Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Qupperneq 12

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Qupperneq 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 Fréttir DV Borgarleikar í Reykjavík Fyrir helgi var gengið frá því að Borgarleikamir fara fram í Reykjavík árið 2007. Borgarleikarnir eru alþjóðleg íþróttakeppni fyrir þrettán til sextán ára ungmenni og hafa verið haldnir árlega frá því árið 1960. Á leikunum taka þátt keppendur frá 35 borgum og má búast við allt að tvö þúsund kepp- endum. Borgaryfirvöld geta ráðið því í hverju er keppt og fer það eftir að- stöðu hveiju sinni. Meðal greina sem keppt verður í í Reykjavík er knatt- spyrna, handbolti og sund. Þrír Rússar handteknir Þrír rússneskir sjómenn voru handteknir í Hafnar- firði í fyrrakvöld vegna ölv- unar og óspekta. Mennimir vom handteknir í Fomu- búðum, en það er gata ná- lægt höfninni. Sjómennimir em í áhöfn erlends togara sem liggur um þessar mundir í Hafn;irfjarðarhöfn. Lögreglan færði mennina í fangageymslur þar sem þeir vom látnir sofa úr sér. í gærdag var þeim svo sleppt. Fyrir athæfi sitt þurftu þeir að greiða sekt. Skútaívanda Neyðarkall barst til Landhelgisgæsl- unnar í gegnum gervi- hnött síðdegis í gær. Kallið kom frá breskri skútu sem lent hafði í vandræðum suðaustur af landinu. Flugvél Landhelg- isgæslunnar, TF-SYN var send á staðinn. Samkvæmt upplýsingum Landhelgis- gæslunnar náði flugvélin sambandi við skútuna og kom í ljós að stýri hafði brotnað eftir að hún fékk á sig brotsjó. Innanborðs- menn unnu að viðgerðum. Skútan er nú á leið til Skotlands. „Menn eru mjög kátir almennt hérá Stykkishólmi. Hér er allt I uppsveiflu. Menn eru kátir og brosa aftur fyrir eyru þó rigni afog til," Landsíminn segir Pétur Ágústsson hjá Sseferð- um.„Hólmarar eru löngu búnir að jafna sig eftir hrun skeljar- innar fyrir um tveimur árum. Menn bitu í skjaldarrendur og fóru í aðra hluti. Hér er mikil gróska og allir sem nenna hafa næga vinnu. Ásókn er mikil í húsnæði í Stykkishólmi enda eitt allra fallegasta bæj- arstæöi landsins.“ Nýtt vegaskilti um leiðbeinandi hraða var afhjúpað fyrr í sumar. Merkið getur ver- ið hættulegt túristum enda sýna erlendir ferðabæklingar að skiltið þýðir það sama og aðreinarnúmer í öðrum löndum. \SLANO vantar" Merkingar við vegi em oft handa- hófskenndar og rangar" segir Stefán Ásgrímsson hjá félagi íslenskra bif- reiðaeigenda. Stefán segir þetta sér- staklega eiga við vega- og gatna- framkvæmdir. Rangar og villandi vegamerk- ingar Stefán segir furðulega algengt að umferðar- og leiðbeiningaskilti séu staðsett þannig að þau skyggi á út- „Merkingar við vegi eru oft handahófs- kenndarograngar" sýni og auki slysahættu. „Það rfldr kæmleysi í sambandi við umferðar- merkingar og bráðbirgðamerki eru ýmist vitlaus eða ólögleg." Sem dæmi um vitlausar merkingar nefnir Stefán skilti á Miklubraut sem sýnir að gatan þrengist. Gallinn er bara sá að skiltið sýnir að hún þrengist frá hægri en hún þrengist frá vinstri. Annað dæmi er við bygginga- framkvæmdir á mótum Ægisgötu og Mýrargötu, þar stendur vinnupallur út í götuna við umferðarljós. Þar hefur verið látið duga að mála „var- úð" á krossvið- arplötu sem hengd hefur verið á vinnu- pallana. imsson FÍ:, „Umferöar- ríöa rangar eða þaer ,/egt skilti um vegavmnu. FÍB fær kvart- anirfrá erlend- um ferða- mönnum „Ef við bemm vega- merkingar hér á landi saman við það sem gerist annars- staðar, t.d. í Þýskalandi, sést hversu illa við stöndum okkur," segir Stefán. Hann segir kvartanir berast frá erlendum ferðamönnum sem kvarti yfir ónógum merkingum við þjóðvegi ekki síst á fjallvegum þar sem engar merkingar em um beyjur og blindhæðir, t.d. á Kjalvegi. Mismunandi vegamerkingar eftir löndum Jón Rögnvaldsson vegamála- stjóri segir vegamerkingar mismun- Ólöglegt um vegavinnu. '.skilti innu. : FÍB hefur borist fjölda kvartana frá erlendum ferðamönnum vegna ónógra vegamerkinga hér á landi. Stefán Ásgrímsson, talsmaður FÍB, segist einnig undrandi á röngum og ólöglegum vegamerkingum í tengslum við gatnaframkvæmdir í Reykjavík. andi eftir löndum. Þannig þekkj- ast t.d merkingar eins og „ein- breið brú“ og „malbik endar" hvergi nema hér á landi. „Leiðbeinandi hraðaskilti finnst ekki í öllum lönd- um og það getur kostað rugling þeg- ar fólk fer á milli landa," segir Jón. Jón segir að fyrsti áfangi skiltanna hafi verið sett upp í sumar, á þjóð- vegi eitt. Afgangurinn verður settur upp á næsta ári. Jón segist ekki hafa fengið mikið af kvörtunum um vegamerkingar frá erlendum ferða- mönnum. OgVodafone opnar síma samkeppnisaöilans Samkeppnin harðnar á farsímamarkaðinum Þegar keyptur er GSM-sími hjá Símanum er honum í ákveðnum tÚ- vikum læst þannig að einungis er hægt að nota símakort frá Símanum. OgVodafone, stærsti samkeppnisað- ili Símans, hefur hins vegar opnað þessa síma í baráttu sinni við mark- aðsráðandi stöðu Símans. Erlendis er ólöglegt að opna GSM-síma og er það einungis gert undir borðum í skuggalegustu raf- tækjaverslununum. Samkvæmt upplýsingum DV eru engin lög hérlendis sem banna þetta athæfi. Þegar blaðamaður spurðist fyrir um þetta i verslun OgVodafone var honum sagt að það eina sem hann þyrfti að gera væri að mæta í einhverja af verslunum þeirra og þetta væri gert á meðan hann biði. „Já, við höfum opnað læsingar á símunum hjá fólki." segir Sverrir Hreiðarsson, markaðsstjóri OgVodafone. „Sjálfir seljum við ekki læst símtæki. Við erum á móti því að fólk sé læst í einhverjum viðskiptum sem það sækist kannski ekki eftir. Ef fólki líkar ekki þjónustan ætti það að geta verslað þar sem það vill. Það er okkar sýn á þetta. Þeir niðurgreiða símana og læsa þeim síðan í von um að viðskiptavinurinn geti bara notað þá í þeirra kerfi." Eva Magnúsdóttir, upplýsinga- fulltrúi Símans, segir þetta eðlilegan gang viðskiptanna. „Þetta er bara þjónusta sem er í boði hjá báðum fyrirtækjum. Það eru tilboðssímar sem eru læstir. Símarnir eru ódýr- ari ef þeir eru keyptir með þjón- ustu. Þetta er bara eðli sam- keppninar." Sverrir segir aflæsingarnar leið OgVodafone við að berjast gegn ósanngjamri samkeppni „Þeir hafa markaðsráðandi stöðu á farsíma- markaði. Það skekkir samkeppnina ef fyrirtæki sem hefur mun dýpri vasa en við getur ausið peningum í að læsa símtækjum. Við trúum bara á frjálsa sar keppni." sverrir Hreiðarsson hjá OgVoda- fone Starfsmenn fyrirtækisins hafa opnað læsingar á simum fólks. Eva Magnúsdóttir upplýsingafulltrúi Símans Segirþetta eðlilegan gang viö- skiptanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.