Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Ökuleikni á
traktorum
Það verður mikið um
dýrðir næsta sunnudag í
Sauðíjársetrinu í
Sævangi. Þá eru
töðugjöld og
dráttarvéladagur
og verður meðal
annars keppt í akstursleikni á
dráttarvél. Veitt eru verðlaun
fyrir sigurvegarann í karla- og
kvennaílokki en að launum er
frímiði fyrir tvo á Bændahátíð
Sauðfjársetursins sem haldin
verður síðar í haust. Dagskrá-
in hefst klukkan tvö með
leikjum fyrir alla fjölskylduna
en svo verður keppt í öku-
leikninni.
Byggt hátt
á Selfossi
Selfyssingar ætla sér
greinilega stóra hluti, alla-
vega í byggingamálum.
Verið er að fara að byggja
blokkir í svokallaðri miðju
á Selfossi og munu þær
verða sextán hæða háar.
Fyrri tillögur gerðu aðeins
ráð fyrir átta hæða blokk-
um svo um er að ræða tvö-
földun. Hugmyndimar em
unnar af dönskum arki-
tektum og verða kynntar
almenningi á næstunni.
Til gamans má geta að
hæstu blokkirnar í Reykja-
vík em aðeins fimmtán
hæðir, einni hæð lægri en
Selfyssingar áforma að
byggja.
SöngÁrni
brekkusöngí
síðasta sinn?
Birkir Kristinsson,
knattspyrnukappi ílBV
og Eyjapeyi.
„Nei það held ég ekki. Hann er
alltafgóður I brekkusöngnum,
það er ekki spurning. Held nú
ekki að hann hafi sungið sitt
slðasta. Mér fyndist það skritið
að vera í brekkusöngnum án
Árna. Róbert var samt góður
um árið og kom á óvart. En
Árni er seigur i þessu þó ég
þori ekki að dæma um þetta
mál sem kom upp núna. Veit í
raun ekkert um það nema það
sem ég heflesið í blöðum og
séð í sjónvarpi.
Hann segir / Hún segir
„Úff...ég veitþað ekki. Hann
sneri nú aftur eftir að hafa lent
f vandræðum 'síðast, þannig
að ég býst við að hann komi
lika aftur núna. Enda er karl-
inn ómissandi í brekkusöng.
Ég get ekki séð neinn fyrir mér
taka brekkusönginn annan en
hann, ekki nema kannski
Bubba. Hann er sá eini sem
hugsantega gæti leyst hann
af. Ég var á þjóðhátið núna en
gatþvi miður ekki verið á
brekkusöngnum
Margrét Lára Viðarsdóttir,
knattspyrnukona ÍVat
og Eyjastúlka.
ísland er nú í stjórnmálasambandi við 169 riki. Nýjasta ríkið á þeim lista er Tú-
valú og eru þá 26 ríki eftir á lista utanríkisráðuneytisins yfir ríki sem stofna skal
til sambands við.
Sameinuðu þjóð
irnar íslandáenn
eftir að stofna tii
stjórnmáiasam-
bands við 26 ríki.
IsmaM Omar Guelieh
Einræðisherra Djibútí
ernúi póiitisku sam-
bandi við Island.
Island í stjónnmálasamband
við Mndi eyríki í
„Sala frímerkja og
myntar hefur einnig
verið drjúg tekju-
Undfyrirrikið"
Kyrraðali
íslendingar stofna til stjórnmálasambands við hvert ríkið á fætur
öðru. Nú hefur verið stofnað til sambands við eyríkið Túvalú í
Suður-Kyrrahafi. Óvíst er hversu lengi það samstarf stendur, þar
sem hætta er á að landið hverfi undir sjó ef sjávarmál heldur
áfram að hækka.
íslendingar stofnuðu til stjórn-
málasambands við eyríkið Túvalú
þann 26. júlí síðastliðinn. Túvalú er
eitt minnsta og afskekktasta rlki
heims. Landið er 26 ferkílómetrar að
stærð og samanstendur af níu eyjum
sem liggja á kóralrifi í Suður-Kyrra-
hafl, mitt á milli Hawaii og Ástralíu.
íbúar landsins eru tæplega 11.500
talsins og eru áðallega af pólýnesísk-
um uppruna.
Túvalú gæti horfið
Hætta er á að eyjarnar hverfi ef
yfirborð sjávar hækkar svo einhverju
nemi. Eyjarnar rísa hæst 5 metra yfir
sjávarmál. Á einum áratug hafa þrír
metrar af strandlengju eyjanna horf-
ið undir sjó. Ibúar eyjanna hafa haft
miklar áhyggjur af hnattrænni hlýn-
un sem þeir telja margir
hverjir að eigi sinn þátt í V
hækkandi yfirborði itrjj
sjávar. Þeir hafa gert
samning við Nýja-Sjá-
land um að landið taki
móti túvalúskum
Strandlengja Túvalú
Gæti horfið undirsjó vegna
hækkunar sjávarmáls.
flóttamönnum, komi
til þess að íbúar þurfi að
flýja heimili sín. Ástralir
vilja hins vegar ekki taka '
á móti flóttamönnum frá
landinu, þar sem þeir eru
ósáttir við eindreginn stuðn-
ing stjórnvalda í Túvalú við
Kyoto-bókunina, en Ástralir
eru á móti henni.
Græða á veraldarvefnum
Ríkisstjórnin gerði sámning
upp á 3,2 milljarða um að leigja út
notkun á lénaendingu landsins, .tv,
í
9
til næstu 12 ára.
Auk þess hefur rík-
ið töluverðar tekjur
af svokölluðum
wj „900“ númerum, en
W að þessu samanlögðu
f þrefölduðust tekjur
landsins. Sala fiímerkja
og myntar hefur einnig
verið drjúg tekjulind fyrir
ríkið.
Landið hefur einnig töluverðar
tekjur af arðgreiðslum úr íjárfesting-
arsjóði sem settur var á fót fyrir
landið árið 1987 af Ástralíu, Nýja-
Sjálandi og Bretlandi. Sjóðurinn er
nú 2,3 milljarðar. Auk þess reiðir
landið sig á fjðrstuðning frá öðrum
löndum.
Ríki sem ekki eru í sambandi við ísland
Utanríkisráðunéytið stefnir að því að stofna til stjórnmálasambands
við öll ríki Sameinuðu þjóðanna. Alls eru 26 ríki eftir á lista ráðuneytis-
ins: Brúnei, Burma, Búrúndí, Bútan, Fidjieyjar, Fílabeinsströndin, Haítí,
Kamerún, Kírbatí, Kongó, Alþýðulýðveldið Kongó,
Líbería, Madagaskar, Mið-Afríkulýðveldið, Mónakó,
Saír, Salómonseyjar, Sankti Lúsía, Saó Tóme og
Prinsípe, Simbabve, Síerra Leóne, Súrínam, Tadsjikist-
an, Tonga, Tógó, Trinidad og Tóbagó.
Síðast í samband
við Djíbútí
fslendingar tóku nú síðast
upp stjórnmálasamband við
Afríkuríkið Djíbútí. Yfir landinu
ríkir IsmaO Omar GueUeh sem
ræður lögum og lofum í landinu.
íbúar landsins lifa í mikilli fátækt
og mannréttindi eru fótum troð-
in. Ismail tók við af frænda sín-
um sem forseti landsins, en hann
hafði verið einræðisherra frá
1977 þegar landið hlaut sjálf-
stæði frá Frökkum. Hann á það
til að láta fangelsa leiðtoga -
stjórnarandstöðunnar. í síðustu
kosningum var hann einn í frarn-
boði og fékk 100% atkvæða.
Liður í útþenslu
DV hafði samband við Gunnar
Snorra Gunnarsson, ráðuneytis-
stjóra í utanríkisráðuneytinu, við
vinnslu fréttaf um stjórnmálasam-
bönd á síðasta ári. Þá sagði hann að
stefna utanríkisráðuneytisins væri
að stofna til stjórnmáiasambands
við öll ríki Sameinuðu þjóðanna.
Það sé gert vegna þess að það komi
sér vel í almennum samskiptum við
löndin, auk þess að það sé gott fyrir
ísland á vettvangi SÞ með tilliti til
atkvæðavægis þar. ísland sækist
eins og kunnugt er eftir sæti í ör-
yggisráði SÞ.
Ibúar í nágrenni við útibú Islandsbanka við Réttarholtsveg mótmæla lokun.
Vilja hafa bankann sinn áfram
„Fólk er mjög svekkt yfir þessu og
reitt," segir Kristinn Breiðfjörð, ann-
ar mannanna sem fara fyrir hópi
íbúa í nágrenni við íslandsbanka við
Réttarholtsveg. íslandsbanki hyggst
loka útibúinu og hefur það farið afar
illa í íbúana í nágrenninu. Kristinn, í
samstarfi við Jón R. Sveinsson apó-
tekara, útbjó undirskriftalista fyrir
fólk sem vill halda bankanum í
hverfinu. „Rúmlega 500 manns
skrifuðu nafii sitt á upprunalega list-
ann. Við tókum hann og fórum með
hann í íslandsbanka. Fleiri vildu
skrifa nafn sitt á listann og því var
annar útbúinn," segir Kristinn. Und-
irskriftalistamir hafa legið fyrir í
sjoppu við hliðina á útibúinu. Krist-
inn segir fólk ekki vera ánægt með
fyrirhugaða lokun. „Hér er mikið af
eldra fólki í hverfinu sem hefur ekki
bíl og er vant því að stunda viðskipti
sín á persónulegum nótum. Þetta er
fólk sem hefur góð samskipti við
gjaldkerana í bankanum. Einnig er
þessi fyrirhugaða lokun ekki góð, því
næsta útibú er á Háaleitisbraut og til
þess að komast þangað þarf fólk að
fara í strætó. Það er eifitt eftir að
nýja strætótaflan kom út, því strætó-
samgöngur við Sogaveginn eru ekki
eins góðar og þær voru áður," segir
Kristinn.
Stjórnarfólk íslandsbanka hefur
brugðist vel við undirskriftalistan-
um. „Við fengum listann fyrir helgi
og höfum verið að skoða þetta," seg-
ir Vala Pálsdóttir, upplýsingafulltrúi
bankans. Menn þar á bæ hafa boðað
til fundar. „Við ætlum að kalla til
fundar og kanna viðhorf fólksins til
lokunarinnar. Á fundinum verða
meðal annars Haukur Oddsson sem
er yfir viðskiptabankasviðinu og
Kristján Óskarsson sem er yfir útibú-
unum." Vala segir að það sé vilji
bankans að efla útibúin og styrkja.
„Við erum að gera útibúin að öflug-
um fjármálamiðstöðvum sem veita
heildstæða fjármálaþjónustu til ein-
staklinga og fyrirtækja."
kjartan@dv.is