Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Lúðvík í
launastríð
Lúðvík Geirsson hefur
lagt til atlögu gegn
kynbundnum
launamun. Á bæj-
arstjómarfundi í
fyrradag lagði hann
fram ályktun um að
skipa starfshóp
sem hefði það hlut-
verk að fara kerfis-
bundið í gegnum launa-
kerfi bæjarins til að kanna
hvort þar sé að finna kyn-
bundinn launamun innan
sambærilegra starfa. Finn-
ist slíkur munur skal hon-
um verða „útrýmt," eins og
segir f ályktuninni. Bæjar-
stjórn samþykkti þessa til-
lögðu Lúðvíks samhljóða
og því er baráttan gegn
launamun kynjanna hafin í
Hafnarfirði.
Auður áfram
gegn Hannesi
Mál Auðar Laxness gegn
Hannesi Hólmsteini Giss-
urarsyni var tekið fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur í
gærmorgun. Auður höfðaði
málið vegna meintra brota
á höfundarrétti í bók
Hannesar um Halldór.
Áður hafði héraðsdómur
vísað því ffá en Hæstiréttur
vísaði því aftur í hérað að
frátalinni skaðabótakröfu
sem vísað var frá dómi. Því
verður höfðað nýtt bóta-
kröfumál með skaðabóta-
kröfu á öðmm grundvelli
en þeim sem vísað var frá
dómi. Gert er ráð fýrir að
málin verði sameinuð í
héraðsdómi þann 19. des-
ember.
Skila auðu á
samræmdu
„Við höfðum samband
við alla háskóla í landinu
og spurðum hvort þeir færu
eftir þessum prófum," segir
Alda Marín Kristinsdóttir
sem fer fyrir hópi nemenda
við Fjölbrautaskóla Suður-
lands sem berst gegn sam-
ræmdum stúdentsprófum.
„Þeir neituðu því allir." Á
miðvikudaginn var fundur
á sal skólans þar sem próf-
unum var mótmælt og
hvatti Alda nemendur til að
skila prófunum auðum,
sjálf hyggst hún gera það.
Álda segir prófin ekki þjóna
neinum tilgangi nema að
gera nám í framhaldsskól-
um einsleitari.
DV hefur kært utanríkisráðuneytið til úrskurðarnefndar um upplýsingamál vegna
neitunar á ósk um lista yfir handhafa þjónustu- og diplómatískra vegabréfa. Mörð-
ur Árnason hefur tekið málið upp á þingi og lagt fram fyrirspurn til Geirs H. Haar-
de utanrikisráðherra.
Morður spyr Geir
um diplómatapassana
„Þessi úrskurðarnefnd á ekkert við um þingið. Þingið á að fá þær
upplýsingar sem því sýnist," segir Mörður Árnason, þingmaður
Samfylkingarinnar. Hann hefur lagt fram fyrirspurn á þingi um
einstaklinga með diplómatísk vegabréf og þjónustuvegabréf.
Geir Haarde þarf að svara eftir mest tíu virka daga frá því þing-
fundir hefjast aftur 3. nóvember.
Fyrirspurn Marðar fer formlega
inn á þingið 3. nóvember en þingið
snýst mikið ,til um fundi og gerist
ekkert milli þeirra. Mörður fer sér-
staklega fram á að fá svör flokkuð
eftir töluliðum annarrar greinar
reglna um diplómatísk vegabréf og
þjónustuvegabréf. í fyrirspurn
Marðar er farið fram á upplýsingar
um handhafa þessara diplómata-
passa eins og sá listi lá fyrir 1. sept-
ember. Það er áður en DV fór að
garfa í þessu máli sem ætlar að reyn-
ast talsvert stærra en ætla mátti í
fyrstu - en leyndin sem yfir listanum
hvílir gefur ástæðu til að ætla að far-
ið hafi verið frjálslega með vegabréf-
in.
Upplýsingar sem eiga að vera
öllum opnar
DV kærði utanrfldsráðuneytið
fyrir nokkru til úrskurðarnefndar
um upplýsingamál. Ráðuneytið
hafði lofað að taka saman lista yfir
handhafa þjónustuvegabréfa og
diplómatískra vegabréfa en skyndi-
lega kom babb í bátinn. í bréfi frá
Helga Gíslasyni kom fram að ráðu-
neytið hafnaði beiðninni og bar fyrir
sig persónuvernd. Merði þykja þær
skýringar langsóttar.
„Þetta er úthlutun á gæðum.
Stuðst er við ákveðnar reglur og er
opinber athöfn. í lýðræðisríki á
þetta að vera öllum opið," segir
þingmaðurinn.
Maðkur í mysunni?
Mörður telur starfsmenn ráð-
herrans, utanríkisráðuneytið, koma
í veg fyrir eðlilega og nauðsynlega
blaðamennsku af hálfu DV. Hann
bendir jafnframt á að í reglum um
þetta sé tiltekið hverjir eigi rétt á
þessum bréfum eftir embættum,
stöðum og hlutverki ýmiss konar.
„Og það getur ekki verið leyndarmál
hver er forseti íslands eða aðstoðar-
maður utanríkisráðherra þannig að
nefndir séu tveir nokkuð ólíkir
handhafar diplómatískra vegabréfa.
Og er ekki sjálfsagt að allir megi vita
um þá sem fá þessa passa á öðrum
forsendum? Nema þá að sé maðkur í
mysunni?"
Fjölmiðlar í fullum rétti
Nú er málið, að undirlagi Marðar,
komið til kasta löggjafarvaldsins en
því ber samkvæmt stjórnarskrá að
hafa eftirlit með ffamkvæmdavald-
inu. Af tæknilegum ástæðum er far-
ið fram á að svar Geirs sé skriflegt
enda er hér um að ræða lista yfir
fimm hundruð manns eða svo að
mati Marðar.
„Ég hef í sjálfu sér enga ástæðu til
að halda annað en að allt sé með
felldu. Ég tel hins vegar að DV og
aðrir fjölmiðlar hafi fullan rétt á að
fylgjast með þessu. Úr því að utan-
rfldsráðuneytið færist undan því að
svara ykkur mun ég láta á það reyna
hvort utanrfldsráðherra mun gera
slfld hið sama og vflcja sér undan því
að svara Alþingi þessu."
Siv Friðleifsdóttir er varaformað-
ur utanríkisnefndar. Hún telur ekki
líklegt að þetta mál komi fyrir
nefndina. Aðspurð segist
ekki vilja tjá sig um það hvort
eðilegt megi teljast að leynd
hvfli yfir því hveijir eru hand-
hafar vegabréfanna. Hún hafi
ekki kynnt sér málið nægjan
lega vel til þess.
jakob@dv.is
Mörður Árnason Krefurut-
anrikisráðherra svara og vill
fáað vita hverjirséu hand-
hafar diplómatískra - sem
°g þjónustuvegabréfa.
Geir H. Haarde
Meröi leikur forvitni á
að vita hvort Geir
Ibregstviðlíktog
skrifstofa hans, utan-
I ríkisráðuneytið, og
I neiti að upplýsa um
I málið.Mörðurvillfá
I flokkaðan lista yfír
3 handahafa bréfanna
I eins og sá listi var 1.
1 september.
Siv Friðleifs-
dóttir Varafor-
maður utanrikis-
nefndar telur
óllklegt að málið
komi tilkasta
nefndarinnar.
Hún villekkitjá
sig um hvort
leyndin sé eðli-
leg - hefur ekki
\kynnt sér málið.
Hjálpum þeim - kaupmönnunum
Utanrikisráðuneytið Harðneitar DV um
aðfá lista yfir handhafa diplómatapassa
Það hefur verið kært og hefur nú Mörður
lagt fram fyrirspurn til löggjafarvaldsins
Jólin 2005 geta orðið kaupmönn-
um erfið. Helstu áhyggjur þeirra eru
þær að ekki fáist starfsfólk til að
vinna í verslunum þá daga sem opið
er lengur en venjulega.
Á þessu hefur Svarthöfði skilning
enda ekki við öðru að búast en að al-
menningur vilji sinna jólainnkaup-
um frekar en að binda sig við af-
greiðslustörf þessa skemmtilegu
daga og kvöld þegar aðventan geng-
ur í garð. Og þá ekki síst þegar haft er
í huga hitt áhyggjuefni kaupmann-
anna, að gert er ráð fyrir að velta
verslana verði fimm milljörðum
meiri í ár en í fyrra. Því verða af-
Svarthöfði
greiðslustörfin erfiðari og erillinn
meiri en venjulega.
Þá hafa kaupmenn af því áhyggj-
ur að ekki fari að snjóa nógu
snemma. Strax og fyrsta mjöllin
þekur jörð kemst fólk í jólaskap og
þeysir af stað til gjafakaupa. Vanti
snjóinn er engu líkara en neytendur
verði hálfdofnir fyrir jólainnkaup-
unum og taki ekki við sér fyrr en á
síðustu stundu og geri þá magnkaup
á Þorláksmessu. Og þá er eins gott
að afgreiðslufólk sé til staðar.
Hvernig hefur þú þaö?
„Ég hefþað rosalega gott. Smáfráhvarfseinkenni eftir brölt slðustu vikna. Er engu að s/ður
kampakátur og mjög ánægður með hátlðina," segir Eldar Astþórsson, einn starfsmanna Hr.
Örlygs, sem stóð að lceland Airwaves-tónlistarhátlðinni.„Þessi vika fer I almennan frágang og
aö pakka saman en þar á eftirýmis eftirvinna, svo sem að safna saman erlendri umfjöllun og
þjónusta blaðamenn með upplýsingar. Næsta stóra verkefnið er svo White Stripes-tónleikarnir
20.nóvember.“
Svarthöfði deilir áhyggjum með
kaupmönnum vegna jólanna. Það
hlýtur að vera gríðarlegt álag á þeim
þegar svo mikið er verslað eins og
allt útíit er fyrir. Að þurfa að sinna
öllum þessum viðskiptavinum,
pakka inn og gefa ráð til hægri og
vinstri getur orðið hverjum manni
ofraun.
Kaupmenn eru engir krafta-
verkamenn sem kljúfa þá tinda sem
öðrum eru ófærir. Allur þorri fólks
verður að sýna kaupmönnum skiln-
ing fyrir þessi jól þegar ytri aðstæður
eru með þeim hætti sem raun ber
vitni. Álagið er ekki og má aldrei
verða kaupmanna einna. Þjóðin
verður að deila þessari byrði með
þeim og létta undir eins og hægt er.
Til dæmis með því að vinna þegn-
skylduvinnu í verslunum fyrir jól
þannig að enginn þurfi að fara í jóla-
köttinn.