Freyr

Årgang

Freyr - 01.01.1953, Side 21

Freyr - 01.01.1953, Side 21
FREYR 15 sumar. Kartöflur brugðust að mestu. Hvít- kál var því nær höfuðlaust í haust, en í'innskar gulrófur sæmilegar; aðrar teg. gul- rófna að mestu í njóla. Dilkar voru misjafn- ir í haust, betri hér á Skriðuklaustri en í fyrra haust og fullorðið fé víðast vænna en í fyrra. Ég sáði Flöjabyggi 16. maí í vor. Það „skreið“ síðasta júlí, en þroskaðist ekki. Hafði kímið dáið og myndaðist því enginn kjarni. Ég hefi ræktað bygg um 10 ára skeið og hefir það ávallt þroskast, þar til nú, en ávallt áður hefi ég haft Dönnesbygg. Þessi köldu sumur vekja ýmsar hugrenn- ingar og kenna þau ekki minna, eru ekki síður reynzludrjúg en hin betri árin. Mjög víða er kvartað um grasleysi, líka á túnum og af þeirn sökum lítinn heyfeng. Hér á Skriðuklaustri tel ég að grasspretta hafi alltaf verið góð og jafnvel ágæt, líka s.l. sumar, þar sem áburður hefir verið notað- ur nægur. Mín skoðun er, byggð á talsverðri reynzlu, að gras þurfi aldrei að skorta, ef vel er borið á, og jörð ekki dauð af kali á stórum, samfelldum breiðum. Til þess að tryggja góða sprettu þarf að bera á hvern hektara um 100 kg af hreinu köfnunarefni, 70—90 kg af fosfórsýru og 50—100 kg af hreinu kalí. Jafnvel meira á nýræktarlönd, sem gerð eru á ófrjóu mólendi og er þá bú- fjáráburður mjög nauðsynlegur með. Fos- fórsýru og kalí á aldrei að láta vanta, ekki á gömul tún og ekki þótt búfjáráburður sé notaður, nema um gömul og þrautræktuð tún sé að ræða, eða mikið magn búfjár- áburðar. Eins til tveggja ára sáðsiéttur á aldrei að svíkja um fosfór og kalí. Bændur kvarta almennt um lélegt eða „svikið" grasfræ síðustu árin. Ég sáði sams- konar grasfræi og aðrir vorið 1951 á Skriðu- klaustri í 4 ha. Ég fékk mjög sómasamlega uppskeru, bar líka á svipað og að framan er nefnt. Og tegundirnar voru nær eingöngu hásveifgras og vallarfoxgras, sem í heyinu gætti, en vallarfoxgrasið tek ég fram yfir allt annað fóðurgras. Um varanleika þess í þessum sáðsléttum er að vísu of snemmt að segja enn, en ekki óttast ég að vinglar og sveifgras verði lengi að fylla eyðurnar, ef vallartoxgrasið hverfur. En áburð má ekki skorta. Bóndi, sem á 2 kýr, aðra úrvals mjólkurkú, en hina stritlu og fóðrar báðar kýrnar með þörf stritlunnar fyrir augum, á á hættu að drepa góðu kúna úr hor, þótt hin geti verið í bezta útliti. Sáðgresið gerir meiri kröfur til áburðar en gömlu túnjurtirnar, borgar oftast vel, það sem vel er gert við það, en deyr blátt áfram úr hor, ef það vantar áburð. Ég hygg að ekki ósjaldan sé áburð- arskortur orsök lélegs árangurs af sáðsléttu- ræktuninni. En rétt er það, að háliðagras hefir skort í grasfræblönduna og háliða- grasið er harðgerð grastegund. Er sjálfsagt að þeir, sem óska, geti fengið það í blönd- um. Ég sakna þess ekki, það rýrnar mjög við þurrk, ef snemma er slegiö, og sprettur alltaf fljótt úr sér. Hitt má svo vera aug- ljóst, að ekki hentar að hafa sömu grasfræ- blöndu í alla jörð og um allt land. Vallar- foxgrasið er t. d. harðvellisjurt og mun alls ekki þola mjög rakan jarðveg. Hásveifgras- ið á erfitt í mjög þurrum og sendnum jarð- vegi o. s. frv. Annars eru nú í gangi á öllum tilraunastöðvunum grasfrætilraunir, og skal þetta því ekki rætt frekar hér. Hvaö er hægt að slá hektara í sáðsléttu á skömmum tíma? Ég ætla að tilgreina dæmi af sáðsléttunni í Skriðutanga s.l. sumar. Ég hefi „Farmall" sláttuvél. Stykkið er 3 hektarar, 100 m breitt og 300 m langt. Grasið var hátt og þétt á öðrum helmingi þess, en gisnara og minna nær bakkanum; hafði liðið þar af þurrki. Þetta stykki sló ég á 6 og % klukkustundum eða 2 y3 stund hektarann. Þurfti þó alloft að stanza á öðr- um helmingi þess vegna hnausa, sem vildu setjast á tindana. En ég hafði ungling með um stund, þar sem helzt var hætta á að festist í greiðunni. Þetta var skemmtilegt verk og að mínu viti vel unnið og slátturinn var vel af hendi leystur. Fróðlegt væri að heyra úr öðrum áttum dæmi um, hve langan tíma tekur að slá hektarann, þar sem gott er land og stór stykki tekin fyrir í einu lagi.

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.