Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Blaðsíða 21
I Robson vill táninga til WBA Bryan Robson, knattspymu- stjóri West Bromwich Albion, hef- ur mikinn áhuga á að fá til sfn tvo unga leikmenn frá Stockport County, þá James Spencer og Michael Raynes. „Þetta eru strákar sem eiga eftir að verða virkilega góðir, ef rétt er á öllu haldið. Ég hef áhuga á að fá þá til WBA og mun reyna eftir fremsta megni að kaupa þá til félagsins. Báðir þessir strákar eru reynslumiklir miðað við aldur og hafa spiiað með aðai- liði Stockport í langan tíma. Best væri að fá þá til reynslu til þess að sjá hvemig þeir passa inn í vinnu- umiivertið sem við höfum skapað hérna. Þá fyrst sér maður hvort þeir myndu gefa eitthvað af sér." Robbie Blake á leiðinni til Leeds Robbie Blake, leikmaður Birmingham, er á leiðinni til Leeds United fyrir um ÖUO þúsund pund, en hann var keyptur tii Birming- harn City frá Burnley í janúar fyrir rúmlega eina milljón punda. Kevin Blackwell, knattspymustjóri Leeds United, telur öruggt að Blake myndi standa sig vel hjá Leeds. „Blake mun færa okkur fleiri möguleika í sóknarleiknum sem hafa ekki verið til staðar héma lengi. Blake hefur lengi ver- ið uppáhaldi lijá mér og á skilið að fá að láta ljós sitt skína í hverri viku. Hann hefur ekki fengið tæki- færi til þess að gera þetta hjá Birmingham og því vona ég irtni- lega að hann komi til Leeds United, því hér mun hann fá að spila í hverri viku.“ Newcastle gæti mætt Deportivo Newcastle tekur þátt í Intertoto-keppninni í sumar og vonast eftir því að komast í evr- ópukeppni félagsliða, með góðum árangri í þerri keppni. Graeme Souness, knattspymustjóri Newcastle, ætlar sér að nota aÚan hóp sinn í keppninni og vonast eftir því að þurfa ekki að mæta Deportivo. „Ef Deportivo vinnur sinn leik, og við vinnum okkar, þá munum við mætast. En þetta eru erfiðir leikir. Mörg stór félög taka þátt í keppninni og þess vegna munum reyna mikið á leikmanna- hópinn okkar. Því miður getur Scott Parker ekki verið með okkur í þessum leikjum en hann or enn- þá að ná sér af / V meiðslunum Msem hann * iilaut í fyrra hjá Chelsea." ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 21 20 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 Róberti Marshall líst ekkert á að spila fótbolta í 4380 metra hæð Þetta yrði hreinn viðbjóður „Þetta yrði hausverkur, maga- verkur, niðurgangur og uppköst. Hreinn viðbjóður," segir hinn kunni fjölmiðlamaður Róbert Marshall um hvemig það væri að spila kappleik í 4380 metra hæð. Róbert er mikill áhugamaður um fjallasport og hefur meðal annars náð upp á tind Kilimanjaro í Afríku, sem er hæsta fjall þeirrar heims- álfu, 5895 metrar á hæð. „Þú ert farinn að finna vel fyrir þunna loftinu í 3000-3500 metra hæð. Þá ferðu að finna fyrir mæði og þreytu við minnstu áreynslu. I 4380 metra hæð ertu farinn að finna fyrir verulegum óþægindum jafnvel á fyrsta eða öðrum degi f þeirri hæð. Að vera nýkominn í þessa hæð og spila strax heilan fót- boltaleik er einfaldlega hættulegt," segir Róbert. „Þetta er öðmvísi þegar farið er upp í þessa hæð hægt og rólega. Ég get nefnt sem dæmi að upp Kilimanjaro er mögulegt að fara til- tölulega auðvelda leið upp á topp sem er í raun bara aflíðandi brekka upp fjallið. Hins vegar deyja árlega um tfu manns þegar þeir fara þá leið ein faldlega vegna þess að þeir fara sér of hratt og veikjast mjög illa," segir Róbert og bendir á að gmnnbúðirnar á Mount Everest, hæsta fyalli heims, em í tæp- lega 5000 metra hæð. „Og þar em menn í um þrjár vikur að venj- ast loftinu áður en þeir fara hærra og það segir sitt. Ef það væri ekki fyr- ir 2-3 vikna undirbúning myndi ég halda að það yrði viðbjóðslegt að spila fótbolta í þessari hæð. Einfald lega kvöl og pína," segir Róbert. Sport DV DV Sport Þar sem súrefnisgríman er mikilvægari en takkaskúrnir í 4380 metra hæð í Andesfj öllunum í Perú liggur sá knattspyrnuvöllur sem er staðsettur hæst yfir sjávarmáli, Daniel A. Carrion-völlurinn. Það er þar sem smáliðið Unios Minas spilar heimaleiki sína og þar sem súrefniskútar og öndunargrímur eru nauðsynlegir til að halda heilsu - og jafnvel lífi. Andstæðingar Union Minas vita hveiju þeir eiga von á þegar keppn- isrútan flytur þá um sanddrifnar fjallshlíðarnar á leið í smábæinn Cerro de Pasco. Þar er ekki eitt tré að finna - aðeins mold og stöku strá. Þar búa 70 þúsund manns sem hafa lífsviðurværi sitt af fjölda kopar- náma sem staðsettar em allt í kring- um bæinn. Það þykir verðug áskor- un að taka göngutúr f ölpum Perú svo það virðist nánast óhugsandi að spila 90 mínútna knattspymuleik. Engu að síður er það vikulegur við- burður hjá leikmönnum Union Minas. Súrefni en ekki vatn Rannsóknir tengdar knatt- spymuheiminum hafa sýnt að um leið og farið er yfir 1500 metra gmnnhæð yfir sjávarmáli minnkar framlag og úthaíd leikmanna. Svo einhvern tölfræðilegan samanburð sé hægt að hafa má nefna að við hveija 1000 metra sem bætast ofan á gmnnhæðina minnkar hámarks- framlag meðalmanns um 10%. f 4380 metra hæð, þeirri sem Daniel „Loftið er svo gríðarlega þunnt að íhálfleik er það ekki vatnið gamla og góða sem er for- gangsatriði hjá leikmönnum heldur er byrjað á því að dreifa á þá súrefniskútum" A. Carrion-völlurinn er staðsettur í, er loftið svo gríðarlega þunnt að leikmenn geta að algjöru hámarki spilað af 75% krafti. Minnsta hreyf- ing getur valdið því að leikmenn í toppformi taki andköf og langur sprettur getur beinlínis verið lífs- hættulegur. í hálfleik er það ekki vatnið gamla og góða sem er forgangsatriði hjá leikmönnum heldur er byrjað á því að dreifa til þeirra súreftiiskútum. Súrefnisinntakan f svona þunnu lofti er svo lítil að lungun geta auð- veldlega fallið saman ef ekki er aðgát höfð og allskyns bjúgsöfnun getur átt sér stað. Þá er það undantekning ef einhverjir leikmenn þjást ekki af miklum öndunarerfiðleikum á ein- hveijum tímapunkti í leiknum. Ekki má gleyma kuldanum sem er í svona mikilli hæð en meðalhitinn á hefð- bundu keppnistímabili er rétt um -3 gráður. Pynting að spila á veilinum En það eru ekki eintómir gallar sem fylgja því að spila á Daniel A. Carrion-vellinum. Þessar óbærilegu aðstæður venjast með tímanum og eiga flestir innfæddir ekki í miklum vandræðum með að klára leik. Auk þess sýnir sagan að Union Minas tapar venjulega ekki þegar það spil- ar á heimvelli. Völlurinn rúmar um átta þúsund manns og er löglegur á alþjóðlegan mælikvarða og því hefur landslið Perú tekið upp á því að spila á vellinum þegar það á við ofurefli að etja. Þeir sem spilað hafa á vellin- um líkja upplifuninni við pyntingu og til marks um hversu mikil bilun það er að leggja í heilan fótboltaleik þar má nefna að það er stundum venja hjá fjallgöngumönnum að setja upp grunnbúðir í „aðeins" 4000 metra hæð til að venjast þunna loftinu. Og þessi sjúkleiki hefur haft al- varlegar afleiðingar í för með sér. Árið 1993 hnigu nokkrir leikmanna Universitario, þáverandi lands- meistara í Perú, niður í miðjum leik. Ástæðan var einföld - ofreynsla. Ári síðar var völlurinn notaður sem hlutlaus í bikarkeppni og voru Union Minas þá ekki að spila. Sá leikur var flautaður af í síðari hálfleik í stöðunni 0-0 þar sem hvortugt lið- anna sem kepptu bjó yfir leikmönn- um sem höfðu nægilega orku til að byggja upp sókn. Samfelld sigurganga Það þarf varla að fara mörgum orðum um hversu mikið forskot Union Minas hefur á andstæðinga sína í hverjum heimaleik. Eins og áður segir ná leikmenn liðsins að mynda sér þol gegn þunna loftinu með tímanum og búa þeir þannig FÓTBOLTAVELLIR OG HÆÐ YFIR SJÁVARMÁLI: Völlur borg/Iand metraryfirsjó Abuja Lagos/Nígería 3 Olympic Stadium Sidney/Ástralía 42 Guiseppe Maezza Mílanó/Italía 147 S. Bemabeu Madríd/Spánn 667 Nat. Bank Stadium Jóhannesarborg/S-Afríka 1753 Atahualpa Quito/Ekvador 2818 Hemando Siles La Paz/Bólivía 3632 Daniel A. Carron Cerro de Pasco/Perú 4380 „Tvö tímabil íröð vann liðið hvern ein- asta heimaleik. Bæði tímabilin endaði liðið hinsvegar í fjórða sæti því útivallaár- angurinn varskelfi- legur." yfir miklu meira úthaldi en mótherj- amir. Á 8. og 9. áratugnum var félag- ið eitt það besta í landinu og tvö tímabil í röð (1991-92) vann liðið hvem einasta heimaleik. Bæði tíma- bilin endaði liðið hinsvegar í fjórða sæti því útivallaárangurinn var skelfilegur. Á síðustu ámm hefur félagið hins vegar verið í mikilli afturför. Vegna fjárhagsvanda hmndi félagið fyrir nokkmm árum og nú um stundir leikur liðið í næst neðstu deild Perú þar sem andstæðingamir em lið úr nágrannabæjum og -borgum. í dag spilar liðið eingöngu ánægjunnar vegna, og hana fá leikmenn þrátt fyrir að öndunargríman sé jafn mik- ilvæg og takkaskómir. vignir@dv.is Hrikalegar aðstæður DanielA. Carrion-völlurinn geturoft orðið draugalegur í þokunni uppi í fjöllum eins og sést á myndinni hér fyrir neðan. Á myndinni hér til hægri sést þegar ieikmaður fær súrefni frá hliðarlínunni áðuren hann lognast útafvegna þunna loftsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.