Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Síða 27
DV Fréttir
ÞRIÐJUDACUR 12. JÚLÍ2005 27
Úr bloggheimum
‘'jahh þadd er svolldid
mjög langd sidan eg hef
skrifad eitthvaaaa
þaaa er bra ragna
sem buinn ad vera all-
veg hellvii dugleg
skohh bloggadi bra
fullu kjellingin en jahh
þessa dagana er eg bra bu-
inn ad vera vinna og bra djamma bra a fullu
og svonna buid ad vera ogedslega gaman
nema bra buinn ad koma mer i sma vand-
rædi stelpan er kasski bra adfra uppi sveit
:S:S:S:( þad er eg bra engan veginn ad méika
:S en jahh eg bra hefekkert meira segja
þannig vid sjaumst bra“
folk.is/fcuk/
“Ég fékkhugljómun núna
um daginn eða vitrun....
Ég er búin aðátta mig
á hvað mig langar að
gera.Égfattaöi
skyndilega hvað mun
gera mig hamingju-
sama, ég hef verið að
ieita hamingjunnar á röng-
umstöðum.Miglangarað
flytja. Setjast aðútiá landi I litlu krúttlegu
þorpi eða kauptúni, gifta mig huggulegum
herramanni í lítilli krúttlegri sveitakirkju og
eignast svo fjögur hugguiega krúttieg börn
með herramanninum og lifa svo hamingju-
sömtilæviloka....“
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir -
solrunlilja.blogspot.com/
“Ég er aö lesa svo hiægilega bók frá árinu
1946 sem ber nafniðjtðiaðandi er konan
ánægðusfog er handbók fyrir konur um það
hvernig þær eiga að snyrta sig og lita vei út.
Bókin ereftirieikkonunaJoan Bennettog
hún feryfír minnstu smáatriði varðandi um-
hirðu útlitsins. Bókin er stútfull afgullmolum.
Kaflarnir heita t.d.
lil.Fljótleg snyrting en varanleg
IV. Kvenþjóðin hefur krafta i kögglum
VII. Að geðjast karlmönnum
VIII. Húsmóðurstarfíð ermargþætf
gvelda.blogspot.com/
“Mikið iifandis skeifímgar
ósköp er langt slðan ég
hefritað niður orö á
þessa síðu mína... Enda
kannski ekkert skritið því
ég hefverið norður í rass-
gati síðastliðna mánuð að
þykjast vera veiða sild.. Tja..
fengum nú reyndar aiveg 3 túra i
mánuönum, rúmlega 4000 tonn i bræðslu..
afíaverðmæti c.a40 milljónirí mánuðnum..
því verður maður hálffúll þegar maður sér
fréttina afEngey sem var! sínum fyrsta túr.
1850 tonn afunnum fískafurðum og afía-
verðmæti c.a 140 milljónir i afíaverðmæti...
hehe bara RUGL."
Borgþór Asgeirsson -
boggi.vinirketils.com/
The Rolling Stones kemurfram á sjónarsviðið
Þennan dag árið 1962 kom hin
víðfræga hljómsveit The Rolling
stones fyrst fram. í menntaskóla
stofnaði Mick Jagger ásamt friðu
föruneyti hljómsveit sem var kölluð
Little boy blue and the blue boys.
Hljómsveitin þróaðist og fékk seinna
nafnið Blues, Inc. Þegar þeirri sveit
var boðið að spila í útvarpsþætti var
nafninu breytt í Tbe Rolling stones.
Eftir að hafa komið fram í útvarps-
þættinum var hljómsveitarmeðlim-
um boðið að spila fyrir áhorfendur á
klúbbnum The Marquee club þann
12. júh' árið 1962.
The Rolling stones. Eiiífðarrokkarar.
Hljómsveitin gaf út sína fyrstu
smáskífu í Bretlandi árið 1963. Áður
en langt var um liðið varð hljóm-
sveitin þekkt sem andstæða Bítl-
anna. Meðlimir The Rolling stones
voru síðhærðir og villtir en Bítlarnir
virtust skynsamir og öruggir. The
Rolling stones hélt áfram að spila af
fullum krafti og gaf út hvert lagið á
eftir öðru. Hljómsveitin náði efsta
sæti bandaríska vinsældarlistans
árið 1965 með laginu I can’t get no
satisfaction. Hljómplatan Steel
wheels, sem var gefin út árið 1989,
seldist í tveimur milljónum eintaka
og hljómleikaferðin halaði inn 140
milljón doUara. Þegar sveitin gaf út
í dag
árið 1966 tók
Raunvísindastofnun
Háskóla íslands form-
lega til starfa. Hún fæst
við grunnrannsóknir og
kennslu.
Voodoo lounge árið 1994, fékk hún
verðlaun fyrir að vera besta rokk-
platan og þar með voru komin hin
fyrstu Grammy-verðlaun. Flestir eru
sammála um að tónlist The RoUing
stones sé orðin klassík í tónlistar-
sögu samtímans og hefur sveitin
öðlast tryggan hóp aðdáenda.
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Mér blöskrar dómurinn yfir ökuníöingi
Móðir á Vestíjörðum hringdi:
Ég fylgdist með fréttum í gær og
blöskrar hreinlega dómurinn sem
kveðinn var upp í málinu gegn
drengnum sem í fyrra ók bíl sínum
eftir Bíldudalsvegi og ók á unga stúlk-
Lesendur
u og varð henni að bana. Af hveiju
fær drengurinn bara eirrn mánuð
skUorðsbundinn og sviptingu í hálft
ár? Það er minna en þeir sem aka ölv-
aðir fá og það er forkastanlegt að
dómari skuli dæma hann svo vægt.
Drengurinn var valdur að dauða
hennar og við vitum það að stúlkan
kemur ekki aftur. Hún er farin fráfjöl-
skyldu sinni fyrir fullt og allt og
drengurinn sem varð valdur að því
fær einungis skilorðsbundinn dóm
og stutta sviptingu. Ungi drengurinn
sem var valdur að dauða stúlkunnar
hefur ekið um götumar síðan slysið
varð.
Sonur minn var, fyrir rúmlega
tuttugu árum, tekinn fyrir ölvun-
arakstur í sama umdæmi og stúlkan
lést. Hann var með eilítið magn
áfengis í blóðinu og skilaði sjálfur inn
ökuleyfi sínu til hreppstjóra. Það sem
hann gerði var að keyra löturhægt til
þess að skila spólu, undir áhrifúm.
Hann uppskar 25 þúsund króna sekt
og missti prófið í hálft ár, strax eftir
atburðinn. Það er ekkert sem réttlæt-
ir ölvunarakstur en það sem ég er að
benda á er mismunur á gjörðum
þeirra. Minn ók undir áhrifúm áfeng-
is og var sviptur í hálft ár. Drengurinn
drap stúlku með því að keyra á ofsa-
hraða og fær sömu sviptingu. Réttar-
kerfið á íslandi er algjörlega bilað og
ég tel það full ljóst að dómarar þurfa
að taka sig saman í andlitinu.
Athugasemd frá aðstoðarlandlækni
í grein í DV um mál barns sem
lést skömmu eftir fæðingu segir:
„Landlæknir áleit síðar ekkert hafa
verið óeðlilegt við vinnubrögð á
Haldið til haga
spítalanum..." Þar sem málið hefur
nú hlotið umfjöllun dómstóla þykir
rétt að birta niðurlagsorðin í ályktun
embættisins:
„Ritið gaf tilkynna versnandi líð-
an fósturs a.m.k. 1 klukkustund fyr-
ir fæðingu með keisaraskurði. Það
ásamt því að vitað var um að blæð-
inghafði orðið irm í vatnsbelg ásamt
minnkandi hreyfíngum fósturs hefði
átt að leiða tiJ skjótari viðbragða en
raun varð á. Óeðlilega langur tími
leið þar til barnið var tekið með keis-
araskurði. Sérstaklega er gerð at-
hugasemd við hversu langur tími
leið frá því ákvörðun var tekin um
keisaraskurð þar tilhann vargerður,
eða um þrír stundarfjórðungar. “
Matthías Halldórsson, aðstoðar-
landlæknir
Landlæknisembættið
Austurströnd 5
Matthías Hall-
dórsson Að-
stoðarland-
tæknir segir ekki
rétt að embætt-
ið hafi talið
vinnubrögð á
fæðingardeild
Landspítaians
eðlileg.
Hallgrímur Kúld
hefur fundiö ástæð-
una fyrir háu fast-
eignaverði.
Sundlaugavörður segir
Iðnaðarmenn
tala of mikið
í gemsa
Ég var að velta fyrir mér háu
fasteignaverði á höfuðborgar-
svæðinu. Ég var nefriilega að
flytja inn í nýja íbúð í Vallar-
hverfinu í Hafnarfirði. Víst eru
bankarnir að lána til hægri og
vinstri með lágum vöxtum og
hafa þannig áhrif á fasteigna-
verðið. En ég fann aðra ástæðu
fyrir háu fasteignaverði þegar ég
var á rölti um nýja hverfið mitt
og þegar ég fýlgdist með iðnað-
armönnum vera að byggja íbúð-
ina mína. Það er gemsanotkun
iðnaðarmanna. Undantekninga-
laust lögðu þeir frá sér verkfræin
þegar gemsinn hringdi. Við það
tapast vinnustundir sem verktak-
inn þarf að borga og á endanum
ég. Það eru örugglega margar
mínútur, jaöivel klukkustundir,
sem tapast á hverjum degi vegna
gemsanotkunar. I kjöifarið fór ég
að velta þvf fyrir mér hvernig
þetta væri hjá öðrum vinnandi
stéttum. Ég er gamall sjómaður
og ég sé ekki fyrir mér háseta
leggja niður vinnu í miðjum
netadrætti og svara í símann, og
hvað þá skurðlækna. Ekki leggja
þeir frá sér hnffinn til þess að
svara í símann. Því segi ég við
byggingaverktaka að þeir eigi að
taka gemsann af iðnaðarmönn-
um og lækka þannig íbúðaverð.
h
Invisible girl komin á markað
Maður dagsins
„Ég er rosalega spennt fyrir
nýju plötunni og er búin að hafa
svo mikið að gera undanfarið að
ég hef ekki haft tíma til að borða,“
segir Leoncie, söngkonan góð-
kunna. „Ég hlakka til að geta
slappað aðeins af og haldið áfram
að semja lög fyrir næstu plötu, en
ég hef þegar samið fimm lög fyrir
hana. I ágúst mun ég svo halda
síðbúið útgáfupartí heima hjá
mér og ætla ég sjálf að elda ofan í
alla gestina. Næst á dagskrá er
hins vegar að taka upp tónlistar-
myndbönd og verða þau mögn-
uð!"
„Það er ekkert grín að gefa út
plötu og liggur margra mánaða
vinna að baki. Þegar ég er búin að
semja nýtt efni fer ég yfirleitt til
//
London til að taka upp í hljóðveri.
Ég er hætt að gera það á íslandi
vegna slæmrar reynslu. Næstu
plötu ætla ég að hljóðrita í Banda-
ríkjunum því ég vil heimsækja
guðföður minn sem býr þar. Hann
vinnur í Pentagon og verður ef-
laust skipulögð stór og mikil
veisla fyrir mig, stjörnu fjölskyid-
unnar," segir Leoncie glöð í
bragði.
„Fyrstu tónleikarnir vegna
nýju plötunnar verða á þjóðhátíð í
yjum. Fólk verður hissa þegar það
sér í hverju ég verð á sviðinu! Ég
Nvhljómplatameð LeoncieerkominámMog kallasthúnInvisiblegirl.
Leoncie e^r á fullu þessa dagana við að kynna plötuna og lofar landsmonnum
góðum tónleikum (kjölfarið,
Það er ekkert grín
að gefa útplötu og
liggur margra mán-
aða vinna að baki.
sauma alla sviðsbúningana mína
sjálf því ég vil vera öðruvísi. Ég
lofa því að þetta verða magnaðir
tónleikar," segir Leoncie.