Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.2005, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 4. ÁGÚST2005 Menning DV KABARETT verðurfrum sýndur í kvöld I Gamla bíói. Það hef- ur farið nokkuð fyrir augiýsingum um sýninguna í völdum dagblöð- um og á strætóskýlum, en minna verið um skipulagt kynningarstarf í fjölmiðlum. Sýningin erstyrkt í bak og fyrir og hafa þeir framkvæmda- stjórarnir og sam- fylkingarkólfarnir Felix Bergsson og Ingvar Sverrisson haft öll spjót úti. Miðar eru í sérstöku boði SPRON - ef þú ert með kort. Flugur ORMSTEITI er ein þeirra hátíða sem haldin er í ágúst og byggir að mestu leyti á framtaki heima manna. Hún stendur í tíu daga og verður víða með aðsetur enda atriði til skemmt- unar mörg. Það vekur athygli að Eiðastóll, menningarsetrið á Héraði, er hvergi nefnt á knafn í kynningu Xum hátíða- jhöldin.Mun ' þaðtilmarks umþanninn- ■- nróna hreppar- sem lengi tlar að verða þörfum málum fjötur umfótþar austurfrá. Sigurjón Sighvats- son Eiðastólsstjóri fær ekki að vera með á Ormsteiti. HIN TÁPMIKLA ritstýra og skáld- kona Gerður Kristný hefur brosað dularfullu brosi undanfarna mán- uði og látið fátt uppi um skrifsín í sumar. Hún mun vera að vinna við viðtalsbók (ævisögu) við þekkta konu en kann sölutaktík frá Mann- lífsdögum slnum og lætur ekkert uppi.Athugulir menn hafa tekið eft- ir að Gerður hefur haldið sig mikið í námunda við Stuðmenn á flandri þeirra um kringluna. Eins og þjóð- inni er kunnugt er bara ein þekkt Sænskur gítardjass Andreas öberg, sænski djassgítar- leikarinn, heldur fema tónleika á land- inu um næstu helgi. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Andreas þegar öðlast sess sem einn af færustu djassgítaristum samtímans. Hann leikur djass af öllu tagi, en sígaunadjass og djass í anda Djangos Reinhardt er í miklu uppá- haldi hjá honum og hefur hann komið ffam á tónleikum með Jimmy Rosen- berg, Stochelo og Dorado Schmit Hann hefur leikið inn á marga geisla- diska, spilar m.a. á diski með Jimmy Rosenberg, sem fékk frábæra dóma. Það er djasstríóið Hrafnaspark á Akureyri í samstafi við Djangojazz Festival Akureyri, sem fær Andreas öberg til landsins og leikur Hrafiia- spark með honum á tónleikum. Á föstudagskvöld verður hann á Café Rosenberg í Reykjavfk og byijar að spila ld. 21.30. Þaðan heldur hann norður á Akureyri og leikur í KetHhús- inu á laugardagskvöld kL 21.30. Síðan fer hann vestur á fsaflörð á sunnudag og leikur kl. 21 f Edinborgarhúsinu en snýr á mánudag aftur suður og leikur öðmsinni á Café Rosenberg í Reykja- vlk 21.30. Verða Hrafnasparksmenn í för með honum aHa reisuna Að- göngumiðasala verður við inngang- inn. Einu sinni var slagurinn milli kassettunnar og kartridge-spólunnar, svo tókust á vhs- spólan og betan, um tíma var stóri geisladiskurinn væntanlegur. Neytendur hafa setið af sér stríð framleiðenda um ráðandi form á markaði afrita fyrir tónlist og kvikmynd- ir, margir með ærnum kostnaði. Nú er yfirvofandi stríð um ráðandi format á DVD. Þeir em til sem halda því fram að stríðunum um hljóðkassettuna og myndbandið hafi lyktað með því að verra geymsluform hafi farið með sigur af hólmi, Kartridge-tækið sé betra en kassettan og betan beri af vhs-spólunni, enda hafi hún orðið ráðandi í atvinnurekstri. Nýja stríðið um næsta þrep í þró- un DVD er skollið á. Ákvörðun 20th Century Fox sem tiikynnt var nýlega réði úrslitum. Ráðamenn þar á bæ ákváðu að veðja á Blu-ray. Þannig em kvikmyndarisamir vestanhafs klofnir í tvær andstæðar fylkingar um hvaða afiit verði ráðandi á DVD-markaðn- um á næsta áratug. Fyrir utan Fox hafa Sony, Disney og Apple veðjað á bláa geislann og er þeirri tækni talið til tekna að hún vemdi rétthafa betur gegn stuldi. Fylgjendur HD-DVD lýstu sam- stundis yfir að Blu-ray væri óáreiðan- leg tækni og þeirra tækni stæðist fyUi- lega samanburð. Það em Toshiba, Microsoft, Wamer Brothers, Univer- sal og Paramount sem standa að japönsku hágæða-tækninni sem hef- ur lengi verið í þróun og átti sér eink- um bakland í Japan þar sem sjón- varpsstöð með slfkt efiú hefur lengi verið í rekstri Fréttaskýrendur telja litlar líkur á að sættir náist. Neytendur verða því einu sinni enn settir í klemmu og gríðarlegum fjármunum sóað í að sannfæra kaupendur um gæði kerf- anna tveggja. Sony segir Blu-ray geyma meiri gögn - 25GB samanbor- ið við 15GB á HD-DVD, en núverandi DVD-diskar geyma mest 4.7GB. Fylgj- endur HD-DVD segja með réttu að þeirra kerfi eigi betri samleið með flutningstækjum DVD og því verði kostnaðarþröskuldurinn lægri fyrir neytendur þegar kemur að endumýj- im þeirra tækja sem nú fyHa stofur og svefnskála á heimilum Vesturlanda- búa. Gæði ráða ekki segja menn, minnugir þess að Sony tapaði stríð- inu með Betamax sem var sannarlega með meiri myndgæði en VHS- formatið. Þeir Sony-menn munu innifela Blu-ray tæknina í væntan- legri PlayStation 3 sem kemur á markaðinn í mars á næsta ári. Eins gott að menn fari að panta. Fyrstu spUarar HD-DVD verða þá komnir á markað og fáanlegir um næstu jól. Sala á DVD reis hæst 2004 með sölu sem nam 20.1 biUjónum dala. Talið er að hún detti niður í 15.3 biHjónir dala árið 2010. Framleiðend- ur rafmagnstækja þurfa nauðsynlega að tryggja markaðnum nýjungar, ekki síður en söludeUdir framleið- enda. DVD var stærsta tækninýjung sem hefur yfirtekið markaðinn, bara vegna þess að allir komu sér saman um staðal og sameinuðust um eitt format. Bæði kerfin, HD-DVD og Blu-Ray munu geta spUað DVD- diska sem nú fyUa hUlur og skápa neytenda - þeirra bíða ekki örlög vinyl-plötunnar sem lenti á haugun- um í þúsundum tonna - þangað tíl menn mundu aftur eftir því þekki- lega formi og tóku fónana gömlu i notkun á ný. Kútter í aðalhlutverki í Þorlákshöfn um helgina Kútter Jóhanna á siglingu undan færeyskri strönd Þetta 120 ára skip verður isigHngu með gesti Hafnardaga um heigina Þeir í ölfúsinu eru ekki tU í að gefa sitt eftir í hátíðahaldi sveit- anna. Þeir blása tíl Hafnardaga um helgina í höfninni sem kennd er við heUagan Þorlák og hefur dugaö skipum í þústmd ár. Hafnardagar í Þorlákshöfn verða formlega settir á Skarfaskersbryggjunni f Þorláks- höfn á föstudag 5. ágúst. En menn þar á bæ vUja byija snemma. Á fimmtudaginn verður tekið forskot í sæluna. Nýstofnað Jazzband Suðurlands heídur þá tónleika í Versölum í ráðhúsi ölf- uss. Síðan verður margt til gamans gert á föstudag. Kútter Jóhanna, eða „slúppan" Jóhanna eins og hún er köHuð á færeysku, var smíðuð á Englandi árið 1884. Þetta er einn þeirra báta sem komu tíl íslands til að veiða fisk eða kaupa og sigldi síð- an með aflann til Aberdeen. Árið 1981 var stofnað félag sem setti sér það markmið að gera kútterinn upp. Verkið tók ein átta ár og var að miklu leyti uxmið í sjálfboðavinnu. Nú er Jóhanna komin í stand og verður hægt að fara í skemmtisigl- ingu með kúttemum út fyrir höfii- ina. Þeir sem vUja koma austur eða að austan og taka túr á kúttemum geta kynnt sér brottfarartíma á vef Hafnardaga. Aðrir dagskrárhðir veröa með hefðbundnu sniði. Við Ráðhúsið verður götu- og markaðsstemming, Bflabúð Benna býður upp á bflasýn- ingu við Skálann, Sjóvá verður með veltibflinn vinsæla, Bæjarbókasafn ölfuss opnar sýninguna í fartesk- inu, þar sem sýnt verður hvað sjó- menn höfðu með sér f verið hér áður fyrr, KK og Maggi Eirflcs spUa á tónleikum í Ráðhúskaffi og hljóm- sveitin Á móti sól mun spila á bryggjutónleikum á föstudags- kvöldið. Á laugardagskvöld veröur dans- leikur með hljómsveitinni í Versöl- um. Kraftakeppni verður í skrúð- garðinum, dorgveiðikeppni á Suð- urgarði og Einar Sigurðsson ætíar að leiðsegja um hafnarsvæðið á sunnudag. AUar nánari upplýsingár um dag- skrá Hafnardaga er að finna á vef há- tíðarinnar, www.hafnardagar.is. \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.