Freyr - 01.01.1953, Blaðsíða 10
4
FREYR
Varmahlið — Húseyjarkvisl — Hólmurinn — Glóðafeykir. — Ljósm.: G. K.
Þaö er fleira, sem gert hefir verið í Skaga-
firði, meitlað þar og mótað, en það, er þess-
ir menn hafa eftir sig látið. Eigi er rúm né
tími hér til að rekja þá þáttu, heldur snúa
sér að hlutverkum þeim, sem enn bíða í
þessu fagra og víða héraði, sem sjá má af
Arnarstapa, allt frá Tindastól, Drangey,
Málmey og Almenningum í norðri, til innstu
heiða hálendisins í suðri. Hérna undir faldi
Glóðafeykis og annarra jöfra, sem skýla
héraðinu, hafa atburðir gerzt margir og
frægir, en að sjálfsögðu hylur tjaldið milli
nútíðar og framtíðar margar athafnir og
miklar, sem hér hljóta að gerast á komandi
tímum, máske stórfeldari og þýðingarmeiri
en þær, sem þegar hafa verið unnar.
Hér er útsýni vítt og hér er vandalaust að
sjá inn í framtíðina, jafnvel þeim, sem
óskyggnir eru. Bilið milli dagsins í dag og
morgundagsins er ekki breitt — aðeins ein
nótt og hún björt að sumrinu og þá í raun-
inni gegnsæ — en þó eru til þeir menn, sem
ekki sj á einu sinni til næsta dags. Til allrar
lukku eru þeir fáir — en því miður þó til.
Flestir eru það vel skyggnir að þeir sjá
nokkuð fram í tímann og þeir geta séð enn
lengra ef þeir æfa sig í því að horfa fram.
* * *
Það, sem hér hefir unnið verið, er að
nokkru gert af manna höndum, en flest er
unnið við arinn sjálfrar náttúrunnar. Hún
er mikilvirk og meitilför hennar eru varan-
legri en plógför mannanna eða byggingar
þeirra. Hér hefir náttúran að verki verið og
svo er enn.
Og hér hefir hún búið vel í haginn fyrir
alla þá, sem sýna vilja framtak og athafn-
ir og bæta ennþá betur. Hér eru geysileg
verkefni fyrir margar framtakssamar hend-
ur um næstu ár og aldir. Hér sýnist ýmsum
búsæld ríkja og má það sannmæli vera. En
ég segi: Þegar hér er búið að vinna miklu