Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2005, Page 22
22 M'ÍÖVltöbfá'Ök 26. dKTÖM"2Ó05
Sporfltv
HólmfríðuríKR
Hólmfríður Magnúsdótt-
ir, leikmaður ÍBV, hefur
ákveðið að ganga til liðs við
KR. Hún sagði í samtali við
DV Sport í gær að hún væri
ekki enn búin að skrifa und-
ir samning en enn væri ver-
ið að ganga frá lausum end-
um íVestmannaeyjum. Þar
með er ljóst að ÍBV verður
auk hennar án Elínar önnu
Steinarsdóttur og Olgu Fær-
seth. Það er því ekki mikið
eftir af liði ÍBV og verður að
teljast sem svo að ffamtíð
meistaraflokksins sé í mikilli
hættu.
Moyes bauðst
til aðsegjaupp
Óstaðfestar heimildir í
enskum netmiðlum herma
að David Moyes, knatt-
spymustjóri Everton, hafi
boðist til að segja starfi sínu
lausi í kjölfar slæmrar byrj-
unar liðsins í ensku úrvals-
deildinni. Everton vann
fyrsta leikinn í haust en svo
ekki söguna meir fyrr en lið-
ið varð það fyrsta til að ná
stigi af Chelsea á tímabilinu
er liðin gerðu 1-1 jafntefli á
sunnudag. Forráðamenn
liðsins munu hafa hafnað
boði Moyes umsvifalaust.
O'Leary neitar
David O’Leary, knatt-
spyrnustjóri Aston Villa, hef-
ur alfarið
hafnað
ásökunum
enska knatt-
spyrnusam-
bandsins að
hafa hreytt
fúkyrðum í
dómara
leiks Aston
Villa og
Birming-
ham sem
fór fram þann
síðastliðinn. Aston Villa
vann grannaslaginn 1-0 en
þetta var fyrsti sigur O’Leary
á Birmingham sem stjóri
Aston VUla. Að leik loknum
hljóp hann yfir þveran völl-
inn til að fagna sigrinum og
mun hann hafa hlaupið
framhjá Graham Poll, dóm-
ara leiksins, og sent honum
ansi kaldar kveðjur um leið.
16. október
Úrslit leikja í gær
E V R o P A
UEFA-BIK ARINN
3. umferö (úrslit aö loknum venjulegum
leiktlma:
Doncaster Rovers-Gillingham 2-0
Crystal Palace-Liverpool 2-1
Aston Villa-Burnley 1-0
Wigan-Watford 1-0
Fulham-West Bromwích Albion 2-2
Sunderland-Arsenal 0-3
MansfieldTown-Millwall 2-3
Blackburn-Leeds United 3-0
Reading-Sheffield United 2-0
Þó svo að hafnabolti sé ekki hátt skrifuð iþrótt hér á landi er hún samofin banda-
rísku þjóðarsálinni en dregið hefur til stórtíðinda í íþróttinni undanfarið. í fyrra var
það frægt þegar að Boston Red Sox lyftu álögum Babe Ruth eins og það var kallað og
er nú komið að Chicago White Sox að horfast í augu við drauga fortíðarinnar.
fllipm -lyft-annaö árið í röð
M 3 ■ ■ ■ ■
all-Century Team
Goðsögn ShoelessJoe
Jackson er enn þann dag I
dag goösögn hjá stuön-
ingsmönnum liðsins.
mm
' ......................................................
Þrjár kvikmyndir sem
DV Sport mælir með:
Fyrir ári fór bandarískt þjóðfélag
á annan endann þegar Boston Red
Sox vann loksins aftur heimsmeist-
aratitilinn í hafnabolta eins og titill-
inn er nefndur þarlendis. Þar með
var áiögum goðsagnarinnar Babe
Ruth lyft. Annað mál sem átti sér
stað á svipuðum tíma, árið 1919, hef-
ur nú verið rifjað upp í ljósi þess að
annað félag, Chicaco White Sox, er á
barmi þess að vinna titilinn eftirsótta
og lyfta þar með sínum eigin álög-
um.
„Curse of the Bambino" heita
álögin sem Babe Ruth er sagður hafa
lagt yfir Boston Red Sox fyrir að selja
sig frá félaginu til erkifjendanna í
New York Yankees. Það gerðist árið
1920 en tveimur árum áður hafði
hann orðið meistari með Boston.
Eftir þessa sölu, sem eigandi félags-
ins keyrði í gegn til að geta fjármagn-
að söngleikinn „No, No, Nannette",
vann Boston ekki titilinn þangað til í
fyrra.
Aðeins nokkrum vikum áður en
Babe Ruth var seldur frá Boston kom
upp eitt umdeildasta mál í sögu
bandarískra íþrótta. Árið 1919 voru
átta leikmenn Chicago sakaðir um
mútuþægni og að tapa viijandi úr-
slitarimmunni um heimsmeistaratit-
ilinn. Þeir voru í kjölfarið dæmdir i
lífstíðarbann ffá íþróttinni af forráða-
mönnum hafnaboltaforystunnar.
Einn áttmenninganna var „Shoe-
less" Joe Jackson sem hefur almennt
verið talinn einn sá allra besti sem
komið hefur fram í íþróttinni frá
upphafi. Honum var gefið að sök að
hafa viljandi leikið illa þó svo að
frammistaða hans í leiknum hafi
ekki gefið slíkt til kynna. Engu að síð-
ur var hann ákærður eins og Jiinir
sjö. Málið fór fyrir dómstóla og var
Jackson sýknaður en hlaut þrátt fyrir
það ekki náð fyrir augum forkálfa
íþróttarinnar.
Allar götur síðan hafa fræðimenn
jafnt sem áhugamenn frekar hallast
að sakleysi Jackson. Málið mun hafa
haft mikil áhrif á hann sjálfan en
hann kom aldrei aftur við sögu
hafnabolíans nema að mjög tak-
mörkuðu leyti. Enn þann dag í dag
deila menn og þræta um réttmæti
þess að hafa útskúfað Jackson eins
og var gert en honum var til að
mynda aldrei veittur sess í frægðar-
höll hafnaboltans (Baseball's Hall of
Fame) og gremst það mörgum mjög.
Úrslitarimma Chicago White
Sox og Houston Astros er þegar haf-
in og eru liðsmenn Chicago nú með
2-0 forystu eftir tvo sigra á heima-
velli. Næsta viðureign fer fram í
nótt á heimavelli Houston. Á leið
sinni í úrslitarimmuna sló Chicago
út Boston Red Sox fremur auðveld-
lega, 3-0, en fjóra sigra þarf nú til að
tryggja titilinn eftirsótta. Þessi tvö
sögufrægu lið mættust einmitt í úr-
slitunum árið 1918, þegar Boston
vann titilinn í síðasta sinn í 86 ár -
ári á eftir að Chicago White Sox
vann sinn síðasta titil.
eiríkurst@dv.is
Field of Dreams (1989)
Byggð á bókinni„Shoeless í
Joe“ eftir W.P.Kinsella og Vb jÉP
segir frá Ray Kinsella (Kevin
Costner) sem byggir hafna-
boltavöll á akri i lowa til
heiðurs Jackson. Almennt talin ein
besta bandarisk kvikmyndin um iþróttir.
Eight Men Out (1988)
Byggð á samnefndri bók
eftir Eliot Asnof. Fjallar um
þegar átta leikmenn
Chicago White Sox voru j
sakaðir um að hafa þegið
mútur frá veðmöngurum til að tapa úr-
slitarimmunni um titilinn árið 1919.
The Perfect Catch (2005) W'
Byggð á bókinni„Fever
Pitch“eftir Nick Hornby.
Staðfærð bandarisk útgáfa yfj,-^
afbókinni en myndin fjall- ~~ V' a?
ar um áhanganda Boston '
Red Sox. Myndin var gerð
um svipað leyti og Boston varð meistari i
fyrra og þurfti að breyta handritinu eftir
þvi. Er sýnd i islenskum kvikmyndahús-
um um þessar mundir.
Evrópumeistarar Liverpool duttu úr enska deildarbikarnum
Heiðar með sitt fyrsta mark fyrir Fulham
Þrír íslendingar voru í eldlínunni
þegar níu leikir fóru fram í ensku
deildarbikarkeppninni í gærkvöldi.
Heiðar Helguson skoraði sitt fyrsta
mark fyrir Fulham en hann jafnaði
metin gegn WBA á lokamínútu
venjulegs leiktíma. Heiðar var í byrj-
unarliði Fulham en úrslit leiksins
voru ekJd ljós fyrr en eftir að DV fór í
prentun.
Óvæntustu úrslit kvöldsins voru
án efa er Evrópumeistarar Liverpool
töpuðu fyrir fyrstu deildarliðinu
Crystal Palace á útivelli. Liverpool
stillti svo sem ekki upp sínu
sterkasta liði en þó mátti sjá menn
eins og Sami Hyypia, Stephen
Warnock, Steven Gerrard, Didi
Hamann, Harry Kewell, Fernando
Morientes og Peter Crouch. Engir
aukvisar eins og sjá má. Leiknum
lauk með 2-1 sigri Crystal Palace en
Steven Gerrard jafnaði metin fyrir
Liverpool á 40. mínútu. Dougie
Freedman og Marco Reich skoruðu
mörk Crystal Palace.
ívar Ingimarsson var í byrjunarliði
Reading sem vann 2-0 sigur á Sheffi-
eld United. Brynjar Bjöm Gunnars-
son var hvfldur og sat á varamanna-
bekk Reading allan leikinn.
Gylfi Einarsson nældi sér í gult
spjald í leik Leeds og Blackburn sem
síðarnefnda liðið vann 3-0. Gylfi lék
allan leikinn fyrir Leeds.
Þá vann Arsenal 3-0 sigur á
Sunderland en óhætt er að segja að
Arsene Wenger hafi verið óhræddur
við að gefa reynsluminni leikmönn-
um liðsins tækifæri eins og hann
gerir alltaf í þessari keppni.
Emmanuel Eboue og Robin van
Persie (2) skomðu mörk Arsenal.
eirikurst@dv.is
Þriggja ára
samningur
Ásgeirs
Eins og DV
greindi frá í
gær verður Ás-
geir Eh'asson
næsti þjálfari
Fram. Hann
skrifaði í gær
undir þriggja
ára samning
við félagið og
bíður hans það verkefni að koma
liðinu upp í efstu deild á ný en
Fram féll í haust í fyrstu deildina.
Ásgeir hefur áður lent í sömu
sporum en hann tók við liðinu
fyrir tímabilið 1996 en þá var lið-
ið nýfallið í fýrstu deild. Hann
kom liðinu strax aftur upp en fyr-
ir það hafði hann unnið þrjá ís-
landsmeistaratitla og þrjá bikar-
meistaratitla með liðinu.
DV-mynd Reuters