Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Síða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 Fjölskyldan DV Blástursmálun Efnl: Pappír, vatnsmálning, vatnslitir eða blek og sogrör. Aðferfi: Byrjað er á að þynna málninguna með vatni svo auðvelt sé að blása hana. Örlítið afmálningu er sett á blað með skeið eöa öðru áhaldi. Barnið notar rörið til að blása málningunni út um allt blað. Gaman er að nota marga liti og blása þá I kross og fram og til baka. Þessar myndir verða oft mjög fattegar og auk þess þjálfar þessiathöfn munninn og eyk- urtilfinningu barnsins fyrirþví að blása og þvl að beina ioft- inu út um munninn. Heimagerðir laufstimplar EM: Þekjulitir, pappír, þurrkuð laufblöð, penslar eða svampur og undirskálar. Aöferð: Setjið málninguna í undir- skálamar. Bömin mála svo lauf- blöðin með pensli eða svampi en það þarf að gera það varlega svo laufin brotni ekki. Laufblaðið er svo lagt ofan á pappfr eða efnisbút (eða öfugt) og þrýst létt á svo myndin skili sér. Síðan er hægt að mála og skreyta í kringum myndina. Þetta föndur hentar bömum fjögurra ára og eldri. Eyrnapinna leit Hér er leikur sem er sniðugur í afmælið og það er eymapinna- leikurinn. Maður tekur slatta af eyrnapinnum og felur þá í garðin- um. Það má iíka vera eitthvað ann- að smádót eins og hnetur eða bréfa- klemmur. I Eyrnapinnar I Síðan fara | Góðir í afmælisleiki. | krakkamir allir út með h'tinn plastpoka hver og á fimm eða tíu mínútum eiga þau að reyna að finna sem flesta pinna. Þegar tíminn er liðinn skila krakkarnir pokunum og sá sem hefur fundið flesta pinna fær verðlaun. Pez til að hætta að reykja Pez var framleitt fyrst í Aust- urríki árið 1927 og var nafnið stytting á pfefferminz, sem er þýska orðið yfir piparmyntu. Myntan var geymd í lítiili dós og seldist frekar vel fýrstu 20 árin. Upprunalega var hún auglýst sem bragðgóður valkostur fyrir þá sem vom að hætta að reykja. Fyrsti pez-baukurinn kom til sögunnar árið 1948 og ijórum ámm síðar var bætt við hausum af teiknumyndafígúmm. Baukarnir urðu afar vinsælir hjá bömum sem skiptu á þeim sín á milli. Þessir gömlu pez-baukar em eftirsóttir í dag af söfnumm. Ár hvert em seldir yfir þrír milljarðar pez-pakka í 60 lönd- um. Sælgætið er þó aukaatriði því það em baukarnir sjálfir sem em vinsælastir. Hæ, Valgerðurí Ég er 19 ára gamall og í framhalds- skóla. Mér hef- ur gengið al- veg þokkalega en veturinn í vetur var mjög erfiður. Pabbi drekkur mik- ið og vill ekki fara i meðferð. For- eldrar mínir tal- ast varla við og senda mig með skilaboð á milli. Ég geri það auðvitað en þau láta það bitna á mér. Ég er orðin svo þreyttur á þeim en ég get ekki flutt að heiman. Hvað get ég gert? Komdu sæll, framhaldsskólanemi! Aðstæður þínar eru ekki öfunds- verðar en því miður em margir í svipuðum spomm og þú. Alkóhól- isminn setur mark sitt á fleiri en þann sem drekkur í óhófi, hann set- ur mark sitt á alla fjölskylduna. Meðvirkni Flestar fjölskyldur ráða við tíma- bundið álag, þ.e. ef góðu stundirnar yfirskyggja þær slæmu. En drykkju- sýki getur valdið langvarandi álagi og togstreitu. Ástvinir drykkjusjúkl- ingsins laga sig oft að ástandinu til að forðast sffelld átök. Það nefnist meðvirkni og í hennar skjóli þrífst vandamálið. Mér kemur ekki á óvart að þú sért þreyttur. Þú hefur gerst eins- konar málpípa eða millistykki í samskiptum foreldra þinna. Þeir eiga greinilega við mikla erfið- leika að etja sem kunna að eiga rót í óhóflegri áfengisneyslu pabba þíns. Ef til vill kemur fleira til. Hvernig sem á það er litið nær það engri átt að börn og ungmenni séu gerð að einhvers konar sendi- boðum milli foreldra sinna þegar þeir gefast upp á að leysa sín vandamál sjálfir. Skiptir engu þótt þú sért orðinn 19 ára og þvf lögráða (sjálfráða og fjárráða). Samskiptavandi foreldra þinna er löngu hættur að vera þeirra einkamál. Hann kemur niður á þér, þinni líðan og eitrar viðhorf þitt til þeirra sem þú býrð hjá. Það er aftur á móti engin tilviljun að málin þró- ast með þessum hætti þegar vanda- mál, sem brjóta niður fjölskylduna og skemma fyrir henni, eru látin óá- talin í langan tíma. En hvað getur þú gert? Mikilvægt er að þú áttir þig á þeirri stöðu sem fjölskyldan er í og gætir að sjálfum þér í því sambandi. Áttir þig á hvað er á þínu valdi að gera og hvað ekki. Þú getur ekki stýrt drykkju föður þíns. Sam- skiptavanda foreldra þinna leysir þú ekki heldur. Það verða þau að gera sjálf. Þú getur hinsvegar sagt upp stöðu þinni sem millistykki. Hugsanlega bregðast foreldrar þínir reiðir við, því að þeir hafa vanist því að láta þig sjá um hin óþægilegu samskipti. Það væri mannlegt. En til lengri tíma litið er þetta eina raunhæfa lausnin. Ég ætía alls ekki að kenna þér um hvernig komið er, en verð samt að benda þér á að þú sameinar ekki foreldra þína með því að bera boð á milli þeirra með þeim hætti sem þú lýsir heldur frestar ef til vill að þau taki á sínum málum. Að kippa millistykkinu úr sambandi Þú ættir að reyna að ræða við foreldra þína og koma þeim í skiln- ing um hvað þér líður illa. Ekki er vfst að þau hafi áttað sig á hvaða áhrif drykkja pabba þíns og erfið samskipti hans og mömmu þinnar hafa á þig. Ef til vill eru þau of upp- tekin af eigin vanlíðan. Slíkar um- ræður gætu orðið til þess að þau sjái þörfina á því að gera eitthvað róttækt. En þú hefur kannski reynt það nú þegar án þess að það hafi borið árangur. Það er algengt í fjölskyld- um alkóhólista að bannað sé að tala um óþægilega hluti og vandamál. Sérstaklega þegar drykkjusjúkling- ur vill ekki viðurkenna að hann eigi við áfengisvandamál að stríða. Kannski þarft þú að byggja sjálf- an þig upp áður en þú ert tilbúinn til að setja foreldrum þínum mörk. í því tilviki ættir þú að athuga hvort þú fáir ekki hjálp hjá t.d. skólafé- lagsráðgjafa eða náms- og starfs- ráðgjafa í framhaldsskólanum þín- um. Einnig getur þú haft samband beint við fjölskyldudeiid SÁÁ en þar er starfsfólk sem sérhæfir sig í með- ferð alkóhólista og í stuðningi við fjölskyldur þeirra (www.saa.is). Þú þarft ekki að bíða eftir því að pabbi þinn hætti að drekka til að eiga þangað erindi. Þið öll saman eða í hvert í sínu lagi getið leitað eftir að- stoð. Stuðningur við fjölskylduna er mikilvægur hvort sem alkóhólistinn er virkur eða ekki. Hugleiðingar þínar í bréfinu benda til þess að þú sért þegar kominn af stað. Þú ert við það að kippa millistykkinu úr sambandi. Gangiþérvel! Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjaB. Stúlkur frekar þunglyndar Stúlkur eru tvisvar sinnum Ifklegri til að verða þung- lyndar en drengir og næstum tvisvar sinnum líklegri til að íhuga sjálfsmorð. Það er ekki auðvelt að sjá merki þessa hjá unglingum svo hér eru nokkur atriði sem ætti að fylgj- ast með: 1. Depurð sem stendur yflr lengur en f tvær vikur 2. Unglingurinn tárast mikið og grætur 3. Vonleysi 4. Minnkandi áhugi á athöfnum 5. Unglingnum leiðist stöðugt 6. Félagsleg einangrun 7. Lágt sjálfsmat og sektarkennd 8. Aukinn pirringur 9. Örðugleikar f samböndum við annað fólk 10. Kvartanir um höfuð- og magaverki 11. Hegðun sem gefur til kynna sjálfseyðingarhvöt Ef unglingurinn sýnir einhver af ofannefndum ein- kennum þá væri ráð að tala við lækni. Hafa ber samt í huga að unglingar eru oft pirraðir og þeim leiðist oft svo það er engin ástæða til að gera ráð fyrir hinu versta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.