Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1953, Side 19

Freyr - 01.01.1953, Side 19
FREYR 13 sinnum eigin þyngd. Margföldun eins korns segir hinsvegar ekkert um hvað mikil upp- skera fæst af ha lands. Eftir að fregnin um þúsund korn á einu strái múmíuhveitis barst um landið í sum- ar fóru ýmsir að athuga hvort skeð gæti, að á dönskum ökrum væri hliðstætt til annars- staðar en hjá múmíuhveitisbóndanum. Þá var það, að smábóndi einn á Fjóni fann á akri sínum plöntu eina, vaxna af einu hveitikorni. Hann sendi Pedersen-Dalum skólastjóra á Dalum plöntuna, en þar voru taldir kjarnar á stráum hennar. Út frá einni rót höfðu vaxið nokkur strá og öll höfðu þau þétt öx, enda stóð plantan sjálfstæð á miklu vaxtarrými. Við talningu kom í ljós, að í öxum hennar voru 4000 hveitikorn. Uppskera á akri bóndans var ekki nema rúmar 30 tunnur á ha þrátt fyrir kjarnauðgi þessarar einu plöntu. Nýr þúfnaskeri Á nokkrum býlum hér í Bolungarvík hag- ar þannig til, að undir þau liggja allvíð- áttumikil stakþýfð engjalönd, sem auðvelt mundi að slá með sláttuvél ef stakþúfur væru numdar á brott. Ábúendur þessara jarða hafa um alllangt skeið haft áhuga fyrir að eignast þúfnaskera, er hentaði til að framkvæma þessa sléttun; hefir oftlega verið leitað eftir kaupum á slíku tæki hjá þeim verzlunarfyrirtækjum í landinu, er fást við verzlun með landbúnaðarvélar, en án árangurs. Fyrir 2—3 árum keypti Guð- mundur Magnússon, bóndi á Hóli, jarð- ýtu frá járnsmíðaverkstæði Steindórs Jó- hannessonar, Akureyri, ætlaða til að setja framan á heimilisdráttarvél „FARMALL-A", en Guðmundur á eina slíka vél. Hefir hann einkum notað ýtuna til jöfnunar lands og til að ýta saman með heyi á sumrum. Á s. 1. sumri datt Guðmundi í hug hvort eigi myndi unnt að smíða þúfnaskera, er vel hentaði til framangreindrar sléttunar og festa hann framan á ýtuna. Ræddi hann málið við bændur, er áhuga höfðu fyrir því og varð að ráði að fara á fund Valtýs Gíslasonar vélsmiðs, er starfar hjá Vél- smiðju Bolungarvíkur, kynna honum hug- mynd þessa, og fá hann til að .gera hana að veruleika. Valtýr er mikill hagleiks- maður, og vel menntur í sinni starfsgrein. Málalok urðu þau, að Valtýr smíðaði þúfna- skera, sem festur er framan á fyrrnefnda ýtu. Hefir tæki þetta nú verið reynt, og er skemmst þar af að segja, að það virðist sérlega heppilegt til að anna því hlutverki, sem því er ætlað. Á þessu hausti hafa á þennan hátt verið sléttaðar stórar lands- spildur í engjalöndum Hóls og Meirihlíðar í Hólshreppi. Telja hlutaðeigandi bændur að svo vel hafi til tekizt um smíði á tæki þessu, að eigi muni áður hafa verið kost- ur á jafn hentugu verkfæri til þessara nota. Skerinn er mjög einfaldur að gerð og auð- velt að stilla hann þannig, að hann skeri þúfurnar í réttri hæð, svo að landið sé slétt eftir. Eigi þarf mann til að stjórna skeranum annan en þann, sem vélinni stjórnar. Bændur eða aðrir, er kynnu að hafa þörf fyrir svona tæki, geta snúiö sér til Valtýs Gíslasonar vélsmiðs í Bolungar- vík, sem fúslega mun smíða skera fyrir þá, er þess kynnu að óska. Þórður Hjaltason. SœnsJcar votheysrannsóknir. Talið er að verðgildi þess fóðurs, sem Svíar verka í vothey, sé nú að minnsta kosti 50 milljóna króna virði árlega (þ. e. um 170 millj. ísl. kr.). Rannsóknarstarfsemi hefir verið all mikil vegna votheysverkunarinnar um undanfarin ár, en nú á að auka hana að miklum mun. Útflytjendasamband landbúnaðarins hefir heitið hálfri milljón króna (sænskra) í þessu skyni og auk þess hafa nokkur fyrirtæki lofað viðbótarfé svo að gagngerðar rannsóknir verði framkvæmdar á þessu sviði á komandi árum. Er það ætlunin að hér vinni í félagi og hver á sínu sviði: grasafræðingar, vélaverkfræðingar, bygginga- fræðingar, lífefnafræðingar, bakteríufræðingar, fóður- fræðingar og mjólkurfræðingar.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.