Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.01.1924, Qupperneq 5

Símablaðið - 01.01.1924, Qupperneq 5
SÍMABLAÐIÐ MÁLGAGN F. I. S. IX. árg. Reykjavík janúar—apríl 192Í. 1.—2. tbl. Símablaöið kemur út annan hvern mánuð. — Áskriflargjald 4 kr. á Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Gunnar Schram, Stýrimannastíg 8, sími Utanáskrift blaðsins: Símablaðið, Box 575, Reykjavík. ári. 474. jll e ð þessu blaði lœt ég a/ ritstjórn Símabtaðsins, og vil um leið þakka öll- nm, sem á einn eða annan hátt hafa styrkt það þau ár, sem ég hefi haft með það að gera. Gunnar Schram. Loftskeytastöðvar á IslandL Eftir landssímastj. (). Forberg. Eitt af þeim verklegu sviðum, sem ís- land hefir fylgst vel með á nú á seinni árum, sé tillil tekið til allra kringum- stæða, er þráðlaus skeytaafgreiðsla. Letta á jafnl við um þær landstöðvar, sem ríkið hefir látið byggja, og rekið, sem um skipastöðvar. Frá því fyrsta, eða fyrir 19 árum síðan, að til tals kom, að skeytasam- bandi yrði komið á milli íslands og úllanda, hefir þráður og þráðlaust kept um yfiráðin. Eins og kunnugl er, fór þráðlaust halloka þegar fyrstu skeytasamböndunum hér var komið á. Það má vel vera, að hin heita barátta, sem þá var um símamálin, og aftur lifnaði við, þegar leggja átti kabalinn til Vestmannaeyja, hafi átt sinn þátt í, að þráðlaust hefur átt örðugra uppdrált- ar, en annars hefði verið. Á alþingi 1912 lagði stjórnin fyrir frumvarp til laga um ritsíma og tal- símakerfi íslands. Og í fruinvarpi þessu, sem samþykt var óbreytt, er tekið fram um loftskeytastöðvar, að landsstjórn- inni sé heimilt að reisa loftskeytastöð i Reykjavík, sem sé nægilega sterk til að vinna við útlönd. Og ennfremur er stjórn- inni gefin heimild til lántöku, lil að framkvæma byggingu stöðvarinnar. - Árið 1915 stakk landssímastjórinn upp á því við stjórnina, að loftskeytastöð yrði bygð nálægt Reykjavík. Og í greinargerð fyrir því tók hann fram: Að fyrsta skilyrðið fyrir því, að kaup- för og fiskiskip (togarar) sem sigla hér við land, fengju sér loftskeylastöö, væri að ríkið léti tyrst byggja sterka slöð. Ennfremur, að það hefði mikla þýðingu í hagnaðarlegu tilliti, og væri til þjóð- þrifa, að sem flest af skipunum gætu ávalt hatt samband sín á milli og við land. Að það hefði sýnt sig, að ritsímasam- bandið til útlanda hefði stundum bilað, og þess vegna væri það nauðsyn, að bygð yrði loftskeytastöð, svo slór, að

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.