Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2005, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2005, Side 10
J 0 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005 Fréttir 0V Ingólfur er skipulagður, um- hyggjusamur og traustur vin- ur. Ákafur en hófsamur og hógvær. Hann er maður orða sinna og skemmtilegur. Hann er stundum ofskipu- lagður og þarfað bæta bakkastið sittþegar hann er í veiði. „Hann er mjög traustur vinur og ráðaheill og það stendur alltaf alltsem hann segir. Hann er gegnheill bæði sem vin- urog I viðskiptum og þrælskemmtilegur á góðri stund. Hann er últraskipulagður og þótt það sé í flestum tiifellum kostur þá getur hann I einstaka tilfell- um átt erfitt með að fara út úr boxinu. Hann er mikill prinsipp- maðuríeinu og öllu." Arni Oddur Þórðarson, framkvæmda- stjórihjá fjárfestingafélaginu Eyri. „Hann ermjög umhyggjusamur og mun örugglega verða góður faðirþvi hann bermikla um- hyggju fyrir mér og ástandi mínu en við eig- um von á okkar fyrsta barni. Hann er líka mjög skemmtilegur, heiðarlegur og heilsteypt manneskja. Segir alltafsína meiningu og gerir það mjög fallega. Einnig er hann einstaklega snyrtilegur og gleymir til dæmis aldrei að setja kiósettsetuna niðureða að ganga frá kaffibollanum á morgnana. Ég get bara ekki fundið á honum neina galla!“ Hanna Birna Björnsdóttir, viðskipta- fræðingur og kona Ingólfs. „Hann er mjög skipulagður maður og hefur sérkennilegt jafnvægi á ákafa og hófsemi. Hann er kær og góður vinur og er uppáhalds- veiðifélagi minn enda er hann frábær veiöimað- ur. Hann er örlátur við vini slna og fjölskyldu og gefur mikið afsér. Einnig er hann lltillát og hógvær mann- eskja. Ég sé I rauninni enga galla á honum nema þá helst að hann þyrfti að bæta bakkastið". Hilmar Janusson, þróunarstjórí hjá Öss- uri hf. Ingólfur Helgason er fæddur 4. október 1967 og er kvæntur Hönnu Birnu Björns- dóttur. Hann hófstörfhjá Kaupþingi árið 1993 en tók nýverið við stöðu Hreiðars Más Sigurðssonar sem forstjóri KB banka. Samúel Örn Hérheima í garðinum í Kópavogi. Samúel Örn Erlingsson, íþróttafréttamað- ur hjá Ríkissjónvarpinu, stefnir á fyrsta sætið í prófkjöri Framsóknarflokksins í Kópavogi. Hann á góða möguleika; systir hans bæjarfulltrúi í Árborg og eiginkonc og dóttir landsfrægar fótboltastjörnur í Breiðabliki og landsliðinu. Sex slást um fyrsta sætið á lista Framsóknarflokksins vegna bæj- arstjórnarkosninganna í Kópavogi. Rétt áður en frestur rann út barst skeyti frá Samúel Erni Erlingssyni, íþróttafréttamanni á Ríkissjónvarpinu, og færðist þá fyrst hiti í leikinn. Framsókn íArborg," bætir hann við. Ekki er að efa að Samúel öm lítur bæjastjórastarfið í Kópavogi hýru auga en fyrsta sætið á lista Fram- sóknar ætti að gefa góða möguleika þar á sam- kvæmt hefð. Sigurður heitinn Geirdal var lengi eini bæjarfulltrúi Fram- sóknarflokksins í Kópavogi en sat þó traustur í bæjar- stjórastólnum og jók fylgi flokksins jafnt og þétt. Nú er Fram- sóknar- flokkur- inn „Hann er þekkt andlit úr sjón- varpinu og svo hafa kona hans og dóttir gert það gott í knatt- spymunni hér í Kópavogi," segir Einar Kristján Jóns- son, formaður fulltrúaráðs Framsóknarflokksins í Kópavogi. „Ég veit ekki til þess að Samúel Öm hafi tekið þátt í flokksstarfinu héma en hitt veit ég að syst- ir hans er bæjarfulltrúi fyrir Sigurður heitinn Geirdal Bæjarstjórinn sem stórjók fylgi Framsóknarflokksins I Kópavogi. með þrjá fulltrúa í bæjarstjóm Kópa- vogs. Boltarætur Samúel öm hefur verið búsettur í Kópavogi lengst af en Ásta B. Gunn- laugsdóttir, kona hans, er rótgróinn Kópavogsbúi og landsfræg knatt- spymukona í Breiðabliki. Greta Mjöll dóttir þeirra hefur einnig og ekki síð- ur gert það gott í kvennaknattspym- unni og var valin sú efnilegasta í Landsbankadeildinni í sumar. Hinirfimm Aðrir sem sækjast eftir fyrsta sæt- inu á Framsóknarlistanum í Kópá- vogi em: Hjalti Bjömsson, ráðgjafi hjá SÁÁ, Jóhann Valdimarsson rekstrarfræðingur, Iinda Bentsdóttir lögfræðingur, Ömar Stefánsson bæj- arfulltrúi og Una María Óskarsdóttir, fyrrverandi aðstoðarkona umhverfis- ráðherra. Ásta B. Gunnlaugsdóttir Rótgróinn Kópa- vogsbúi með sterkar rætur í kvennaknatt- spyrnunni I Breiðabliki. Prófkjör Framsóknarflokksins í Kópavogi fer fram 12. nóvember næstkomandi. Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 ili BETUSAN Náttúruvaktin fordæmir grunnskólasamkeppni Landsvirkjunar Vesturbæjarskóli ætlar ekki að taka þátt „Málið var rætt á fundi skólastjóm- enda og innan foreldrafélagsins þar sem ákvörðun var tekin um að taka ekki þátt í samkeppninni," segir Krist- ín G. Andrésdóttir, skólastjóri Vestur- bæjarskóla, um þau áform Landsvirkj- unar að halda samkeppni í grunnskól- um landsins þar sem verðlaunin em að leggja homstein að Kárahnjúka- virlqun. Náttúmvaktin, félag náttúmvemd- arsinna, segir í yfirlýsingu að íslenskir grunnskólar eigi að hafa að leiðarljósi eins hlutlausa fræðslu og unnt er. Grunnskólasamkeppni Landsvirkjun- ar raski öllu slíku jafnvægi og misbjóði þeim stóra hluta þjóðarinnar sem er andsnúinn virkjunarframkvæmdun- um. Skorað er á fræðsluyfirvöid, skóla- stjómendur, kennara og foreldra að leggjast á eitt um að afstýra sam- keppninni. Jason ívarsson, aðstoðarskólastjóri Austurbæjarskóla, segir að ekki sé búið að taka ákvörðun um hvort Aust- urbæjarskóli taki þátt. „Það er aðeins búið að fjalla um þetta í skólastjóminni en ekki búið að taka ákvörðun enn,“ segir Jason. Hann segir viðbrögð fólks við samkeppninni blendin. „Þetta er svoh'tið eldfimt efni," segir Jason. Hanna Hjartardóttir, skólastjóri Snælandsskóla og formaður Skóla- stjórafélags íslands, segir að málið hafi ekki verið rætt á almennum fundi. „Þetta hefur samt verið rætt mikið og fólk er undrandi yfir að nokkrum skuli detta í hug að koma með svona eldfimt efifi inn í grunnskólana," segir Hanna. svavar@dv.is Hanna Hjartardóttir Skóiastjóri Snæ- landsskóla er undrandi yfír því að nokk- rum skuli detta slik samkeppni I hug.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.