Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Blaðsíða 19
DV Sport FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST2005 19 Zidane aftur í landsliðið Zinedine Zidane og Claude Makaiele hafa ákveðið að gefa kost sér i franska landsliðið á nýj- an leik, en þeir tilkynntu báðir að þeir væru hættir með landsiiðinu eftir hörmulega frammistöðu í EvTÓpukeppninni í Portúgal í fyrra. Þjálfari Frakka, Raymond Domenech, var yfir sig ánægður með þessa ákörðun tvímenning- ana. „Þetta eru gleðitíðmdi fyrir franska landsliðið og Frakkland. Zi- ;,s Sj dane og Makalele f ' erubáðirað ^ leika með r sterkum fé- 1 lagsliðum og hafasýnt áj *'6me*S það að þeir ;/ £ eru ennþá S fremstu röð.“ Sven vill Owen til United Sven Göran Eriksson, þjálfari enska landsliðsins, vonast til þess að Michael Owen snúi aftur i ensku úrvalsdeildina, og segir það vera best fyrir England ef hann ákveður að fara til Manchester United. „Það yrði gott ef Owen myndi leika með Wayne Rooney í framlínunni hjá Manchester, ég neita því ekki. En hvar sem hann mun leika á komandi leiktíð mun hann verða mikilvægur fyrir enska landsliðið. Hann hefur jÉ/BPbn alltaf skorað i^jjÉgill , ., mun örugg lega gera það áfram, hvar JL sem hann niun JK|agSB|jgl&PÍs leika." JHHfl^^Hllll Markmiðið að halda sér uppi Alan Stubbs, sem nýgenginn er til liðs við Sunderland, segir markmið Sunderland á tímabil- inu vera að halda sæti sínu í deildinni. En til þess að markmið- inu, segir Stubbs nauðsynlegt að steíha á að vera ofarlega f deild- inni. „Það er ekki nóg að stefria á að vera í sautjánda sætinu. Ef eitt- hvað félag stefnir á að rétt bjarga sér frá falli er voðinn vís. Það er nauðsynlegt að vera með háleit markmið sem fá leikmennina til þess að leggja sig enn meira fram. Það eru margir ágætir leikmenn héma sem hafa burði til þess að standa sig vel í úrvalsdeildinni." Butt til Birmingham Nicky Butt, fyrrverandi leik- maður Manchester United, er genginn til liðs við Birmingham City á lánssamningi frá Newcastle United, en hann fór þangað í fyrra. Butt náði sér ekki á strik á síðustu leiktíð en meiðsli gerðu honum lífið leitt. Steve Bmce, knattspyrnustjóri Birmingham, var ánægður með að hafa fengið Butt til félagsins. „Ég hef veri að leita að leikmanni til þess að fylla skarð Robbie Savage, sem fór frá okkur á síðustu leiktíð. Ég hefði ekki getað fengið betri leikmann en Nicky Butt. Hann er virkilega góður leikmaður, með mikla reynslu og hann á örugglega eftir að standa sig frábærlega með Birmingham." Rogerio Ceni, fyrirliði brasilíska liðsins Sao Paulo, hefur gert garðinn frægan í brasilísku deildinni með góðum aukaspyrnum sínum, en hann hefur skorað Qögur mörk að meðaltali á tímabili undanfarin fimm ár. Það er stundum sagt að ef byggja á upp gott fótboltalið þá verði að byrja á því að fá góðan markvörð. Sao Paulo í Bras- ilíu er með markvörð í lykilhlutverki í bæði vöm og sókn, en Rogerio Ceni, sem jafnframt er $$$$ fyrirliði liðsins, hefur skorað meira en jg^rTfy^^fl fjörutíu mörk fyrir félagið á ferli sínum. /v^ Markvörðurinn Roecrio Ceni er •! ' - Ætlar ser i brasil- íska landsliðið Þótt Ceni hafi verið marksækinn með ein- dæmum hefur hann stundum verið sak- aður um að vera ekki nógu góður j milli stanganna, þar sem mark- menn eru nú yf- l irleitt bestir. k Ceni sjálfur \ er ekki , en Markvörðurinn Rogerio Ceni er aukaspymusérfræðingur liðsins og tekur ailar spyrnur sem hægt er að skjóta á markið úr. Algengustu mörkin hans eru skot af um þrjátíu metra færi, yfir varn- arvegginn og efst í mark- homið. Hann þykir einnig ágætis markvörður og er til að mynda í landsliði Brasilíu, á ___________ und- an hon- um í röðinni em Marcos og Dida, markvörður AC Milan. Ceni er vinsælasti leik- maður Sao Paulo meðal stuðn- ings- manna félags- ins, enda ekki al- gengt að markverðir liða séu í hópi marka- hæstu manna. „Það er draumur minrt að spila í brasil- íska landsliðinu og vonandi næ ég að tryggja mér sæti í landsliðinu fyrir heimsmeistarakeppn- ina í Þýskalandi." sam- mála þessu og segist vera markvörður vegna þess að það sé hans besta staða. „Þótt ég geti spark- að á markið og staðið mig ágætlega úti á vellinum, þá er markvarðar- staðan mín besta staða. Ég hef aUa tíð lagt hart að mér til þess að geta kom- ist í ffemstu röð. Það er draumur minn að spila í brasilíska landsliðinu og vonandi næ ég að tryggja mér keppni félagsliða, en félagha , Nordic Photos/Getty Hðiö River P/ote I úrslitaleik._____________________________. Fyrir skömmu varð Sao Paulo Suður- Ameríkumeistari fé- lagsliða og skoraði Ceni sigurmarkið j leiknum með skoti beint úr aukaspyrnu. sæti í landsliðinu fyrir heimsmeist- arakeppnina í Þýskalandi." Ceni helsta stjarna efstu deildar í Brasilíu Þrátt fyrir að það séu margir góð- ir leikmenn í Brasilíu, þá er enginn jafnmikil stjarna og Ceni. Stuðn- ingsemenn annarra liða flykkjast á völlinn til þess að sjá hann taka aukaspyrnur og ekki sist til að sjá hann fagna mörkum. Einhverra hluta vegna á Ceni sér ekki marga andstæðinga. Hann þyk- ir mikill ljúflingur utan vallar en á stundum í erfiðleikum með að hemja skap sitt inni á vellinum. Ceni, sem er þrjátíu og tveggja ára gamall, hefur aUan sinn feril leikið með Sao Paulo og hefur verið fyrirliði Uðsins undanfarin ár. Fyrir skömmu varð Sao Paulo Suður-Ameríkumeistari félagsUða með því að leggja argentínska liðið River Plate að veUi. Ceni var maður leiksins þar sem hann skoraði sig- urmarkið í leiknum með því að skora beint úr auka- spyrnu. Spennandi verður að sjá hvort Ceni nær þeim markmiðum sínum að verða lykUmaður í brasilíska landsliðinu í heimsmeist- arakeppninni í Þýska- landi á næsta ári. magnush@dv.is Búið er að ganga frá félagaskiptum Edgars Davids til Tottenham Tími til að sanna sig á Englandi í gær var endanlega gengið frá fé- lagaskiptum hollenska miðju- mannsins Edgars Davids úr ítalska liðinu Inter MUan yfir í enska úrvals- deUdarfélagið Tottenham Hotspur. Þessi landsUðsmaður hefur undirrit- að samning tU eins árs á White Hart Lane og kemur hann á frjálsri sölu eftir að hafa átt misheppnað tímabU hjá Inter þar sem hann fékk að kynnast varamannabekknum óvenjulega vel. „Eg talaði í fyrsta sinn við Totten- ham fyrir nokkrum árum og leist vel á félagið. Ég hef spUað lengi á ítaliu, einnig spUað á Spáni og nú er kom- inn tími á England. DeUdin hérna er mjög sterk og ég er ákveðinn í að ná sem fyrst að smeUa inn í liðið. Það eru sterkir leikmenn hjá félaginu og ég tel það geta gert góða hluti, von- andi get ég hjálpað sem mest," sagði Davids en mUdar vonir eru bundnar við komu þessa sterka leikmanns til Tottenham og telja margir að hann sé einmitt sú gerð af leikmanni sem félagið hafi hvað mest þurft á að halda. Davids býr yfir gríðarlegri reynslu en hann hefur leikið á fjórum stór- mótum með landsliði HoUands. Hann er 32 ára og á 73 landsleiki að baki. Hann vakti fyrst athygli með Ajax, en eftirminnUeg er koma hans tU Barcelona frá Juventus seinni hluta tímabilsins 2002-03. Liðinu hafði gengið afieitlega framan af tímabili en eftir komu Davids snérist dæmið við og liðið hafnaði í öðru sæti spænsku deUdarinnar. Eftir ferUinn setur Davids stefn- una á þjálfun. „Ég hef kynnst mörgum knatt- spyrnustjórum í gegnum tíðina og tel mig geta gert betur! Það er mikU- vægt að læra, ekki bara af þjálfurum heldur einnig af öðrum leikmönn- um,“ sagði Davids. Erfiðir tímar UtiO sem ekkert gekk upp hjó Davids I herbúð- um Inter á síðasta tímabili.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.