Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2005, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 2005
LlfiO DV
Á meðan frægt fólk vestanhafs lendir í skotbardögum og deyr úr of stórum skammti
eiturlyfja eru allir prúðir hérna á íslandi. Það er ekkert fútt í fræga fólkinu. Eftir
frétt gærdagsins um að Jenni í Brain Police hafi verið stunginn er ekki annað hægt
en að athuga hverjir hafa komist í kast við lögin af þeim frægu hér á landi.
Einar Ágúst Víðisson, fyrrverandi júróvisjánfari og Skítamóralsmeð-
limur, er hinn eini sanni islenski bad boy. Hann var handtekinn í eitur-
lyfjabösti lögreglunnar sem seinna varð þekkt
undir nafninu Dettifossmálið en þar voru
15 kíló af amfetamíni gerð upptæk.
Samkvæmt lögregluskýrslu var Einar
að kaupa sér ein 50 grömm afspítti
og neitaði hann í viðtali að hafa
verið með slíkt magn á sér. Hann
sagðist hafa verið með fjögur til
fimm grömm og að sá skammtur
myndi endast honum i dágóðan
tíma, enda væri hann einungis
„diskóbytta". Einar mætti svo ekki
fyrir dóm og sagði faðir hans í
samtali við DVað Einar væri á
drykkjutúr. DV fjallaði mikið um m
ið og launaði Einar því lambið
með því að gefa biaðamanni
krók á skemmtistaðnum Sólo
dag er Einar kominn á beinu
brautina og er útvarps-
maður á FM957 en
Kiss FM hafa einnig
reynt að narra
hann til sín,því
vist er að slæmi
strákurinn Einar
Ágúst er flottur
útvarpsmaður.
Erpur Eyvindarson má eiga það að hann er bölvaður bad boy líka.
Hann var búinn að hneyksla höfuðborgina með hárbeittum og dóna-
legum textum. Hann var búinn að móðga dreifbýlið með atriðum sín-
um í Johnny National og
fólk hugsaði: Hvað er
næst? Hinn pólitíski og
vinstrisinnaði Erpur lét
til skarar skríða eina
nótt með félögum sín-
um og kastaði bensín-
sprengju I bandaríska
sendiráðið. Sprengjan
var svo sem ekki stór I
sniðum en það var
greinilegt að húsið
þyrfti að mála upp á
nýtt. Eftir að hafa sofið
úr sér I fangageymsl-
um lögreglunnar var
Erpur sýknaður i hér-
aðsdómi, en var á end-
anum dæmdur til þess
að greiða gommu af
seðlum i Hæstarétti.
Erpur sagði svo I lagi
að hann væri stoltur af
því að kasta sprengju
„í stað sem kennir línu-
dans."
Jens Ólafsson, söngvari I Brain Police,
lenti nú aldeilis nýlega I bobba. Hann var
stunginn I lærið af sambýliskonu sinni El-
ínu Guðlaugu Hólmarsdótt-
ur og komst á forsiðu
DV fyrir vikið. I viðtali
við DV kemur fram
að þau hafí verið að
drekka áfengi og að
eftir mikið rifrildi
hafi Jenni verið
stunginn, en að eigin
sögn hafa þau
aldrei slegist og
eru lítið ofbeldis-
fólk. Jenni má
þó eiga það að
hann er alveg
rosalegur
rokksöngv-
ari.
Björk Guðmundsdóttir
lúbarði Ijósmyndara á
flugvelli eitt sinn.
Ljósmyndarinn var
að reyna að taka
mynd afsyni hennar,
þegar Björk óð I hann.
Það var ekki„so qui-
et". Björk hratt afstað
mikilli bylgju i Ijós
myndarabarsmíð
um en fjöldi
stjarna hefur
tekið upp á
því að lemja
Ijósmyndara
síðan Björk
gerði það.
Það má næstum því segja að Árni John-
sen hafí stolið jólunum, en allir
ættu að kannast við fjár-
glæpi hans. Margir
vilja meina að brot
Árna hafí í raun
legið I þeim hræði-
legu skúlptúrum
sem Árni gerði á
meðan hann sat inni
á Kvíabryggju. Hann
kýldi svo Hreim í Eyj-
um en þeir eru víst
vinir dag.
Það eru svo margar sögur um hljómsveit-
ina Jet Black Joe að það hálfa væri nóg.
Það er allavega ein afþeim sem er sönn
og það er þegar þeir voru að spila á Sjall-
anum á Isafírði. Þar brutust út heljarinnar
hópslagsmál sem náðu alla leið út á götu.
Lögreglan átti fullt í fangi með að stöðva
slagsmálin en þar slógust vist menn með
öllu tiltæku, meðal annars borðum og
stólum. Það eru til mun fleiri sögur um Jet
Black Joe og villtar skemmtanir þeirra á
árum sínum I bransanum.
Þröstur iMínus sem er oftast þekktur sem
Bassafanturinn slóst við Friðrik Weiss-
happel inni á Kaffibarnum. Lögreglan var
reyndar ekki kölluð til en myndir afátök-
unum birtust íSéð og heyrt. Ekki er vitað
hver hafði betur en veðbankar veðja víst
á Bassafantinn. Það er alltaffjör í því að
sjá stjörnurnar slást.
Stefán Hjörleifsson gítarleikari var ákærð-
ur ásamt Kristjáni Ra og Árna Þór fyrir fjár-
drátt. Hann varsá eini
sem ekki fékk
neinn dóm og
slapp algjör-
lega með
skrekkinn.
Bobbi
samt sem
áður.
Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur er
58 ára í dag. „Af því hann er fædd
leynilögga finnst honum
hann hafa fullan rétt til að
vera leyndardómsfull
manneskja. Ólíklegt er að
hann opinberi neitt sem
er of persónulegt og það
er reyndar ágætur kostur í
fari hans," segir í stjörnu-
spá hans.
Gísli Guðjónsson
í f
ft
Vatnsberinn
Þú ert minnt/ur á það hérna að þeir
sem leita stöðugt að öryggi halda áfram
að leita alla ævi án þess að finna það
sem leitað er að.
Fiskarnir (i9.febr.-20.man)
Þú býrð yfir þeirri góðu gáfu
að láta hverjum og einum finnast hann
eða hún vera sólin í lífi þlnu og það eflir
þig á tilfinningasviðinu.
M\\)fm(21.man-19.aprll)
Mikilvægt er að þú áttir þig á
að reiði er viðbragð. Hér kemur fram
mislyndi og hlédrægni því þú þarfnast
án efa geysilega viðurkenningu um
þessar mundir. Slakaðu á og hugaðu að
jafnvægi þínu ef skapið flækist fyrir þér
kæri hrútur.
Nautið (20. aprH-20. mai)
Ekki gefa drauma þína upp á.A
bátinn því þeir lifna svo sannarlega við
innan tíðar.
Tvíburarnirfií. maí-21.júnl)
Þú ert fær um að endurmeta
verðmæti alls í tilveru þinni en mættir
setja þér tlmamörk og taka á málum
Ifðandi stundar.
JSBfe Vjabbm (22.júnl-22.júlQ__________________
Óhófleg bönd við minningar
fortlðar eru þér ekki fyrir bestu og eitt
stærsta verkefni þitt er án efa að sleppa
takinu af ýmsum gömlum minningum
og lifa algjörlega f nútíðinni.
LjÓnÍðc3./ií//-22.<?9iíst)
I upphafi ástarævintýris getur
þú heillað næstum hvaða manneskju
sem er. Hlustaðu betur og vertu þolin-
móðari og hættu að taka á þig hálfa
ábyrgðina á mistökum sem þú hefur
jafnvel upplifað í samböndum fortíðar.
Meyjan 0. ágúst-22. sept.)
Næsti kafli sem þú ert um það
bil að ganga í sýnir þig í góðu jafnvægi
þar sem bjartsýni og friður einkennir
Þíg-
Vogin (23.sept.-23.okt.)
Jafnvægi ríkir milli þín og fé-
laga þinna og sú vinátta hjálpar þér að
takast á við hvaða hindranir sem kunna
að verða á vegi þínum. Allir vegir eru
þér færir og það veistu innra með þér.
Sporðdrekinn (24.okt.-nm.)
Ef marka má stjörnu sporð-
drekans hefur andlegur þroski náðst og
næsta skref birtist þar sem nýr kafli
hefst. Birta umlykur þig hérna.
Bogmaðurinn 12in0v.-21.des.j
Óskir þlnar eru um það bil að
rætast og erfiðir tímar tilheyra fortíð
þinni en mikilvægt er að þú vitir að
hugarfar þitt skiptir miklu máli ef vel á
aðganga.
Steingeitin (22.des.-19.janj
Sigurganga þín er um það bil
að hefjast þar sem velgengni einkennir
þig. Óendanleg tækifæri leita þig uppi
og þú munt grípa þau á hraðri leið inn í
hamingjuna.
SPÁMAÐUR.IS
4