Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚU2005 Fréttir DV Páfacjaukur uppljóstrar Páfagaukur nokkur í E1 Salvador hjálpaði lögreglu við að koma upp um ræn- ingja á dögunum. Ræningj- amir tóku páfagaukinn ásamt öðm þýfi þegar þeir bmtust inn í hús í San Salvador. Þegar lögreglan stöðvaði bfl innbrotsþjóf- anna við venjubundið eftir- lit heyrðist í páfagauknum: „Rán, rán." Talsmaður lög- reglu sagði að þessi köll páfagauksins hefðu fyllt lögreglu gmnsemdum sem leiddu til þess að hún fann þýflð og tók þjófana hönd- Nakinn maður öskrarátré Dieter Braun, fjörutíu og þriggja ára Þjóðverji, var handtekinn lýrir skömmu. Ástæða hand- tökunnar var sú að hon- um hafði verið ráðlagt af hjónabandsráðgjafa að fara út í skóg og öskra á tré til að fá útrás fýrir reiði sína. Nektin var hins vegar ekki að ráði ráð- gjafans, heldur tjáði Diet- er lögreglu að hann slak- aði betur á ef léttur and- vari fengi að leika um nakinn likama hans. Lög- reglan sagði hins vegar að þetta uppátæki virkaði ekld róandi á aðra gesti skógarins og lagði fram kæm á hendur honum. Amma hættir ívændi Sextíu og þriggja ára þýsk vændiskona, hefur tilkynnt blaðinu Bild að þegar sex- tugasta og fjórða árið banki upp á sé tímabært að hætta í bransanum. Konan, sem hefúr allan sinn starfsaldur unnið í stjómmálahverfi Berlínarborgar, segist enn hafa mikinn Ijölda fastakúnna. Eftir fall Berlín- armúrsins var vændiskon- um hverfisins gert að flytja sig í önnur hverfi borgarinn- ar en vændisamman fékk sérstakt leyfi til að halda iðju sinni áfram óhindrað. Með þokuljós í engri þoku Á sunnudagskvöldið hafði lögreglan í Keflavík afskipti af ökumanni sem var með ólöglegan ljósabúnað á bifreið sinni. í stað stöðuljósa var hann með blá ljós og jafnframt var hann með þokuljósin á. Engin þoka var þetta kvöld og þess vegna algjörlega ónauð- synlegt að hafa þokuljós- in kveikt, auk þess sem óleyfilegt er að nota þau í þéttbýli. Að sögn lög- reglunnar aftengdi öku- maður bifreiðarinnar bláu ljósin og slökkti þokuljósin. Hann má búast við sekt. Menningarlegur arfur íraks er í stórhættu eftir margra mánaða stríðsrekstur Bandaríkjamanna í landinu. Sérfræðingar telja að óbætanlegt tjón hafi verið unnið í þessari fornu vöggu siðmenningar í heiminum. Mushin Hasan Safn- stjóri íraska þjóðarsafns■ ins niðurbrotinn innan um rústir safnsins. Engin rúða brotnaði í olíumálaráðuneyti íraks á meðan glæpa- menn létu greipar sópa um þjóðargersamar íraks. Bandarískir hermenn töldu mikilvægara að vernda olíuna en menningar- verðmæti. Þegar Íraksstríðið hófst árið 2003 var stjórn Bush yngri ítrekað bent á mikilvægi þess að verja fornleifar írösku þjóðarinnar fýrir ránum og skemmdarverkum. f fröskum fornmunum skilað Bandarískir embætismenn skoða fornmuni sem komið hafa i leitirnar. kjölfarið var öllum æðstu yfir- mönnum bandaríska hersins í írak sendur listi yfir sextán mikilvæg- ustu stofnanirnar sem þeim bæri að verja, ofar öllu. Efst á þessum lista voru Þjóðarbankinn í írak og Þjóðarsafnið í frak. í sextánda sæti á þessum sama lista var svo olíu- málaráðuneytið sem var svo eini staðurinn sem bandarískar her- sveitir raunverulega vörðu, enda brotnaði þar ekki ein rúða á meðan á átökum stóð. Tjónið gífurlegt John Curtis hjá breska þjóðar- safninu sagði á ráðstefnu í fyrra, þar sem listaverkaglæpir voru teknir fyrir, að ekki einu sinni helmingurinn af fjörutíu mikilvæg- ustu gripunum sem stolið hefur verið hefðu skilað sér aftur. Einnig væri ennþá verið að reyna hafa upp á um átta þúsund gripum sem voru hluti af fimmtán þúsund hlut- um sem stolið var úr sýningarsöl- um safna víðsvegar um írak. Ljóst er að stór hluti þessara gripa, sem talist getur óbætanlegur menning- Ekki einu sinni helm- ingnum affjörutíu mikilvægustu gripun- um sem stolið hefur verið hefurskilað sér aftur. arlegur arfur mannkynsins í heild, mun aldrei skila sér að nýju. Verðmæt skjöl Fornleifafræðingar víðs vegar halda þó í vonina um að stærri hluti fornmunanna muni skila sér aftur en raunin er í dag, og er það í sjálfu sér alltaf möguleiki. Öðru máli gegnir um hið gífurlega magn mikilvægra skjala og bóka sem orðnar eru að ösku. Ef marka má Humberto Márquez, rithöfund frá Venesúela, sem skrifaði bókina „Historia Universal de La Destrucción de Los Libros", má reikna með að um milljón bækur og tíu milljónir skjala hafi orðið eldi að bráð þann 14. aprfl 2003. Þar má nefna hin keisarlegu skjöl Ottóman-veldisins og ýmis rit sem tengjast sköpun íraks. Endurheimtur forngripur Bandariskur hermaður handleikur einn affáum fornmun- um sem endurheimtir hafa verið I írak. Of fáliðaðir Þrátt fyrir að bandarísk stjórn- völd hefðu heitið því að reyna með öllum tiltækum ráðum að verja þessa menningarlega mikilvægu staði er raunin önnur. Yfirmenn hjá bandaríska hernum héldu því fram að þeir væru einfaldlega of fá- liðaðir til að manna alla þessa staði. Ekki gefa fornleifafræðingar mikið fyrir þá skýringu og benda á að bandaríkjamenn hefðu ekki átt í erfiðleikum með að að hrista fram úr erminni tvö þúsund hermenn til að standa vörð um olíulindir íraka, sem virðast vera stjórnvöldum í Bandaríkjunum ofar í huga en mörg þúsund ára saga mannkyns. hordur@dv.is Sigur Rós sendir frá sér plötu Platan heitir Takk Fellibylurinn Denni dæmalausi eirir engu Tala látinna vex Mikil flóð Gffurleg flóð hafa orðið afvöidum fellibylsins en þessi mynd var tekin ÍFIórfda í Bandaríkjunum. Tilkynnt hefur verið um væntan- legan útgáfudag nýjustu afurðar Sig- ur Rósar, sem mun bera nafnið Takk. Hljómplötufyrirtækið EMI mun gefa plötuna út þann tólfta september um heim allan, ef undan er skilin Norður-Ameríka. Þar verð- ur platan gefin út á vegum útgáfu- fyrirtækisins Geffen daginn eftir. Sigur Rós hefur ekki sent frá sér plötu f um þrjú ár, eða síðan nafn- lausa platan () kom út. Þeirri plötu gekk mjög vel og fór hún beint í fimmtugasta og fýrsta sæti Bill- board-listans fyrstu vikuna, og seld- ist í rúmlega tvö hundmð þúsund eintökum allt í allt í Bandaríkjunum einum saman. Lög af plötunni em víst þegar farin að heyrast á hljóm- leikaferð sveitarinnar sem nú stend- ur yfir og segja gámngar flest lag- anna sungin á íslensku. Ljóst er að margir munu bíða spenntir eftir að Sigur Rós Talið er að megnið afplötunni Takk verði sungið á islensku, en ekki á von- lensku eins og á piötunni (). platan Takk komi í verslanir enda á sveitin marga aðdáendur jafnt hér á landi sem erlendis. Tala látinna af völdum fellibyls- ins Denna dæmalausa heldur áfram að aukast en talan er nú komin upp í ellefu á eyjunni Haítí. Fellibylurinn náði ströndum Haítí síðastliðinn þriðjudag og þurfti íjöldi fólks að yfigefa heimili sín af hans völdum. Mikil rigning hefur orðið á eyjunni í kjölfar fellibylsins og hafa uppskerur bænda þurft að þola gífurlegt tjón af völdum flóða sem hafa skolað öllu lauslegu á brott. Fellibylurinn var ekki jaín kröftugur þegar hann kom að ströndum Flórída og spáð hafði verið, en íbúar á svæðinu höfðu bú- ist við jafn mikilli eyðileggingu og varð af völdum ívans grimma sem herjaði á sama svæði síðastliðinn semptember. Þrátt fyrir að eyðilegg- ingin sé ekki jafn mikil og búist var við, er ljóst að um hálf milljón við- skiptavina raforkufyrirtækja í fjómm fylkjum Bandaríkjana em án raf- magns. Lúdegt þykir að svo verði áfram næstu þrjár vikurnar á fjölda heimila.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.