Freyr - 01.01.1953, Side 14
8
FREYR
er ekkert að segj a. Búj arðirnar í Hólmi gætu
þá eins vel orðið 25 og hefði hver 100 hekt-
ara lands og væru þá stórbýli, þar sem
framfleytt yrði 80 nautgripum á hverju eða
tilsvarandi af öðru búfé.
Nú munu vera 9 býli í Hólmi. Má þá nær
þrefalda fjölda þeirra og mundi hvert þeirra
stórbýli samt. Eigi veit ég hver eftirtekja
fæst nú af landinu milli Svartár og Héraðs-
vatna, frá Vindheimabrekkum að Affalli, en
mig grunar að hún sé ekki mikil, miðað við
landstærð. Sumt af þessu landi er nú lélegt,
fánýtt eða ónýtt, en með hæfilegri meðferð
getur það orðið grösugt mjög. Hliðstætt hef-
ur skeð annarsstaðar. Þarna hefir eitt sinn
verið áveituland á nokkru svæði.
Öldungurinn Jóhann á Löngumýri hefir
tjáð mér, að þar sem eitt sinn var grasi vaf-
in spilda, á tímabili áveitunnar, er gaf eftir-
tekju, sem nam 400 hestburðum árlega, sé
nú naumast til nytja, nema hrossabeitar, og
svo hafi verið síðan áveitan fór út um þúf-
ur, en það gerðist hér á árunum, þegar vötn
brutuzt úr farvegum við Vindheimabrekk-
ur og gera varð sérstakar ráðstafanir, svo
að þau spilltu ekki löndum bænda.
* * *
Víst hafa Héraðsvötn hvarflað sitt á hvað
um landsvæðið í Vallhólmi, og tilhneigingu
munu þau hafa til þess í framtíðinni. En
nútíminn hefir yfir tækjum að ráða, sem
vinna stórvirki og mun geta beint þeim í
farvegu sína svo að bændur í Hólmi hafi
frið með ræktuðu löndin sín.
Víður og fríður er Skagafjörður. Hann
býður börnum sínum ærið starf og bjarta
frjálsa framtíð.
Er það furða þó að ungir menn, sem eitt-
hvað vilja, hyggi á framkvæmdir og fram-
tíð við slík skilyrði?
Nei, það er engin furða.
Er það undarlegt þó að ungir ráðunautar
brenni af þrá eftir að sjá stórvirki gerast í
sínu eigin héraði, unnin af félögum og sam-
herjum?
Nei, það er ekkert undur.
í því felzt skáldskapur vorra tíma að gera
ónýtt land að akurlendi. Það er líka lista-
verk að skapa gróðursæld þar sem nú er
mosi eða mæðustrá. Þeir, sem slík hlutverk
leysa, eru engu síður listamenn en hinir, er
gera líkneski úr gráum steini, eða móta hluti
úr leir.
Það er rúm fyrir marga, og mikilhæfa, og
mikilvirka, listamenn á löndum Skagafjarð-
ar, og hann mun fagna veru þeirra og vist
og gera verk þeirra ódauðleg, rétt eins og
skáldskapur Hjálmars og Stepháns hefir
flutt hróður Skagafjarðar víða og gert þá
fræga.
Þannig er að vísu víðar en í Skagafirði.
Svo er víða um okkar lítt numda land.
G.
Áskrifendur:
Athugið hvort ykkur vantar í síðasta ár-
gang FREYS. Vér bætum úr eftir getu ef
ykkur vantar einstök blöð.
Einnig viljum vér vekja athygli á, að
eftirtalda árganga er hægt að fá, og ættu
menn strax að panta það, sem þeir hafa
í hyggju að fá áður en upplag þrýtur.
Það sem til er fyrir 30. árg. kostar kr.
2.00 árgangurinn + burðargjald.
31.—40. árg., samtals 10 árgangar, kosta
kr. 50.00 (burðargjald meðtalið).
41.—46. árg. (árin 1946—51) kr. 25.00 ár-
gangurinn (burðargjald meðtalið).
47. árg. (árið 1952) kr. 50.00 árgangur-
inn (burðargjald meðtalið).
Einstök laus blöð fá áskrifendur ókeypis.
Búnaðarblaðið Freyr.