Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2005, Qupperneq 14
74 FÖSTUDAGUR 7. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Flinkir
Indverjar
Indversk þyrlusveit sést
hér æfa sig yfir Nýju-Delí
fyrir hátíðarhöld indverska
flughersins, sem verða
haldin á morgun. Þá heldur
flugherinn upp á 73 ára af-
mæli sitt með skrúðgöngu
og flugsýningu.
Fólkið á bak
við tjöldin
Húsfreyja og dyravörður
á heimili Tonys Blair forsæt-
isráðherra sjást hér hreinsa
rauða dregilinn fyrir utan
Dovmingstræti 10 í gær. Þau
voru að undirbúa komu
Jalals Talabani, forseta íraks,
sem ræddi við Blair um
komandi kosningar í írak.
Fimm ár
frá Slobo
Á miðvikudaginn héldu
Serbar upp á að fimm ár
voru liðin frá því að Slob-
odan Milosevic var hrakinn
frá völdum. 5. október árið
2000 flykktust mörg hund-
ruð þúsund Serbar út á göt-
ur miðborgar Belgrad og
heimtuðu að Milosevic
segði af sér. Hann hafði þá
tapað í kosningum eftir 10
ára harðstjórnartímabil og
ætlaði sér að stjórna áfram.
I _______* -f - m
Spánn ætlar
að reyna
Aðstoðarforsætisráð-
herra Spánar Maria de la
Vega sagði í gær að Spánn
ætlaði sér að taka á móti
hluta þeirra innflytjenda
sem eru í haldi á spænsku
landamærastöðinni Ceuta í
Marokkó. Ófremdarástand
hefur ríkt þar í rúma viku
vegna fjölda innflytjenda
sem ætlaði að smygla sér til
Evrópu en náðist.
Töffari á hjólinu
Samband Toms og
Katie var fyrst um
sinn talið auglýs-
ingabrella til að
vekja athygli á
myndum þeirra Wt
ofthe Worlds og
Batman Begins.
meðan á tökum á myndinni War of
the Worlds stóð sá hann til dæmis
til þess að Vísindakirkjan væri með
tjald á tökustað tif að freista þess
að snúa fólki til trúarinnar. Hann
hefur farið í margar kynningar-
ferðir til að fá fólk í kirkjuna og er
eitilharður talsmaður hennar.
Lee Anne Devette, umboðsmaður Toms Cruise og systir, sendi
út tilkynningu í gær þar sem fram kemur að bróðir hennar og
leikkonan Katie Holmes eiga von á barni. Þau hafa verið sam-
an frá því í apríl og tilkynntu um trúlofun sína í júní. Eftir að
hann bað hennar á toppi Eiffelturnsins.
Stuttu seinna lét hann hafa það
eftir sér að hann langaði mikið til að
eignast annað bam og stofria fjöl-
skyldu með Holmes. Cruise á tvö
ættleidd böm með fyrrverandi eig-
inkonu sinni Nicole Kidman. Þau
heita Isabella og Connor og eru 12
og 10 ára. Cruise og Kidman em
með sameiginlegt forræði yfir þeim.
Hélt í meydóminn
Katie Holmes er 26 ára gömul
en Cruise er 43 ára. Hún hefur
áður látið hafa það eftir sér að
strax í menntaskóla hafi hún
strengt það heit að halda í mey-
dóminn þar til hún giftist. Cmise
virðist hafa talað hana ofan af því.
Cruise hefur verið meðlimúr
hinnar svokölluðu Vísindakirkju
um árabO og finnst mörgum sem
hegðan hans að undanförnu sé
mjög lituð af trúarbrögðunum. Á
Orðrómur um óléttu Holmes
komst á kreik fyrir nokkmm dög-
um. Þá mætti parið á fótboltaleik í
skóla dóttur Toms og horfði á hana
leika. Holmes var klædd í víða
hettupeysu og að sögn viðstaddra
var hún föl að sjá. Talið er að hún
sé komin þrjá mánuði á leið, sem
þýðir að erfinginn fæðist í mars.
Brjálaður af ást
Það kemur fæstum á óvart að
Tom Cruise eigi von á barni með
Katie Holmes. Samband þeirra
byrjaði með miklu offorsi í vor og
Tom mætti meðal annars í viðtal
til Oprah Winfrey þar sem hann
fórnaði höndum þegar hann túlk-
aði ást sína á Holmes. Hann var
talinn hafa misst glómna í kjölfar-
ið en leiðrétti orðróminn í spjall-
þætti: „Ég er ekki brjálaður, ég er
bara brjálaður af ást."
Vísindakirkjan ræður
Katie Holmes gekk í Vísinda-
kirkjuna skömmu eftir að hún tók
saman við Cmise. Kunnugir segja
að meðlimir kirkjunnar hafi sagt
henni að verða ólétt um leið og
þau væru búin að tilkynna trúlof-
un sína.
Gamli umboðsmaður Cmise
lagði mikla áherslu á að hann tal-
aði sem minnst um trú sína opin-
berlega. Stjarnan rak aftur á móti
umbann og réð systur sína í stað-
inn. Hún er líka í Vísindakirkjunni.
„Öll fjölskyldan er spennt yfir
þessu. Ég get hins vegar ekki sagt
hvort þetta er stelpa eða strákur.
En Katie hefur aldrei liðið betur,"
sagði umboðsmaðurinn, systir
Toms, í gær. Parið sjálft hefur enn
ekki tjáð sig um óléttuna.
„Ég er ekki
brjálaður, ég
er bara brjál-
aðurafást."
Tom Cruise, stærsta kvikmyndastjarna heims, tilkynnti í gær
að hann ætti von á barni með unnustu sinni Katie Holmes.
Parið hefur verið mikið á milli tannanna á fólki að undanförnu
en mörgum þótti sambandið minna á slaka auglýsingabrellu.
Áttatíu stúlkur taka þátt í fegurðarsamkeppni í Manila
Allar vilja vera ungfrú Jörð
Glæsilegar/i(íaf/u
stúlkur taka þátt í Ung-
frúJörð.
Gaman í
vinnunni
| Ljósmyndar-
arnirsýna
stúlkunum
mikla athygli.
Asískar Hérstilla
keppendur frá löndum
Aslu sér upp saman.
Margir mglast á öllum fegurðar-
samkeppnunum sem haldnar em
árlega víða um heim. Ein heitir Ung-
frú alþjóðleg, önnur Ungfrú heimur.
Þessa dagana er haldin keppnin
Ungfrú Jörð í Manila á Filippseyjum.
Þar em mættar um 80 fegurðar-
drottningar frá jafnmörgum löndum
heimsins til að keppa um titilinn.
Ungfrú jörð er talin með þremur
bestu ungfrúarkeppnunum ásamt
Ungfrú heimi, sem Linda Pé og
Hólmfríður Karlsdóttir unnu,
og Ungfrú alheimi.
í verkahring sigurvegarans
er að vekja jarðarbúa til með-
vitundar um umhverfismál.
Hann flakkar á milli landa og
plantar trjám, hjálpar til við alls
kyns hreinsanir og hvetur fólk
til að endurvinna mslið sitt.
Ungfrú Jörð verður valin 23.
október.
Annarfellibylur
Hitabeltisstormurinn Stan jókst
að styrk og var. skilgreindur sem
fellibylur einmitt um það leyti sem
hann gekk yfir Mið-Ameríku og
Mexíkó á miðvikudaginn. Um 130
manns létust í bylnum og fjöldi
annarra slasaðist. Gvatemala varð
einna verst úti en sökum mikils
regns í kjölfar bylsins runnu heilu
fjallshlíðarnar niður í aurskriðum.
Þegar versta veðrinu slotaði óð fólk
út í drulluna til að reyna að finna
vini og ættingja sem lentu í skrið-
unum.