Dagblaðið Vísir - DV - 12.07.2005, Blaðsíða 33
Menning DV
ÞRIÐJUDAGUR 12.JÚLÍ2005 33
Kalli og sælgætisgerðin í bíó og á svið
í gær var frumsýning í Los Ang-
eles á fj ölskyldumyndinni Kalli og
sælgætisgeröin sem gerö er eftír
sögu Roalds Dahl sem komið hefur
út á íslensku. Það er Tim Burton,
hinn kunni leikstjóri, sem stýrir
kvikmyndinni en hún sameinar þá
Johnny Depp á ný.
í sögunni segir af Kalla sem
vinnur keppni ásamt fjórum öðr-
um bömum sem hinn sérlundaði
sælgætisframleiðandi Willy Wonka
stendur fyrir. Kalli sker sig frá öðr-
um fjórum keppendum í valinu
sem allir em spiUtir af eftírlætí og
síngimi en mæta örlögum sínum í
höndum sérvitringsins ViilaVonka.
Þetta er önnur kvikmyndin sem
gerð er eftír sögunni, en Gene
Wilder lék sælgætisframleiðand-
ann á hvíta tjaldinu 1971. Nýja.
myndin fer í dreifingu vestanhafs á
föstudag.
Hjálmar H. Ragnarsson tón-
skáld og Böðvar Guðmundsson
sömdu söngleik fyrir böm upp úr
sögunni 1994 fyrir Tónmennta-
skólann í Reykjavík og var hann
fluttur af nemendum og kennurum
skólans í Gamla Bfói. Leikfélag
Reykjavíkur mun hafa tryggt
sér réttinn á söngleiknum
og er áætlað að hann fari á
svið leikárið 2006 - 2007 fá-
ist leyfi til en framleiðendur
kvikmyndarinnar hafa rétt
til að halda verkinu frá sviði
á meðan kvikmyndin er á
ferð um heiminn á hvítum
tjöldum, diskum og
böndum.
Johnny Depp sem sér-
vitringurinn Villi
Wonka Imyndinni leggja
þeir Tim Burton krafta
sína saman á ný.
Hjalmar H. Ragnars
son Söngleikur eftir
frægri barnasögu.
Böövar Guðmundsson
Leikandi söngtextar viö
tónlist Hjálmars.
Rúmlega hálfrar aldar kennimark í Reykjavík verður ekki rifið: Austurbæjarbíó hefur enn skipt um eigend-
ur. Fasteignafélagið Nýsir keypti húsið fyrir ótilgreint verð og hyggst reka það áfram sem samkomuhús
Greint var frá því í Fréttablaðinu á
laugardag að fasteignafélagið Nýsir
hefði gengið frá samningum um
Austurbæ við Snorrabraut af verk-
tökunum sem keyptu það á sínum
tíma af Sambíóunum, en í byrjun
júm' greindum við frá viðræðum
einkaaðila við eigendur hússins.
Kaupandinn, fasteignafélagið Nýsir,
hefur lýst því yfir að húsið verði rek-
ið sem samkomuhús áfram en þar
eru fyrirhugaðar tvær sviðsetningar
á næstu mánuðum. Söngleikurinn
um munaðarleysingjann Annie er
þar f æfingum þessa dagana og verð-
ur frumsýning á fimmtudag en
Ávaxtakarfan verður tekin þar á ný til
sýninga í byrjun september.
Þar með er lokið stríðinu um
Austurbæjarbíó en hugmyndir verk-
taka um að rífa húsið og reisa þar
fjölbýlishús mættu andstöðu víða í
fjölmiðlum. Ómar Ragnarsson benti
á hina merku sögu hússins í menn-
ingarsögu Reykjavíkur og fleiri tóku
undir. Það var reist 1948 og var þá
stærsta samkomuhús í Reykjavík, tók
nær m'u hundruð gesti í sæti.
Það var Ragnar Jónsson í Smára
sem var frumkvöðull að byggingunni
fyrir hönd Tónlistarfélags Reykjavík-
ur, en það stóð jafnan fyrir tónleik-
um í húsinu með innlendum og er-
lendum listamönnum. Þar vom
fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveit-
ar íslands, þar höfðu sjálfstæðir leik,
dans- og sönghópar aðsetur fram á
sjöunda áratuginn þegar Leikfélag
Reykjavíkur stóð þar fyrir samfelldri
starfsemi á svokölluðum miðnætur-
sýningum.
Vegur hússins sem kvikmynda-
húss tók að dala eftir tilkomu nýrra
sala við kvikmyndahús úthverfanna í
Reykjavík. Sambíóin höfðu lagt í
nokkrar breytingar á húsinu, meðal
annars komið þar fyrir ljósabúnaði á
kolröngum stað og reyndu að endur-
vekja daga þess sem leik- og tón-
leikahúss, en allt kom fyrir ekki. Bfla-
stæðaskortur við húsið hefur lengi
háð starfsemi þar og valdið nágrönn-
um ónæði. Þá rak Ottar Felix Hauks-
son húsið um tíma.
Nú er því enn komið að hlut
borgaryfirvalda að styrkja stöðu
hússins sem samkomuhúss fyrir
borgarbúa sem hafa skemmt sér þar
í hálfa öld, en borgarfulltrúar voru
flestir tvístígandi í málinu en máttu
minnast hvernig svipuð afstaða
kostaði Reykjavík elsta kvikmynda-
hús í Evrópu þegar Fjalakötturinn
var rifmn.
Austurbæjarbíó vantar bílastæði
svo það megi þrífast sem samkomu-
hús. í vinnslu er í borgarkerfinu nýtt
deiliskipulag fyrir svæðið umhverfis
Hlemm og verður að ætla að þar
verði tekið á stöðu þessa húss.
Fasteignafélgið Nýsir hefur ein-
beitt sér að fjármögnun og rekstri
húseigna, skóla og leiksskóla, auk
annarrar starfsemi í byggingariðnaði.
Það reisti og rekur Egilshöll sem er
skyldust starfsemi þeirri sem Austur-
bær mun geta hýst, en nafnið Austur-
bæjarbíó undanskildu Sambíóin í
sölu hússins þótt það eigi sér hálfrar
aldar sögu i málvitund Reykvíkinga
og sé bundið þessu húsi, og því hefur
það verið kallað Austurbær.
Nýr söngleikur eftir höfunda Vesalinganna
Söngleikur um sjóræningjakonu
Höfundar söngleiksins Vesal-
inganna vinna nú að nýju verki
sem frumsýnt verður í Dyflinni á
næsta ári. Colm Wilkinson sem fór
með hlutverk strokufangans Jean
Valjean í hinni vinsælu sýningu af
Vesalingunum í upphafi, bæði í
London og New York, mun fara
með aðalhlutverkið í nýja söng-
leiknum, sem byggir á heimildum
um Grace O’Malley, ævintýrakonu
frá írlandi á sextándu öld sem var
reyfari á hafinu umhverfis írland.
Höfundar Vesalinganna, Alain
Boublil og Claude-Michel Schon-
berg, áttu fyrir aldarljórðingi að-
eins eitt verk að baki, söngleik sem
byggði á lögum Abba. Það var
framleiðandinn og leikstjórinn Ro-
bert Houssein sem réði þá til að
semja verk sem byggði á róman
Hugo um örlög fólks á tímum bylt-
ingarinnar 1870. Houssein er hér á
landi þekktur fyrir leik sinn í Ang-
elique-myndunum.
Breskir aðilar tóku síðan Vesal-
ingana til þróunar eftir konsert
uppfærslu verksins í Olympiu-höll-
inni í París og gerðu úr sýningu
sem fór víða um lönd og var meðal
annars leikin hér í Þjóðleikhúsinu
1987.
Boubil og Shoenberg sömdu í
framhaldi af Vesalingunum söng-
leikinn Miss Saigon og síðar Martin
Guerre sem báðir áttu nokkrum
vinsældum að fagna á sviðum stór-
borganna.
Litið er á ráðningu Wilkinson
sem yfir-
lýsingu
þess að
verkið um
sjóræn-
ingja-
drottning-
una fari á
svið í London og New York eftir
frumsýninguna í Dyflinni, en hann
nýtur mikils álits sem flytjandi og
hefur átt farsælan feril á sviðum
beggja borga, auk sýninga í Ástrafi'u
og í Kanada þar sem hann er bú-
settur.
Á næsta ári verða tuttugu ár lið-
in frá frumsýningu Vesalinganna í
Barbican leikhúsinu í London.