Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Qupperneq 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ2005 DV Fréttir Graður asni sendur í útlegð Graður asni í Króatíu hefur verið sendur í útlegð eftir að hafa áreitt kvenkyns asna í þjóðgarði í Króatíu. Asninn var víst vís til þess að krefja kvenkyns asnana um kynlíf allt að 16 sinnum á dag. Verðir í garðinum hafa sagt að ferðamenn hafi kvartað undan asnanum og sagt að það væri ein- Kennnegi ao asnarnir vildu bara njóta ásta allan daginn. Ferðamenn sögðu líka að nú væru asnarnir allir í felum vegna þess að þeir vildu ekki hitta graða asnann. Verðirnir segja að asnarnir séu ánægðari eftir að graði asninn var sendur í útlegð. Tælenskir dverg-nautgripir giftast Tveir dvergvaxnir nautgripir í Tælandi giftust í gær. Nautgripirnir giftust vegna þess að eigendum þeirra fundust þeir svo hentugir til undaneldis en neituðu báðir að selja sín dýr. Það var því sameiginleg lausn að láta dýrin giftast og svo makast. Athöfnin fór fram í gær í bænum Sa Kaew. Hún fór fram eins og eðlilegt tælenskt brúðkaup. Hundabúr - Hvolpagrindur Full búð af nýjum vörum. 30% afsláttur af öllu. Tokyo gæiudýravörur Hjallahrauni 4 Opið: mán. til fös. 10-18 Hafnarfirði Lau. 10-16 S. 565-8444 Sun. 12-16 Stað- reyndir um f iska og ketti - Fiskar anda að sér vatni. - Margir fiskar lifa í hópum þegar þeir eru villtir. Þeir þurfa félagsskap frá öðrum af sömu tegund. - Gullfiskar geta lifað í allt að 25 ár. - Svartir kettir boða hvorki ógæfu, gæfu né nokkuð yfir höf- uð. - Hjartsláttur katta er tvöfalt hraðari en hjartsláttur meðal- manneskju. - Kettir eru hreinræktuð rándýr. Það þýðir að þeir borða aðallega kjöt. - Kettir sofa meirihluta dagsins og eru aðeins vakandi fjóra til fimm klukkutíma á dag. Hundahótel Það er mikilvægt að hundin- um þlnum llði vel meðan þú ert I frli. Yfir sumartímann þurfa hundaeigendur gjarnan aö bregöa sér meira af bæ en vfir vetrartímann. Þá þurfa hundarnir oft að verja tíma á hundahótelum. Björninn bankar Dýrasérfræðingar segja að skógarbjöm í Króatíu hafi lært að blekkja fólk til þess að hleypa honum inn á heimili þeirra með því að banka á hurðina. Þeir halda að hann hafi lært þetta þegar hann reyndi að bijóta niður hurð með hrömmunum. Loknar-ijölskyldan í Gerovo í Króatíu segist hætt að fara til dyra. „Ég heyrði bankað á hurð- ina og ég fór til dyra. Þar stóð bjöm og ég trúði ekki eigin aug- um. Hann röll-ti inn eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ég stökk út um gluggan á meðan hann rótaði til í eldhúsinu," seg- ir Nevenka I.oknar-ijölskyldan hefúr reynt allt til þess að koma í veg fyrir að björninn komist að húsinu en allt kem- urfyrir ekki. „Ég yrði ekki hissa ef hann kynni að nota vír- klippur," sagði Nevenka. Hundaeigendur þurfa oftar en ekki að bregða sér af bæ og liggur leið þeirra gjarnan út fyrir landstein- ana. Einhversstaðar verða kjölturakkarnir að vera á meðan því ekki em þeir æskilegir á fyrsta far- rými Icelandair, eða Iceland Ex- press. Þá er gott að geta geymt hvuttana á hundahótelum sem fer stöðugt fjölgandi hér á landi. Það em nokkrir hlutir sem gott er að hafa í huga. Kynna sér starfsemina Sum hundahótelanna hafa heimasíður þar sem hægt er að kynna sér þá þjónustu sem hótelin bjóða upp á, verð og annað í þeim dúr. Einnig er gott að ráðfæra sig við vini og kunningja sem hafa notast við þessi hótel og kanna þá reynslu sem þeir hafa af viðskiptunum. Þar færðu hlutlaust mat og getur verið viss um að ekki sé verið að plata þig með sölubrellum. Þú vilt að hundln- um þfnum líði vel. Panta tímanlega í sumar er nánast allt uppbókað á hundahótelum landsins. Það er því nauðsynlegt að hringja tímanlega og panta fyrir hundinn þinn því fjöl- margir hundaeigendur hafa gaman af því að skella sér til útlanda, rétt eins og þú. Á meðan þú sólar þig eða skoðar framandi menningu getur hundur- inn þinn leikið sér við aðra hunda og liðið vel. Leyfa hundinum að taka dótið með Hundurinn þinn á mjög líklega eftir að fá einhverja heimþrá meðan þú ert í burtu. Hann saknar þess að geta ekki lagst í bælið á sínum stað, og hann saknar skarkalans á heimilinu sem hann er vanur að vera á. Þá er gott að leyfa honum að vera með uppá- haldsleikfangið sitt með sér svo hann hafi eitthvað til að minn- ast heimkynnana, og hlakka til að koma heim. Páfagaukur kemur óþokkum bak við lás og slá Páfagaukurinn Paquita er orðinn stórstjama í E1 Salvador eft- ir að hann hjálpaði lögreglunni þar að handsama ræningjagengi. Ræn- ingjamir stálu páfagaulöium ásamt öðmm verðmætum í innbroti á heimili í San Salvador. Þegar bíll ræningjanna var stöðvaður af lög- reglu við venjubundið eftirlit skrækti fuglinn: „Rán! Rán!" Talsmaður lögreglu sagði „Þetta er frábær fugl! Hann endurtók það sem eigandi hans sagði þegar hann kom að ræningjunum. Það vakti gmnsemdir lögreglu- mannanna og þeir ákváðu að leita að þýfi í bflnum" Gengið var handtekið og Paquita komst í hvert einasta dagblað í landinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.