Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 Fréttir DV Dóp ocj drykkja Lögreglan á Eskifirði lagði um helgina hald á um það bil fimmtán grömm af hassi og um tvö grömm af am- fetamíni auk neysluáhalda. Farið var í tvær húsleitir vegna málanna. Lögreglan naut aðstoðar íikniefna- hundsins Kizu og tollgæsl- unnar á Eskifirði. Auk þessa var mikill erill hjá lögregl- unni vegna ýmissa annarra mála í tengslum við mikla al- menna ölvun samkomu- gesta í Félagslundi á Reyðar- firði, en þar var haldið ball aðfaranótt sunnudags. Bókfyrirsam- úðarkveðjur Hægt verður að fara í Sendiráð Bretlands og skrifa nafn sitt í bók fyrir sam- úðarkveðjur til aðstand- enda þeirra sem létust eða meiddust al- varlega í hryðjuverkaárás- unum í Lundúnaborg þann 7. júlí. Bókin er í Sendiráði Bretlands, Laufásvegi 33. Hægt er að skrifa í hana dagana 11. til 15. júlí frá kl. 9 til 12. Allir þeir sem vilja votta samúð sína eru hvatt- ir til þess að skrifa í bókina. Fasteignaverð? Ólafur Blöndal, fasteignasali hjá fasteing.is „Það hefur verulega hægt á hækkun á fasteignaverði. Við erum að ganga inn í tímabil núna sem mætti kalla eðlilegt ástand, þarsem framboð og eft- irspum eru að mætast. Ég vil ekki taka svo djúpt I árinni að segja að miklar lækkanir séu á næstunni, efþað gerist þá gerist það á löngum tfma. Það verður llka að taka það inn í reikning- inn að júlí er sumarfrísmánuður og venjulega er lítið að gera á markaðnum á þessum tírna. Hann segir / Hún segir „Ég sénú ekki að þaðsé að lækka. Það hefur verið mikil sala að undanförnu og eignir hafa verið að seljast vel. Við sjáum það á hverjum einasta degi að fólk er að borga hátt verð fyrir eignir. Þegar verðið er komið I hámark þá er mun llklegra að það muni standaístað I ein- hvern tíma áðuren það lækkar. Meðan fólk hefurgreiðan að- gangaö lánsfé og hefur getu til að borga þá helst verðið hátt. Þetta er bara lögmál framboðs og eftirspurnar. Guðrún Árnadóttir, fasteignasali hjá Húsakaupum. Grétar Mar Jónsson alþingismaður segir Síldarvinnsluna í Neskaupstað svíkja bæj- arfélög á Suðurnesjum með gylliboðum um loðnulöndun í höfnum þeirra. Björgólf- ur Jóhannsson, forstjóri Síldarvinnslunnar, segir ásakanirnar tilefnislausar. „Það hefur ekki komið ein padda af loðnu hér í höfnina," segir Grétar Mar Jónsson, alþingismaður og skipstjóri í Sandgerði. Grétar segir forsvarsmenn fyrirtækisins hafa svikið hafharráð Sandgerðisbæjar illa með gylliboðum um innkomu loðnu í bæj- arfélagið, til vinnslu í Loðnubræðslunni á staðnum. Engin loðna hefur komið í bæinn. „Sveitarfélagið er mjög svekkt yfir þessu,“ segir Grétar Mar Jónsson. Loðnan átti að láta sjá sig með skip- um Sfldarvinnslunnar gegn því skil- yrði að bærinn myndi dýpka höfn- ina. Grétar segir dýpkunina hafa verið ósk Sfldarvinnslunnar og að Sandgerðisbær hafi þarna hugsað sér gott til glóðarinnar vegna loðnu- skipa sem áttu að færa veiði sína til Loðnubræðslunnar í bænum. Framkvæmdir við höfnina kost- uðu ríflega 100 milljónir króna sam- kvæmt upplýsingum frá formanni hafnarráðs. Framkvæmdir skila engu Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Sfldarvinnslunnar, segir ástæðurnar fyrir því eðlilegar, verksmiðjur fyrirtækisins hafi einfaldlega verið of margar og að staðið hafi til að loka einhvei^^emn^Ákvo^uivvaHok^ tekin um að loka í Sandgerði," segir Björgólfur. „Þeir vildu ekld einu sinni selja bænum hana áður en hún var rifin,“ segir hann. „Við keyptum þessa verksmiðju árið 1999 og það lá alltaf fyrir að loka henni. Það þýðir ekki að vera vitur eftir á,“ segir Björgólfur. Það sama að gerast í Grindavík „Ég get ekki betur séð en að sama fyrirtæki sé að leika Grind- víkinga eins grátt og það lék okk- ur," segir Grétar. „Það sem er að gerast í Grindavík er að það brann, eins og allir vita, verksmiðjan sem við keyptum í framhaldinu af því," segir Björgólfur, en ákvörðun hef- ur ekki verið tekin um hvað gert verður f framhaldinu. „Þeir skilja okkur Suðurnesjabúa eftir með fjárfestingar upp á fleiri hundruð Útúrsnúningur forstjóra „Ef hann getur lesið í glas spá- konu væri ég til í að líta í það,“ segir Björgólfur um orð Grétars um fram- kvæmdir sem fyrirhugaðar eru í Bjorgoirur Jonannsson segir ásakanir ekki standa undir sér og v þykir ekki nóg að vera vitur eftir á. ' Grindavík. Grétar segir orð Björgólfs ekki svaraverð, og ef þau séu það á annað borð séu þau einungis und- ankomuleið frá alvarlegu málefni. „Þetta er bara hreinn útúrsnúningur hjá honum," segir hann. gudmundur@dv.is milljónir króna og gera ekkert í staðinn." Grétar Nlar Jónsson Stendur hér Irústum Loönubræðslunnar. Sér eftir Loðnubræðslunni og er ósátt- ur við svik Slldarvinnslunnar. Ríkissaksóknari athugar brot á tilkynningaskyldu Lögreglan hætti rannsókn Lögreglustjórinn í Reykjavík mun ekki halda áffam rannsókn á opinbem máli hjónanna Helga Magnúsar Hermannssonar og Bjarkar Baldursdóttur vegna andláts bams þeirra stuttu eftir fæðingu þess. Hinsvegar er verið að endurskoða hvort rannsókn verði tekin upp aftur í þeim hluta málsins sem varðar tilkynninga- skyldu lækna. „Lögreglustjórinn í Reykjavík hætti rannsókn á sínum tíma í þeim hluta sem varðar andlátið vegna ákvörðunar hans um að sækja ekki til saka í þeim hluta málsins," segir Kolbrún Sævarsdóttir hjá ríkissak- sóknara. Lögreglustjóri hætti einnig rannsókn í þeim hluta sem varðar tilkynningaskyldu lækna, en lög- menn hjónanna kærðu í kjölfarið þá ákvörðun lögreglustjóra til embættis ríkissaksóknara. Ragnar Aöalttcintson scgtr enga elglnlega lögreglurannsókn hatá farið fram „Mikil tregða til að fara að lögum í málinu" „Við settum fyrir Lögreglustjórann í Reykjavík að rannsaka tilkynningaskyldu lækna. Hennar er getið í læknalögum. Það þarf að finna hverjum hafi borið að tilkynna andlátið til lögreglu og hvers vegna það hafi ekki verið gert. Síðar ákvað lögreglan að ákæra ekki í þeim hluta málsins og þá ákvörðun hafa foreldrarnir kært til okkar," seg- ir Kolbrún. Þegar Katrín Hilmarsdóttir, full- trúi lögreglustjórans í Reykjavík var innt eftir svörum varðandi gang mála, vildi hún ekki tjá sig um þau. - „Ég ætla ekki að tjá mig um þetta á m i í Katrín Hilmarsdóttir Fulltrúi Lögreglu- stjórans I Reykjavík. Vildi ekki tjá sig um mál- iö þegar eftir því var leitað. þessu stigi þar sem það er í kæm- meðferð," segir hún. „Ákvörðun lög- reglustjórans í Reykjavík um að fella niður rannsókn á tiíkynningaskyldu er til endurskoðunar hjá okkur og bíðum við gagna frá lögreglu um málið," segir Kolbrún. gudrnundur@dv.is Mótmæla Rússaskipum Samtök herstöðvaandstæð- inga hafa sent fréttatilkynningu á flölmiðla vegna komu rúss- nesku herskipanna til Reykjavík- ur. Samtökin árétta að slík her- skip eigi ekki erindi í Reykjavík- urhöfn. Það sé óskiljanlegt að Reykjavíkurborg skuli ítrekað hleypa slflcum drápstólum að bryggju. Einnig mótmæla samtökin fallbyssuskothnð rúss- nesku skipanna sem að sögn var gerð í „virðingarskyni við fs- land". Ekki liggur ljóst fyrir hvort von sé á aðgerðum af hálfu sam- takanna vegna herskipanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.