Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2005, Síða 6
6 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Ekki króna
frá Alþingi
Það liggur ekki ljóst fyrir
hvemig Mannrétt-
indaskrifstofa íslands
mun fjármagna starf-
semi sína fyrir árið
2006. Fmmvarp til
íjárlaga liggur fyrir
Alþingi, en ekkert er
þar að finna um fjárframíög
til skrifstofunnar. „Við skor-
um á Alþingi að færa ffam-
lög til hennar í fyrra horf til
að tryggja áframhaldandi
starfsemi skrifstofunnar og
sjálfstæði,“ segir Guðrún D.
Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri. Stofan leitar
styrkja frá almenningi, fyrir-
tækjum og stofnunum á
heimasíðu sinni human-
rights.is.
Sektaðurfyrir
hass ogspitt
Kolbeini Hlyni Tómas-
syni, 38 ára Reykvíkingi, var í
gær gert að greiða 60 þús-
und króna sekt í ríkissjóð
vegna eins gramms af
amfetamíni og tæpra fimm
gramma af hassi sem Lög-
reglan í Reykjavík fann á
honum í mars á þessu ári.
Kolbeinn játaði brot sín ský-
laust og mótmælti ekki nið-
urstöðu dómsins. Auk sekt-
arinnar var Kolbeini gert að
sæta upptöku fyrrgreindra
efna.
Á landsliðið
séns á móti
Pólverjum?
Guölaugur Baldursson,
þjálfari IBV.
„Er ekki alltafséns þegar farið
er I leiki? Þannigjá, býst ég við
að við eigum alveg séns. En
við eigum kannski ekki jafn
mikinn séns og þeir að vinna
leikinn. Ég myndi segja að við
hefðum á brattann að sækja I
leiknum, það er ekki
spurning."
Hann segir / Hún segir
„Já, klárlega. Þegar við miss-
um menn.þá eigum viðyfir-
leittstærra hjarta þannig að
við eigum góðan séns. Ungu
leikmennirnir okkar eru bara
það góðir að þeir eru fullfærir
um að spila þennan leik vet.
íslenska hjartað mun fleyta
mönnum áfram."
Ellsabet Gunnarsdóttir,
þjálfari kvennaliðs Vals.
Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti í gær fjárnámskröfu Jóns Ólafssonar á
hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni. Vegna ummæla sinna um Jón Ólafsson
er Hannes nú tólf milljónum króna fátækari. Hvorki Jón né Hannes telja málið
búið og ætla að leita réttar síns frekar.
Jón drakk kafíi mefian
Hannes tapafii milljónum
Jón Ólafsson athafna-
maður Hyggstkeera Hannes
fyrir að brjóta lögbann
breskra dómstóla á ummæli
Hannesar.
Prófessorinn Hannes Hólmsteinn Gissurarson er 12 milljónum
fátækari eftir að Sýslumaðurinn í Reykjavík samþykkti fjárnáms-
kröfu Jóns Ólafssonar í gær. Fjárnám var gert í skuldabréfi sem
Hannes hafði gefið út á Kjartan Gunnarsson, vegna kaupa Kjart-
ans á húsi Hannesar á Hringbraut. Hannes neitar að játa sig sigr-
aðan og vill taka málið upp að nýju.
Lögmenn Jóns Ólafssonar og
Hannesar Hólmsteins Gissurarson-
ar mættu til Sýslumannsins í Reykja-
vík, stundvíslega klukkan korter yfir
eitt í gær. Heimir Örn Herbertsson
var þungur á brún og gaf ekki færi á
viðtölum meðan Sigríður Rut Júlíus-
dóttir brosti sínu breiðasta og sagði
að Jón myndi ekki mæta.
Meðan lögfræðingar börðust á
lokaðri skrifstofu sýslumanns drakk
Jón Ólafsson kaffi með ævisögurit-
ara sínum Einari Kárasyni á Kaffi-
brennslunni.
Baráttan heldur áfram
Niðurstaðan af fundi lögfræðing-
anna hjá Sýslumanni var Hannesi
Hólmsteini í óhag. Heimir Örn Her-
bertsson, lögmaður Hannesar,
reyndi allt sem hann gat til að Hann-
es fengi gálgafrest - bað um að
málinu yrði frestað og sagði Hannes
tilbúinn að leggja fram tryggingu.
Allt kom fyrir ekki. Sýslumaður var
óhagganlegur. Fjárnámið var sam-
þykkt.
Viðbrögð Jóns Ólafssonar og
Hannesar Hólmsteins
eru ekki ólík.
Báðir
þeir að
halda bar-
áttunni
áfram.
Hannes braut lögbann
„Hannes hefur brotið lögbann
breskra dómstóla með því að stað-
festa ummæli sín í fjölmiðlum hér á
landi,“ segir Jón Ólafsson. Af orðum
hans má dæma að ekki sé ólíklegt að
Jón muni fara fram á frekari skaða-
bætur frá Hannesi Hólmsteini, sem
hefur þegar selt húsið sitt Kjartani
Gunnarssyni vegna málsins.
Hannes segist ætla að kreljast
endurupptöku á málinu í Bretlandi.
Hvort sú endurupptaka verði hon-
um í hag er erfitt að segja.
Berst gegn valdaklíkunni
Með ákvörðun Sýslumannsins í
Reykjavík í gær er enn einum kafla í
baráttu Jóns Ólafssonar gegn and-
stæðingum sínum lokið. Hann
hefur nú bæði unnið meið-
„Hannes hefur brotið
lögbann breskra dóm-
stóla með því að stað-
festa ummæli sin í
fjölmiðlum hér á
landi."
yrðamál gegn Davíði Oddssyni og
nú liggur góðvinur Davíðs, Hannes
Hólmsteinn, undir.
Meðan Jón Ólafsson drekkur
kaffi og ræðir um viðburðaríka ævi
sína er kannski viðburðaríkasti kafl-
inn að skrifa sig sjálfur.
simon@dv.is
ætla
Logfræðingamir
funda SigríðurRut
Júliusdóttir og Heimir
Örn Herbertsson
mæta til Sýslumanns.
Hannes Hólmsteinn
Gissurarson prófessor
Ætlar að áfrýja til Héraðs-
dóms og vill taka málið
aftur upp I Bretlandi.
— , I
Fjölskylda ofbeldismannsins Tinds Jónssonar
„Okkur líður bara illa"
Gæsluvarðhald yfir Tindi Jóns-
syni, höfuðpaúrnum í sveðjuárás-
inni í Garðabæ um síðustu helgi,
rennur út í dag. Félagar hans tveir
Þórður Kárason og Helgi Guð-
mundsson eru þegar lausir úr haldi.
Jón Sæmundsson, framkvæmda-
stjóri Nonna og Manna og faðir
Tinds, segir fjölsky'ldunni líða illa
vegna málsins.
„Okkur líður bara illa. Öllum í
fjölskyldunni. Við vonum að menn
nái heilsu," segir Jón Sæmundsson
en vildi lítið annað segja um málið.
Móðir Tinds er læknir og á Tind-
ur fimm systkini. Hann er það sem
kalla má „vandræðabarnið" í fjöl-
skyldunni.
Lögreglan í Hafnarfirði hefur lítið
getað skýrt út atburðarásina um síð-
ustu helgi þar sem 17 ára drengur
var högginn með sveðju og höfuð-
kúpubrotinn. Enn hefur sveðjan
ekki fundist en vitni í málinu
sagði Tind hafa farið heim
til sín eftir árásina, skipt
um föt og mætt svo aft-
ur í teitið áður en lög-
reglan kom.
Eftir rannsókn lög-
reglu mun málið verða
sent til ákæruvaldsins.
Tindur hefur áður
verið dæmdur fyrir lík-
amsárás og rauf tveggja
ára skilorð með árásinni
um síðustu helgi.
Tindur Jónsson ofbeld-
ismaður Fjölskyldu hans
líður illa en Tindur losnar
úr gæsluvarðhaldi i dag.