Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Síða 13
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚU2005 13 Herjólfurað fyllast Stemningin fyr- ^ - ir Þjóðhátíð í ^ Eyjumstig- um degi sem dregur nær verslunarmannahelginni, sem er óvenju snemma á ferðinni í ár. Nú er svo komið að nær allar ferðir með Herjólfi til og frá Eyja í kringum Þjóðhátíð eru orðnar fullar. Laust er í ferðir fyrri hluta vikunnar 24. til 30. júlí en síðasta ferð fimmtudaginn 28. júlí er næturferð og fer klukkan tvö að nóttu til frá Þorláks- höfn. Einnig er laust til baka þriðjudaginn annan ágúst klukkan fjögur að degi til frá Eyjum. Baggalútur með geisla- disk Baggalútur.is hefur um árabil verið ein vinsælasta íslenska heimasíðan, en þar má finna vitleysu um allt á milli himins og jarðar. Baggalútsmenn hafa und- anfarin ár gefið út jólalag Baggalúts, og er að alast upp kynslóð sem finnst ekki jólin vera komin fyrr en Baggalútar hafa sent frá sér jólalagið sitt. Nú hyggjast þeir félagar gefa út heilan geisladisk, og er hægt að nálgast sýnishom af einu laganna, „Settu brennivín í mjólkurglasið vina", í gegn- um baggalutur.is. Vatnslekivið Stórhöfða Slökkvilið höfuðborg- arsvæðisins var kallað út í gærmorgun vegna vatnsleka við Stórhöfða 17. Þá hafði kalt vatn lekið af efri hæð hússins niður á neðri hæð. Slökkviliðið kom á stað- inn og saug upp vatnið með dælum en svo virð- ist sem nokkurt tjón hafi orðið, sérstaklega á neðri hæð hússins. Algengt er að fólk gleymi að skrúfa fyrir loka og krana og beinir slökkvilið höfuð- borgarsvæðisins þeim tilmælum til fólks að vera vakandi gagnvart slíku. Óli Gneisti Sóleyjarson varð fyrir því að grein sem hann tók saman um sögu hljóm- sveitarinnar Queen var stolið og hún birt á vefsvæði Símans - Huga - í leyfisleysi og án þess að heimilda væri getið. Það telst skýlaust brot á höfundarrétti. Vefstjóri Huga, Jóhannes Reykdal, þumbaðist lengi við áður en hann fjarlægði greinina. hugi.is ÞegarDVfórtil að athuga grein Óla Gneista kom i Ijós að búiðvar aðfjarlægja hana.þá eftirnokkurt stapp við vefstjóra. „Enginn vilji virðist vera hjá þeim hjá Huga að gera neitt í þessu höfundarréttarbroti," segir Óli Gneisti Sóleyjarson sem heldur úti bloggsíðu á netinu. Fyrir nokkrum árum tók hann saman grein á síðuna um sögu hljómsveitarinnar Queen. Hann varð þess svo var að greinin var höfð til birtingar á hugi.is án þess að nokkurra heimilda væri getið. „Þetta voru einhverjar tólf ára gamlar stelpur sem tóku greinina og límdu þarna inn," segir Óli sem seg- ist ekkert eiga sökótt við stúlkumar. Hins vegar þykir honum furðulegt að vefstjóri Huga skuli ekki gera neitt í málinu. Mikið sótt síða Hugi.is er vefsvæði í eigu Símans sem einkum er sótt af unglingum og er eitt af fimm mest sóttu vefsvæð- um landsins. Óli hefur ítrekað sett fram athugasemdir við vefstjóra Huga, Jóhannes Reykdal, sem tekur erindi hans jafnan fálega. „Þeir hafa ekkert gert í þessu þrátt fyrir ábend- ingar. Eg hef sent Jóhannesi nokkra tölvupósta en hann er hættur að svara mér. Nennir ekki að ræða við svona nöldurseggi eins og mig," seg- ir Óli Gneisti. Jóhannes Reykdal má ekki svara DV hafði samband við Jóharmes Reykdal, ritstjóra fjölmiðilsins, en fékk þau sérkennilegu svör að hann gæti ekki svarað fyrir vinnubrögð á Huga. „öll samskipti við fjölmiðla þurfa að fara í gegnum fjöhniðlafull- trúa Símans sem er Eva Magnús- dóttir." Þegar DVleitaði eftir svörum hjá Evu var því svarað til á Símanum að hún væri í sumarfríi og enginn væri til að svara fyrir erindi sem á hennar borð kæmu á meðan. Brot á höfundarétti Róbert Marshall formaður Blaða- mannafélagsins velkist ekki í vafa um að þarna sé um skýlaust brot á höfundarrétti að ræða. „Samkvæmt höfundarréttarlögum er leyfilegt að vitna í klausur sem birtast á vefnum líkt og þekkist í ýmsum prentmiðl- um. En algerlega óleyfilegt er að taka heilu greinarnar og birta án leyfis, ég tala nú ekki um án þess að geta heimilda," segir Róbert og vill meina að mjög sé á reiki skilningur á höf- undarrétti á netinu. Greinin fjarlægð Óli Gneisti telur ljóst að annað hvort geri þeir á Huga sér enga grein fyrir því að höfundarrétt beri að virða hvort sem það er á netinu eða ekki eða að þeim sé slétt sama þó höfundarréttur sé fótum troðinn. „Ég fór fram á greiðslu fyrir greinina í raun til að benda þeim á að þetta væri ekki einfalt mál, þeir væru að hirða eign mína. En þeir firra sig algerlega ábyrgð." Þegar DV fór til að leita að grein Óla Gneista á Huga var búið að taka greinina út. En það virðist ekki hafa gengið þrautalaust fyrir sig að fá það í gegn. >*r$lÍ O •• ♦** Róbert Marshall Tel- ur engan vafaáþvi leika að i þessu tilfelli hafi verið um brot á höfundarrétti að ræða Óli Gneisti Vildiekki una því að Hugi gerði ekkert i hinum harðsvíraða ritstuldi. Latibær á breiðskjá Um ein milljón manns hefur skoðað Norræna skálann á heimssýningunni EXPO sem haldin er í Japan um þessar mundir. Þjóðardagur íslands verð- ur haldinn hátíðlegur föstudaginn 15. júlí nk. Þá verður sérstök áhersla lögð á ísland og íslenska menn- ingu á heimssýningunni. íslenskir listamenn koma fram og verður íslensk dag- skrá allan daginn. Einnig verða sýndir íslensku barnaþættirnir Latibær og Litla lirfan ljóta á tuttugu metra breiðum skjá við tíu þúsund manna útisvæði. Stöð 2 missir dampinn Reykjavíkurborg lokar gæsluvöllum Strákarnir dala í fjölmiðla- könnun Gallup sem framkvæmd var í júní síðastlið- inn kemur fram að áhorf á fréttir Stöðvar tvö minnkar töluvert frá því í síðustu könnun sem framkvæmd var í apríl. Þá var áhorf á fréttir 31,7 pró- sent en er nú komið niður í 25,3 prósent. Fréttirnar eru þó enn sem fyrr vin- sælasti dagskrár- Áhorfið dalar Áhorfá Strákana hefur lækk- liður stöðvarinn- að um tæp sexprósent. ar. Á sama tíma helst áhorf á fréttir RÚV stöðugt í staklega meðal rúmlega fjörutíu prósentum. Fréttir Stöðv- ar tvö er þó ekki eini dagskrárlið- urinn sem lækkar töluvert í áhorfi frá því í apríl. Næst vinsælasti dagskrárliðurinn þá var „Það var lagið" með hinum síhressa Hemma Gunn. Þátturinn er þó enn í öðru sæti yfir dagskrár- liði stöðvarinnar. Þá dala Strákarnir í áhorfi um tæp sex prósent en þeir hafa verið með vinsælasta efni stöðvarinnar, sér- unga fólksins. 22 konur missa vinnuna Reykjavíkurborg hefur tekið ákvörðun um að loka öllum gæslu- völlum borgarinnar yfir vetrartím- ann. Frá þessu segir á fréttavef RÚV. Vetrarlokunin mun heíjast 1. sept- ember á þessu ári. 22 gæslukonum, sem margar hverjar hafa unnið hjá gæsluvöllum um áratugaskeið, er ekki skemmt vegna ákvarðanarinn- ar. í kjölfar hennar munu þær missa vinnuna. Gæsluvellir eru ekki nýlunda hjá Reykjavíkurborg en síðustu ár hefur þeim farið fækkandi. Eins og staðan er f dag eru sex gæsluvellir starfandi í Reykjavíkurborg, en þeim mun verða lokað í haust. Ekki er ljóst hver viðbrögð almennings eru, en lokan- ir gæsluvalla hafa oft og tíðum verið mikið hitamál Reykvíkinga. Það sem einkennt hefur starfsemi þeirra er skammtímavistun. Foreldrar geta Gæsluvöllur Nú munu börn ekki geta sótt gæsluvelli á vetrartíma. komið með böm sín og leyft þeim að dvelja í þijár klukkustundir fyrir 100 krónur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.