Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 1J
DV Fréttir
Sindri Sindrason Ætlar
laðleikasérogláta
drauma rætast með að-
stoð arkitektsins sem
teiknaði íslenska sendi-
ráðið í Berlín.
Arnarnesið
Fáar lóðir eftir
en Sindri tryggði
sér eina I tlma.
mnm
afí vtfjum
ems
Gigtarsjúklingum vísað frá Reykjalundi vegna plássleysis
Þúsundir íslendinga á biðlista
„Hjá okkur bíða 1676 eftir þjón-
ustu,“ segir Hjördís Jónsdóttir
lækningaforstjóri á Reykjalundi.
Lengstur er biðlistinn í offitu-
prógram, gigtarmeðferðir og á
geðdeildir. „Meðaltalsbið í gigtar-
meðferð er tæp tvö ár,“ segir Hjör-
dís. Á biðlista eftir gigtarmeðferð
eru 276 manns en þar voru aðeins
110 teknir inn í fyrra, sem þýðir að
helmingnum var vísað frá. Þá bíða
um 300 manns eftir plássi á endur-
hæfingardeildir geðsviðs. Reykja-
lundur sér um endurhæfingu og
hefur það að markmiði að koma
fólki í gott ástand með sinn sjúk-
dóm og gera það hæfara í þjóðfé-
laginu. Hjördís segir endurhæf-
ingu mikilvæga til að fólk þurfi
minni aðstoð og geti unnið.
Samkvæmt upplýsingum á vef-
síðu Landspítalans eru yfir tvö
þúsund einstaklingar að bíða eftir
Þúsundir bfða eftir aðgerðum Biðlistarn-
ir lengjast með hverjum deginum.
skurðaðgerð þar. Alls bíða 3529
einstaklingar eftir aðgerðum eða
annarri þjónustu á vegum Land-
spítalans. Sem dæmi um biðtíma
má nefna að bið í brjóstaminnk-
unaraðgerð er tæp tvö ár og biðin
eftir augnsteinaaðgerð er rúmir
átta mánuðir.
„Alls bíða 30 manns eftir plássi
á alzheimerdeild Landakotspít-
ala," segir Steinunn K. Jónsdóttir,
félagsráðgjafi á Landakotsspítala.
Steinunn segir fólki forgangsraðað
eftir þörf og að biðin geti tekið frá
viku og upp í þrjá mánuði.
Steinunn segir tvo þriðju þeirra
sem koma á alzheimerdeildina
vera ófæra um að sjá um sig sjálfa
og séu því að bíða eftir plássi á
hjúkrunarheimili en sú bið tekur
3-12 mánuði. „Starfsfólk og að-
standendur vilja að biðlistarnir
gangi hraðar og sumum finnst
biðin eftir þjónustu löng," segir
Steinunn. Hún segir mismunandi
hvernig aðstæður fólk búi við á
meðan það bíður eftir plássi en Steinunn K. Jónsdóttir, félagsráðgjafi á
segir að sumir búi einir. alzheimerdeild Landakotsspftala „Meö-
altalsbið i gigtarmeðferð er tæp tvö ár.“