Símablaðið - 01.01.1924, Side 17
SÍMABLAÐIÐ
13
haab og Godhavn hafa hálf-kílovatts
lampa-senditæki og stöðin í Angmagsa-
lík IV2 kílóvatts hljómneistatæki.
* *
*
I Englandi heflr það oft komið fyrir
upp á síðkastið, að flugvélar hafa rekist
á Ioftskeytamöstur og loftnet stöðvanna.
Á hinum stærri loftskeytastöðvum ná
loftnetin yfir stór svæði, og eru oft um
2—300 metra há, svo það er skiljanlegt,
að þau geta verið þrándur í götu flug-
vélanna að nóttu til. Þannig rakst ný-
lega flugvél á loftnet og hékk þar föst.
Til þess að minka hættuna hafa víða
verið sett Ijósker á mastratoppana, sér-
slaklega á þeim stöðvum, sem eru ná-
lægt »flughöfnum« eða aðal flugleiðum.
* *
Svensk Telefontidning heitir blað, sem
gefið er út í Stockholm, af félagi lal-
símakvenna þar. Hefir símablaðinu ver-
ið sent það frá síðustu áramótum, og
inun fá það framvegis í skiftum. Blaðið
kemur út mánaðarlega og flytur ýinsar
fræðandi greinar um síma- og félagsmál.
★ *
*
Allar skeylascndingar til og frá Græn-
landi munu fara um loftskeytastöðina
í Reyjavík. Stöðvarnar í Godhavn og
Godlhaah verða svo litlar, að þær ná
ekki nema til Julianehaab, sem svo nær
hingað, eða lil Færeyja er best gegnir.
Angmagsalikstöðin mun og ná hingað,
því húu er það nær en vesturslrandar
slöðvarnar.
Kœrðar /ijrir ókurleisi. Slórkaupmað-
ur einn i Khöfn Glicinann að nafni,
var eftir því sem Dansk Telegraftid-
ende segja, eitt sinn óánægður með af-
greiðslu á símtali, sem hann fékk við
Hamborg, og kom ókurteislega fram
við símastúlkuna, sem afgreiddi sam-
talið. Stöðvarstúlkurnar höfðu oft áður
þolað ýinsa ókurteisi frá hans hálfu, og
mundu því vel eftir símanúmeri hans,
og þegar hann tók að skamma stúlk-
una í þetta skifti, bað hún tvær aðrar
að hlusta á sem vitni.
Kaupmaðurinn kallaði stúlkuna ýms-
um ókvæðisorðum, og kærði hún síðan
til símastjórans, sem stefndi honum, og
var kaupmaðurinn sektaður um 200 kr.
*
Telegraf Tidende, (organ for Kvinde-
lige Telegraf funktioners Lands/orening.)
Símablaðinu hefir nýlega borist nokkur
eintök af »Telegraf Tidende«, sem er
gefið út í Kristianiu, og mun fá fram-
vegis í skiftum.
Blaðið kemui út einu sinni í mánuði,
og flylur fróðlegar greinar, bæði um
símamál og annað.
Peir, sem vilja sjá blaðið, geta fengið
það að láni á lesstofu F. í. S. Viljum
vér sérstaklega benda öllum simastúlk-
um á að lesa það, því þangað geta þær
sótt ýmsan fróðleik.
í marzblaðið skiifar frk. Gróa Dal-
holl grein um bæjarsímann í Reykjavík
og fvlgja nokkrar myndir af stöðinni,
og enn fremur af simakorti íslands 1924.
* *
*
Ensku víðvarps stöðvarnar heyrasl
nú hér á landi, og stundum ágællega.
Það sem heyrisl er hljóðfæraslátlur, ræð-
ur, fyrirlestrar, prédikanir og ýmsar
fréttir. Hér í bænum er töluverður á-
hugi farinn að gera vart við sig, á að
fá inóttökutæki, til þess að heyra þess-