Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚÚ2005 Fréttir DV Björn gengur á Þingvöllum Á morgun, íimmtudag, mun Bjöm Bjarnason, dómsmálaráöherra og for- maður Þingvallanefndar fara fyrir göngu á vegum nefndarinnar á Þingvöllum. Viðburðurinn ber heitíð Stefna þjóðgarðsins á Þing- völlum og mun Björn því ganga ásamt nefndinni og almenningi frá fræðslumið- stöðinni við Hakið og mun hún enda við Þingvalla- kirkju. Þá mun Þingvalla- nefnd kynna störf nefndar- innar og stefnumörkun þjóðgarðsins. Héraösdómur Vesturlands hefur dæmt Snorra Má Guðmundsson, 19 ára, í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa valdið dauða 15 ára gamallar stúlku í júlí á síðasta ári. Snorri Már sagðist hafa verið á 150 kílómetra hraða þegar slys- ið varð. Dýrt kveðið Á heimasíðu Djúpavogs- hrepps er bent á að sveitarfélag- ið allt býður upp á margvíslegt myndefiii. Á heimasíðunni em birtar nokkrar myndir af gersem- um úr byggðarlaginu og þeir sem eiga skemmtilegar myndir í fór- um sínum hvattír til að koma þeim á framfæri. Þá má finna ljóð og skemmtefhi um sveitarfé- lagið, til dæmis þessa stöku um fegurð Djúpavogs: Konfekt augna í bergi býr/ blasir ætíð glöggum við. Margræð andlit, menn og dýr/ „moderri' og frá gömlum sið. Sivtrúirá Steingrím Siv Friðleifsdóttír segir á heimasíðu sinni að hún hafi fulla trú á að Steingrímur J. Sigfússon, nái að ljúka um sjö hundruð kílómetra göngu sinni þvert yfir land- ið. Þetta segir hún á heima- síðu sinni. Siv segir að Steingrímur sé einstaklega léttur á fæti, en því kynntíst hún sjálf þegar hún fór með honum í ferð um svæðin norðan Vatnajökuls fyrir tveimur árum. Steingrímur fagnar fimmtugsaftnæli sínu í byrjun ágúst. Valhöll skemmd Rúðubrot og önnur skemmdarverk voru unnin í Valhöll í Tungudal við Skutulsfjörð síð- astíiðna helgi. Lög- regluyfirvöld á staðnum eru með málið til rannsóknar og lýsa eftir vitnum sem kunna að hafa orðið vör við grunsamlegar mannaferðir um helgina eða aðfaranótt mánudags. Valhöll var eina húsið sem varð fyrir barð- inu á skemmdarvörgunum þrátt fyrir að mörg íbúðar- og sumarhús standi við fjörðinn. r; ■■■ „Mér finnst þetta mildur dómur," segir Hlynur Björnsson, faðir Jóhönnu Margrétar heitinnar sem lést þegar keyrt var á hana í Bíldudal. Héraðsdómur Vesturlands dæmdi í gær drenginn sem ók á Jóhönnu í eins mánaðar skilorðsbundið fangelsi. Hann var sviptur ökuJeyfi í sex mánuði. Slysið sem kostaði Jóhönnu Mar- gréti, þá 15 ára, lífið varð í júlí árið 2004. Nýkominn með ökuskírteini keyrði Snorri Már Guðmundsson, ungur drengur fæddur 1986, á um 150 kílómetra hraða, að hans sögn, rétt fyrir utan bæinn. Hámarkshrað- inn var 90 kflómetrar. Snorri Már klessti á stúlkuna sem kastaðist 25 metra eftir veginum. Bifreiðin hélt um 190 metra áfram áður en hún stöðvaðist. Stúlkan lést. Dómur kominn „Það er gott að þetta er búið,“ segir Guðmundur Friðriksson, faðir Snorra Más. Sjálfur er Snorri ekki með skráð númer. Á netinu má þó sjá að hann er í Ford Mustang- klúbbi. Auk þess að fá skilorðsbund- inn fangelsisdóm missir Snorri próf- ið í sex mánuði. Hann keyrir því ekki Mustang í bráð. Guðmundur vill lítið tjá sig um afbrot sonar síns. „Nei, ég hef ekkert meira að segja.“ Hljóp á eftir hundi Snorri Már var með tvo farþega'í bflnum. Þeir voru ekki í belti. Frá- sögn farþeganna og vitna gefur glögga mynd af slysinu. Þannig sá Snorri Már stúlkuna ganga eftir veg- arkantinum þegar hann keyrði út úr bænum. Hann sneri við og átti að vera ljóst hvar stúlkan væri. Jóhanna Margrét var með hundinn sinn, Perlu, sem hljóp yfir veginn. Jó- hanna hljóp á eftír honum, beint fyrir bfl Snorra Más sem snarheml- aði, en of seint. Hörmulegt slys Frá þvf keyrt var á dóttur Hlyns Björnssonar hefur lífhans snúist um þetta hörmulega slys. Hann hefur gagnrýnt vegagerðina fýrir að setja ekki upp hraðahindranir á þessum spotta þar sem banaslysið varð. „Þetta er einfaldlega slysagildra," sagði Hlynur í samtali við DV fyrr á árinu. íþróttasvæði bæjarins er við hliðina á veginum og því mikil um- ferð gangandi vegfaranda á þessum kafla. Sérstaklega bama sem kannski em ekki nógu vör um sig. Mildurdómur Hlynur var á sjónum þegar DV náði sambandi við hann. Á vertíð. „Ég heyrði af dómnum á sunnudag- inn og maður hefur verið að melta þetta síðan,“ sagði Hlynur sem telur rétt að varast stórar yfirlýsingar. Byggingarfræöingurinn Ágúst Þór Gunnarsson tapar Lóðalottói vísað frá „Þetta em vonbrigði," segir Ágúst Þór Gunnarsson byggingarfræðing- ur sem sendi félagsmálaráðuneyt- inu stjórnsýsluákæm vegna lóða- happadrættis Hafnarfjarðarbæjar á nýja byggingarlandinu á Völlum. í kæmnni segir Ágúst að bærinn hafi fært yfir 100 milljónir af sameigin- legri eign bæjarbúa á hendur fárra útvaldra. Jafnræðisregla stjórnsýslu- laga hafi verið brotin. Nú liggur fyrir úrskurður í mál- inu. Félagsmálaráðuneytið var Ágústi ekki sammála og vísaði kæmnni frá. Ein af ástæðum fyrir frávísun kröfunnar var sú að Ágúst var ekki einn af þeim sem sóttu um lóð og er því ekki beinn aðili að mál- inu. Hann nýtur því ekki kæruheim- ildar. í viðtali við DV þann sjöunda júlí sagðist Ágúst vera að kæra vegna þess að réttíætiskennd hans var mis- boðið. „Ég var að verja hagsmuni heildarinnar," sagði hann. Þeir sem vom heppnir og fengu úthlutað lóð fengu þær langt undir markaðsvirði. Auðvelt er fyrir þá að selja lóðirnar aftur og græða allt upp í fjórar milljónir. Dæmi vom um að heilu fjölskyldurnar hafi sótt um lóðir. 'Ég skal alveg segja þér hvað ég er að bauka núnaogþar liggur mér lífið á, “ segir Arn- þrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Sögu. „Ég er að koma upp sendi á Suðurlandi og bíð eftir ádsl-tengingu frá símanum. Ég er búin að fá tíðnina 99,1 á Suðurlandi og mér finnst eiginlega aðþetta hefði þurft að gerast ígær. Ég þoli ekki að blða eftir þessu. “ Ágúst Þór Gunnarsson byggingarfræð- ingur Segir niðurstöðuna vonbrigði og úti- lokar ekki aö fara lengra með málið. "Maður er allavega búinn að láta reyna á þetta," sagði Ágúst og útilok- aði ekki að hann haldi áfram að vinna í málinu. „Ég er bara að skoða þetta, ekki búinn að taka neina ákvörðun." johann@dv.is Jóhanna Margrét Hlynsdóttir Varmikill dýravinur og var úti á gangi með hundinum sinum þegarslysiö varð. „Mér finnst þetta samt mildur dóm- ur,“ bætti hann við. f dómnum yfir Snorra Má er hann sakfelldur fyrir að valda „mannsbana af gáleysi". Foreldrar Jóhönnu Margrétar fá þó ekki bætur. Snorri Már er ekki sagður hafa sýnt nógu mikið gáleysi eða ásetning til að lagaákvæði um bótakröfu sé full- nægt. simon@dv.is I Hlynur Björnsson, faðir I Jóhönnu Er hér við stað- J inn þar sem dóttir hans lést.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.