Freyr - 01.08.1951, Blaðsíða 19
FRE YR
255
Trjágarðurinn, á Egilsstöðum á
Völlum, er meðal hinna vegleg-
ustu hér á landi.
gróður
árum, þegar hafizt var handa um flokkun
og greining hans.
En svo er mál með vexti, að grasafræð-
ingarnir Ingólfur Davíðsson og Ingimar
Óskarsson, hafa klifrað yfir girðingar og
gengið inn um hlið til þess að grennslast
um hvað vex í görðum fólks í höfuðstað
landsins, í kaupstöðum og þorpum, og í
sveitum. Þeir hafa skoðað gróðurinn, flokk-
að hann og víða mælt hæð trjáa og runna.
Tilefni þessa var ákvörðun, sem gerð
hafði verið áður, um að gefin yrði út bók,
hliðstæð Flóru íslands, er lýsti tegundum
gróðurs þess, er vex í görðunum, útbreiðslu
þeirra og ástandi.
Störf þeirra félaga, ásamt fenginni að-
stoð úr ýmsum áttum, hefir borið þann ár-
angur, að út er komið yfirlit yfir allt þetta,
glæsilegt verk og digurt, skrýtt 300 mynd-
um og þar að auki nokkrum litmyndum.
Hefir ísafoldarprentsmiðja lagt allt kapp
á að gera bók þessa sem bezt úr garði og
nafn hefir hún hlotið samkvæmt innihaldi
og heitir
GARÐAGRÓÐUR.
Garðagróður er stærri bók en Flóra ís-
lands, enda hefir hin síðarnefnda að geyma
P G emsufifill.