima bezt“ og það skapar sér þá skoð- un örugglega, að flýja ekki frá erfiðleik- unum, þótt á stundum gefi á, því það er að batna, flýja ekki frá því að hjálpa guði til að skapa fleiri bústólpa til að standa und- ir þjóðmenningu okkar og öruggari lífsaf- komu. Flýja ekki frá friðsömu og göfgandi menningarstarfi á býlinu í sveitinni, að hægari störfum, tilkomuminni og þýðing- ar minni fyrir þjóðfélagið. Það eru of margir í okkar þjóðfélagi, sem vilja lifa á annara sveita, sem vilja fá sitt lifibrauð frá samfélaginu, án þess að þurfa að leggja að sér erfitt starf. Og mér sýnist það vera of margir, sem hafa hugann við að grína

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.