Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.01.1953, Qupperneq 18

Freyr - 01.01.1953, Qupperneq 18
12 FREYR lega, því að tímgun gerla er mjög ör í volgri mjólk. Vegna þessa er þvi mjög áríðandi að kæla mjólkina þegar eftir mjaltir í sírennandi vatni, og nauðsynlegt er, að kælivatnið sé fyrir neðan 10° á Celcius. Gæta verður þess, að yfirborð vatnsins sé hærra en mjólkur- innar. Ekki skal þéttloka ílátunum, meðan kæling fer fram. Rétt er að taka fram, að kæling mjólkur í snjó á vetrum er ófullnægjandi, því að brúsinn bræðir frá sér snjóinn, og mynd- ast þá um brúsann lag aí' kyrru lofti, en það leiðir mjög illa hita. Slík kæling er allt of seinvirk. Enn fremur er loftkæling mjólk- ur ófullnægjandi, jafnvel þótt lofthitinn sé niðri við frostmark. Eftirfarandi tafla sýnir glöggt, hve áríð- andi er að kæla mjólkina vel þegar að mjöltum loknum: 1. Sé mjólkin kæld niður í 5° á Celcius, helzt gerlaf jöldínn nokkurn veginn hinn sami fyrstu 12 klukkutímana. 2. í 10 stiga heitri mjólk fimmfaldast gerlafjöldinn á fyrrgreindum tíma. 3. í 15 stiga heitri mjólk 15-faldast gerla- fjöldinn á sama tíma. 4. í 20 stiga heitri injólk 700-faldast gerlafjöldinn á sama tíma. 5. í 25 stiga hei'tri mjólk 3000-faldast gerlaf jöldinn á sama tíma. Tafla þessi sýnir, hve áríðandi er að kæla mjólkina sem bezt, ef koma á í veg fyrir, að gerlafjöldi nái að aukast í mjólkinni. Að síðustu þetta: Hafið ávallt í huga við framleiðslu mjólk- ur að halda gerlunum í skefjum, fyrst og fremst með því að hindra, að þeir komizt í mjólkina, og síðan með því að koma í veg fyrir viökomu þeirra, sem komizt hafa í hana. Leggjumst því öll á eitt: Framleiðum eingöngu fyrsta flokks mjólk. Að því marki skal stefna, og ætti það ekki að vera langt undan, ef mjólkurframleiðendur viðhafa fullkomið hreinlætí við mjaltir, meðferð mjólkur og mjólkuríláta. Kjörorðið er því: FULLKOMIÐ HREINLÆTI. Kári Guðmundsson, mjólkureftirlitsmaður. Múmíuhveiti Fyrir nokkru síðan fluttu blöðin fregnir af því, að danskur stórbóndi hefði eignast útsæði af hveiti, sem fengið hafi verið úr grafhvelfingu suður í löndum og sé þúsunda ára gamalt, en hafi þó haldið spírunarhæfni sinni og gefið uppskeru — ekki minni en þúsundfalda. Fylgdi það sögunni, að bónd- anum hafi verið boðið stórfé fyrir hveitið, en hann ekki viljað selja, því að hann geri sér vonir um glæsilegan árangur af ræktun þessa hveitis. Þessi tilkynning hefir að vonum vakið mikla eftirtekt víða um lönd, og þá einkum þar, sem kornrækt er stunduð. í fyrsta lagi spyrja menn, hvort mörg þúsund ára gamalt korn geti spírað. Menn eiga því að venjast, að þriggja ára gamalt korn sé því nær óhæft til spírunar og undantekning ef nokkurt korn spíri úr því að útsæðið er 5—6 ára. Þess vegna er það talið með öllu ósennilegt, að nokkur þúsund ára gamalt korn geti spírað og hér sé því um að ræða annan ald- ur útsæðis, en sagan hermir. Hitt getur aftur á móti staðist, að bónd- inn hafi fengið 1000 falda uppskeru — þ. e. 1000 korn á strái, sem vaxið er upp af einu korni. Það lítur glæsilega út að svo geti ver- iö. Venjuleg uppskera af hverri flatarein- ingu lands er að vísu aðeins 20-40 falt út- sæðismagnið, en ekkert er þvi til fyrirstöðu, að eitt og eitt korn geti gefið mörg hundruð

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.