Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1924, Page 18

Símablaðið - 01.01.1924, Page 18
14 SÍMABLAÐIÐ ar stöðvar, og einstaka hafa fengið sér l>au, og hefir það hepnast allvel. Ein- slaka menn eru jafnvel sjálfir að smíða sér tækin, eða setja saman. Því hægt er að fá öll stykkin í þau. Erlendis, bæði í Ameríku og Englandi, er það algengt að menn sjálfir setji áhöldin saman, og hafa margir meira gaman að því, þar að auki er það töluvert ódýrara. Það er þó ekki hægt að mæla með þessu, nema við þá, sem hafa töluverða þekk- ingu á tækjunum. Petta á þó sérstak- lega við hér, þar sem fjarlægðin er svo mikil, 1000 kilometrar og meira, en eins og kunnugt er, þarf betri og næm- ari læki, eftir því sem fjarlægðin vex. Á loftskeytastöðinni hér, hefir ein amirísk víðvarpsstöð heyrst vel. Félagið sem á þessa stöð, er General Electric Company, sem mörgum er kunnugt hér á landi. Stöðin er í Schenectady, N. Y., og er vegalengdin hingað 2,600 enskar mílur. Félagið segir að hún hafi heyrst mikið lengra, en hún hafði aldrei heyrst svo norðarlega á hnettinum fyr. Aðrar víðvarps stöðvar frá Ameríku, hafa einn- ig heyrst hér, en engin eins greinilega, enda aldrei náðst í einkennisstafi þeirra, og þar af leiðandi ekki hægt að vila hverjar þær eru. Félagafréttir. Trúlofun sína hafa opinberað þau Olga Benediktsdóttir símamær í B. og Árni Árnason verzlunarm. í hjónaband hafa gengið Karolina Sveinsdóttir símamær í R. og Ásgeir Ásgeirsson verzlunarmaður. Ennfremur Fríða Aradóttir og Guð- mundur Halldórsson prentari. O. B. Arnar sagði upp starfi sínu sem bæjarsímastjóri í Reykjavík, frá 1. maiz. En verkfræðingur Guðm. Hlíðdal, hefir verið skipaður símaverkfræðingur frá 1. marz að telja. Hann hefir ennfremur á hendi bæjarsímastjórastarfið. Umburðarbréf. Nr. 41, 28/12. Vegna gengisfalls ís- lenskrar krónu, hækka frá 1. jan. n. k. öll simskeytagjöld til útlanda. Frá sama tíma lækka gjöld fyrir blað- skeyti innanlands um helming, og tal- símagjöldin breytast sumstaðar; sjá annars hina nýju gjaldaskrá, sem send hefir verið stöðvunum. Nr. 42, 28/i2. Á mánaðarreikningum næsta ár, skal á yfirlilið (eyðub). nr. 16) efst á fjórðu siðu, skrifa tölu sendra heillaskeyta, þar sem ákveðið er, að 25 aurar renni í byggingarsjóð landsspital- ans af hverju útförnu heillaskeyti. Samt sem áður teljist heillaskeytin með á yfirlilinu í tölu sendra símskeyta, eins og að undanförnu. Nr. 4, V*. 1924. í gjaldskr. 1924 bls. 6 neðst, stendur: Samúðarskeyti á til þess gerðum spjöldum, má senda til eftir- laldra stöðva, o. s. frv. en á að vera: má senda milli eftirtaldra slöðva. í tal- símaskránni 1924 bls. 11 skal því, sein þar stendur um samúðarskeyti, breylt í samræmi við gjaldskrána. Nr. 5, 7/i. Jafnframt því að vísa lil umburðarbréfs um samúðarskeyti, er hér með lagt fyrir stöðvarstjórana að senda beint til aðalskrifstofu lanssím- ans í Reykjavík í lok hvers ársfjórðungs, skilagrein fyrir útförnum samúðarskeyt- um, og tilkynningu um það sé ekkert

x

Símablaðið

Publication Type:
Collection:
Gegnir:
ISSN:
2710-9747
Language:
Volumes:
75
Issues:
241
Published:
1922-1996
Available till:
1996
Locations:
Keyword:
Description:
Stéttarfélög : Símastarfsmenn : Kjaramál : Félag íslenskra símamanna : Fyrri titill Elektron (1915-1921)
Main publication:

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue: 1. - 2. tölublað (01.01.1924)
https://timarit.is/issue/349682

Link to this page: 14
https://timarit.is/page/5529385

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.

1. - 2. tölublað (01.01.1924)

Actions: