Freyr - 01.01.1953, Qupperneq 17
FRE YR
11
MJÓLKURÍLÁT OG HREINSUN ÞEIRRA.
MJÓLKURHÚS.
1. Aldrei skal nota zinkhúðuS ílát, t. d.
venjulegar vatnsfötur, því að zink leys-
ist upp í mjólk og myndar í henni
sölt, sem skaðleg eru heilsu manna.
Enn fremur er mjög erfitt að þrífa slík
ílát.
2. Aidrei skal nota gleruð (emailleruð)
ílát, því að glerhúðin vill brotna og
blandast mjólkinni.
3. Nota skal ílát úr ryðfríu stáli, alúmíni
eða tinhúðuðu járni eða stáli. Að sjálf-
sögðu er ryðfrítt stál bezt.
Ef mjólkurílátin eru ekki nægjanlega vel
hreinsuð, eru þau hættulegar gróðrarstíur
fyrir alls konar gerla og sveppi. —
Við hreinsun mjólkuríláta er mjög áríð-
andi að hafa gott mjólkurhús. Ekki skal
það vera í beinu sambandi við fjósið, því
að tryggja verður örugglega, að fjósaþef-
ur berist ekki inn í það.
7 mjólkurhúsi skal vera útbúnaður til
þvotta á mjólkurílátum, handlaug, hand-
þurrkur, þvottaefni og burstar, enn frem-
ur grind til að hvolfa mjólkurílátunum á
eftir hreinsun.
Sömuleiöis skal þar vera góð lcœliþró.
1. Þegar eftlr mjalti'r skal skola mjólk-
urílátin með köldu vatni til þess að
burtu mjólkurleifarnar.
2. ílátin skulu síðan þvegin úr heitu sóda-
vatni; nota skal harðan bursta, ekki
klút eða tusku. Áríðandi er að sjóða
burstann eftir liverja notkun.
3. Síðan skal skola ílátin með sjóðandi
vatni.
4. Því næst skal hvolfa ílátunum á hreina
grind eða hengja á vegg. Varast skal
að þurrka ílátin með klút eða tusku.
Þau eiga að þorna af sjálfu sér.
5. Áður en mjaltir hef jast næst, skal nota
ilátín með klórkalks- eða germidín-
blöndu, en að því búnu skola ílátin
með vatni.
NOTKUNARREGLUR:
Klórkalk.
Nota skal 2 vel fullar matskeiðar af klór-
kalki (duft) í 10 lítra af vatni.
Germidín.
Nota skal 1 matskeið af germidíni (lög-
ur) í 10 lítra af vatni.
MJALTAVÉLAR.
Fyrst er farið var að nota mjaltavélar
gerðu menn sér vonir um, að unnt væri að
fá mjólkina mun hreinni en með hand-
mjöltum. Vonir þessar hafa nær algerlega
brugðizt.
Reynslan hefir og sýnt, að hirðing vél-
anna er svo mikið vandaverk, að ekki er
trúandi fyrir því nema sérlega hreinlegu
og vandvirku fólki, en því miður er hreins-
un vélanna víða mjög ábótavant. Enn
fremur virðist júgurbólga tíðari í fjósum,
þar sem þær eru notaðar, enda margir
framleiðendur hættir að nota þær af þeirri
ástæðu.
Handmjaltir, sem framkvæmdar eru með
vandvirkni og fullkomnu hreinlœti, eru
langoftast öruggari og betri fyrir gœði
mjólkurinnar, enda víðast hvar handmjalt-
að á þeim búum erlendis, sem framleiöa
barnamjólk.
KÆLING MJÓLKUR.
Síðara meginatriðið: að stöðva vöxt og
viðgang gerla, sem komizt hafa í mjólkina,
er í því fólgið að kcela mjólkina fullkom-