Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Síða 3
DV Fyrst og fremst ÞRIÐJUDAGUR 12.JÚLÍ2005 3 Enn eitt hringtorgið Gatnaframkvæmdir Agnar Eldberg (t.v.) og Isak Gunnalaugsson viðstörf. Á sumrin eru framkvæmdir á götum Reykjavíkur áberandi og vegna þeirra þurfa bfleigendur oft að bíða í röðum eftir því að komast leiðar sinnar. A leið sinni um borgina rakst ljós- myndari DV á þá Agnar Eldberg (t.v.) og ísak Gunnlaugsson við Skeifuna þar sem þeir unnu hörðum höndum að því að laga götuna. „Við erum bara að saga fyrir skurði," segir Agnar og mundar vélina af myndugleik. „Það á bara að búa til enn eitt hringtorgið hérna og við erum að undirbúa það," segir Agnar aftur. Agnari er þó fleira til lista lagt en að saga fyrir skurði því hann er einnig tónlistarmaður. Spurning dagsins Er Jón Ásgeir Jóhannesson saklaus? Ekki saklaus „Ég veit ekki hvað þið eruð að tala um en hann er alls ekki sak- laus.“ Arnþór Jökull Þor- steinsson athafna- maður „Ég myndi segja bara að hann væri saklaus, þaðeralltof mikið undir hjá honum." Sigurður Kjartansson smiður „Ég veit það ekki. Ég held að hann sé saklaus. Hann er alla vega saklaus uns sekt er sönnuð." Guðrún Kristjáns- dóttir hús- móðir „Hann ersekur, það hlýtur að vera ástæða fyrirþví að lög- reglan ákærði hann þarsem égheftrúá lögreglunni." Kristinn Guðjónsson verk- fræðingur „Hann er sjálfsagt ekki algjör- lega saklaus en ég held að hann sé ekki eins sekur og sumir hyggja." Jóhann ísak Pétursson kennari Nýlega hætti Baugur Group við kaup á bresku verslunarkeðjunni Sommerfield.Ástæðan er ákærur á hendur forstjóra Baugs Group, Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, og fleirum tengdum fyrirtækinu. Toppuðum Háskólabíó Sigurjón við sýningarvél- ina Greinilegt erað Sigurjón Jóhannsson kann réttu tökin við sýningarvélina, enda með tíu ára starfsreynslu. Orðið krambúlera eryfírleitt notað til að lýsa líkamlegum áverkum. Menn tala um að menn séu krambúleraðir eftir að hafa til dæmis lent I bílslysi með þeim afíeiðingum að sjáanlegir áverkar hafí hlotist af. Orðið er talið hafa komið úr máli Malaja en þar var orðið karambil haft um ávöxt karambóltrésins. Núverandi hlutverk orðsins er talið hafa æxlast afþví að rekast á. Orðið er talið hafa borist til Islands frá Danmörku. Málið „Annars þoli ég ekki gamalt fólk og les aldrei upp á elliheimilum. Ég er með of- næmi fyrir gömlu fólki, fæ útbrot og missi röddina ef ég kem nálægt því. Ég þoli ekki ellina. Ég er ekki maður gamla fólksins," sagði Stefán Máni, rithöfundur þegar hann ræddi við DV þann 16.12.2004. Þessi orð lét hann út úr sér þegar hann var að kynna bók sína Svartur á leik. „Ég man nú ekki nákvæmlega eftir þessari mynd," segir Sigurjón Jóhannsson rafvirkjameistari í Hafnarfirði en á þessum tíma var hann sýningarmaður hjá gamla Tónabíói. „Eg var sýningarmaður hjá Tónabíói í tíu ár. Þetta var mjög góður tími, allar bestu myndirnar sem komu til landsins voru sýndar hjá okkur og við vorum með helm- ingi meiri aðsókn en Háskólabíó, þrátt fýrir að þeir væru með helm- ingi stærri sal en við. Ég man að þetta var mjög góður vinnustaður. Já, þetta voru mjög góðir tímar." Greinilegt er að Sigurjón minnist þessara tíma af góðu einu. Gamla myndin ÞEIR ERU HALFBRÆÐUR Veðurfræðingurinn & listmálarinn Ari Trausti Guðmundsson veðurfræðingur og Guð- mundur Guðmundsson (Erró) eru hálfbræður. Faðir þeirra var Guðmundur Einarsson listmálari og mynd- höggvari. Ari Tausti erjarðeðlisfræðingur að mennt og hefur um langt árabil fengist við dagskrárgerð á RÚV, bæði við útvarp og sjónvarp. Ari er fyrirlöngu þekktur fyrirað vera veðurfræðingur Stöðvar tvö. Erró ereinn þekktasti núlifandi listmálari þjóöarinnar. Verk Errós eru vel þekkt hérlendis sem erlendis og eru verk hans I eigu fjölmargra erlendra safna. Flökkueðlið virðst bræðrunum sameiginlegt en Ari hefur ferðast mikið og kynntsérhálendiviða um lönden Erró hefurferðast viða í tengslum við list sina enhann er búsettur i París. Svefnsófar með heilsudýnu Recor I i —.. SEO SVEFNSÓFI160 / 209x95cm - SENSEO SVEFNSÓFI140 / 187x95cm - Margir lifir Komdu í verslun okkar að Faxafeni 5 og sjóðu glæsilegan sýningarsal okkar fullan af nýjum svefnsófum. Svefnsófar með heilsudýnu og MicroFiber áklæði í mörgum lifum og stærðum. r * Wimtex 4fll a m 4iyfftlJf VW svefnsófi 184x91 cm - litir Brúnt og svart leður. Svefnsvaði 150x200 cm. Kim svefnsófi 203x95 cm - Utir Camel, hvitur, brúnn. Svefnsvæði 143x193/215 cm. Sýningarsalur á neðri hæð fullur af nýjum svefnsófum, glæsileg tilboð í gangi! Wimtex svefnsófar eru allir með rúmfatageymslu. Faxafeni 5 • Sími 588 8477 • www.betrabak.is Op/ð virka daga frá kl. 10-18 Lokaó á laugardögum í sumar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.