Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.1952, Blaðsíða 20

Freyr - 01.09.1952, Blaðsíða 20
302 FREYR ræða grind, sem gerð er úr vinkiljárni og því ekki hætt við að fúna eða gisna. Ekkert er úr tré nema fótafjalir (fótskarir) og setan. Á útbúnaði þessum er vatnshylki, sem fest er á grindina. Er það úr gúmmí, gert af gömlum hjólbörðum. Striginn í hyikinu getur auðvitað fúnað en það end- ist lengi og gisnar ekki. Festing vatnshylkisins er örugg og auð- velt að skrúfa hylkið af. Að öðru leyti virð- ist umbúnaður góður. Til dæmis má geta þess, að öxullinn, sem liggur í gegn um steininn, hvílir í koparlegum báðumegin, og sömuleiðis eru koparlegur á tengilið sveifar og hlaupastelpu. Útbúnaður þessi kostar á framleiðslu- stað í Reykjavík 400 krónur, en um 475 krónur ef steinninn fylgir. Fiskimjol og lambablóðsótt Halldór ráðunautur skrifar í maíblað Freys um lambablóðsótt. Hvetur hann bændur til að nota þau meðul, sem kunn eru, við veikinni. Er þess full þörf að bænd- ur taki mál þetta til athugunar, því veiki þessi mun oft gera allmikið skarð í lamba- hópinn. Ég hef oft ætlað að skrifa um reynslu mína af þessum kvilla. En af því hefir ekki orðið af tveim ástæðum. Önnur ástæðan er sú, að það er alldjarft af ólærð- um bónda að fara að skrifa um mál, er læröu mennirnir hafa ritað mikið um og hljóta að hafa meira vit á en við, þeir ó- lærðu. En hin ástæðan er sú, að tími til að grípa penna hefir verið hjá mér all tak- markaður. Nú hefir skipazt svo málum, að tími minn til bréfaskrifta er nægur, en þróttur til annarrar vinnu enginn. Greindir og athugulir bændur ættu ekki að líða neinn skaða við að lesa um þetta fáein orð frá ólærðum bónda, því sjálfráðir eru þeir um, hvort þeir fara eftir ráðum mínum. Ég hefi, í þau rúm 30 ár er ég hef hirt sauð- fé, gefið því mat, því að beit er hér létt og hey oft síðslegin og létt til fóðurs. Fyrstu árin gaf ég aðeins síld eða síldar- mjöl, en svo fór ég að gefa með rúgmjöl eða fiskimjöl eða þá ég blandaði þessum þrem tegundum saman. Ég þóttist verða þess var, að lömbin urðu stæltari og hraustari ef ég hafði fiskimjöl í matargjöfinni um meðgöngutíma ánna. Fór ég því að hafa það fyrir fasta reglu að gefa af því 5—10 gr daglega, hverri á, seinni hluta vetrar, og stundum allan veturinn. Þó vildi svo til, að 3 sinnum, eitt og eitt ár í senn, gat ég ekki gefið fiskimjöl, og 2 þau vor missti ég lömb úr lambablóðsótt. Önnur vor hefir ekki borið á veikinni hjá mér. Þriðja vorið, sem ég gaf ekki fiskimjöl, bar ekki á lamba- blóðsótt, en lömbin þó sjáanlega ekki eins hraust og venjulega. Ég er því orðinn þess fullviss, að fiskimjölsgjöf handa ánum gerir lömbin hraustari og ómóttækilegri fyrir öllum kvilum og þar á meðal lamba- blóðsótt. Mitt ráð er því þetta: Gefið ánum gott fiskimjöl, helzt allan meðgöngutímann, 5 —8 grömm á dag hverri á, fyrstu 10—12 vikurnar og 8—10 grömm daglega, 8—10 seinni vikurnar. Gefið mjölið daglega. — Sérstaklega má ekki verða uppihald á gjöf- inni 6—8 síðustu vikurnar, því öll fóður- breyting, síðustu vikurnar, er oft mjög skaðleg og hefir stundum orðið bændum til stórskaða. Þetta ráð hefir ekki útgjöld í för með sér — eða sérstaka fyrirhöfn ef matur er gefinn hvort sem er — því fóðurgildi fiskimjölsins svíkur ekki. Athugið svo hver niðurstaðan verður, því reynslan er alltaf bezti kennarinn, ef allar ástæður eru at- hugaðar af skynsemi og hleypidómalaust. Magnús K. Árnason, Krónustöðum.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.