Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Qupperneq 18
18 FIMMTVDAGUR 27. OKTÓBER 2005 Sport 0V Lárus Orri þjálfar Þór Lárus Orri Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari 1. deildarliðs Þórs á Akureyri en hann gekk tii liðs við lið- ið er hann sneri úr atvinnu- mennsku síðastliðinn vetur. Lárus þótti spila ágætlega í sumar, sérstaklega síðari part tímabilsins, og hafði hann til að mynda verið orðaður við Grindvíkinga nú upp á síðkastið. Lárus skrifaði í gær undir þriggja ára samning og tekur við starfínu af Serbanum Drag- an Stojanovic. Gunnar Heið- arfær ekki að spreyta sig Markahrókur- inn Gunnar Heið- ar Þorvaldsson fær ekki að spreyta sig hjá öðrum liðum en lið hans, Halm- stad, þverneitar öllum beiðnum sem félagið fær um að fá Gunnar Heiðar til reynslu. Gunnar Heiðar á eitt ár eftir af samningi sín- um og ætli liðið sér að fá eitthvað fyrir hann er líkleg- ast að hann verði seldur þegar félagaskiptaglugginn verður opnaður í janúar næstkomandi. Hann hefur til dæmis verið orðaður við lið í Englandi og Frakk- landi. Baldvin í Þrótti Valsarinn Baldvin Jón Hall- grímsson samdi í gær við lið Þróttar sem leikur í fyrstu deildinni að ári. Hann var í sumar í láni hjá Völsungi sem féll úr fyrstu deildinni en Baldvin var samningsbund- inn Val út næsta ár. „Atli er metnaðarfullur þjálfari og mér iíst vel á áætíanir hans og stjórnarinnar líka. Liðið ætíar sér greinilega beint upp aftur og það er vonandi að maður geti hjálpað til við það,“ sagði Baldvin. Hflfl ISSA AF ÞESSU 19.15 Fimm leikir í Iceland Express deild karla: Höttur-ÍR, Fjöln- ir-Þór, Grinda- vík-Hamar/Selfoss, Nj arð vík-Haukar, Skallagrímur-KR. 18.20 Stump the sSJT1 Schwab á Sýn. Spum- ingaþáttur um íþróttir. 18.50 Valencia-Sevilla í beinni á Sýn. . 20.00 Liðið mitt á | Enska Boltanum. 21.00 NFL-tilþrif á Sýn. Si=m 21.30 Fifth Gear á Sýn. Hópurinn keyrði í gær með rútu frá Magdeburg til Póllands en liðið dvaldi í tvo daga í Þýskalandi í góðu yfirlæti Alfreðs Gíslasonar, þjálfara Magdeburgar. DV Sport hafði samband við Snorra Stein Guðjónsson sem hefur látið ljós sitt skína með Minden í þýsku úr- valsdeildinni í vetur. Hann verður í mikilvægu hlutverki í landsliði Viggós Sigurðssonar og Bergsveins Bergsveinssonar og er þeirra fyrsti kostur í stöðu leikstjórnanda eins og staðan er nú. Það hvílir því mik- ið á herðum Snorra Steins. „Það var mjög fínt að vera í Magdeburg enda allt til alls þar,“ sagði Snorri Steinn. „Það var líka virkilega gaman að hitta strákana aftur enda alltaf góður andi í landsliðshópnum. Við tókum tvær góðar æfingar og fórum þar yfir það sem við höfum áður verið að spila, bæði hvað varðar varnar- og sóknarleik liðsins. Það er ekki stór- vægilegra breytinga að vænta en á morgun [í dag] er fyrsti leikur og þá fyrst reynir á okkur." Snorri segir að allir í landsliðs- hópnum séu vel meðvitaðir um Evrópumótið í janúar og greini legt er að nýta á næstu daga vel til að stilla saman strengi liðs- ins. „Nú er bara að spila hvern leik af krafti og ná svo því besta úr liðinu janúar." Sem fyrr segir hefst leikur Islands og Póllands klukk- an 17 í dag að ís lenskum tíma en á morgun mæta íslending- ar Dönum klukkan 15. laugardaginn er svo komið að leiknum gegn Norðmönnum en hann hefst snemma dags, eða klukkan níu. eirikurst@dv.is rski handboltakappinn Kristian Kjelling í viðtali við VG efur engar áhyggju^rf íslenska landslioinu „ ... mmníct inníi‘íliðsmaðurinn Snor orska stórskyttan Kristi- elling, sem er einn eftir- sti handboltamaður is um þessar mundir, st ekki hafa mikla trú á ska landsliðinu í hand- i ef marka má viðtal við í í norska blaðinu Ver- i Gang. Norska landslið- kur þátt í fjögurra þjóða i í Póllandi sem hefst í ásamt Dönum, Pólverj- og íslendingum og tjáir ling sig um mótið í við- íu. Cjelling segir að mótið sé ig góður undirbúningur fýrir Evrópumótið í Sviss í janúar og segir gott fýrir Norðmenn að fá tvo leiki gegn mjög sterkum liðum „BæðiDan- mörk og Pólland em með mjög góð lið og það verða mjög erf- iðir leikir gegn þeirn," segir Snorri Steinn Guðjónsson Gegnir lykilhlutverki I Is- lenska handboltalandsliðinu sem meetir Pólverjum Idag. DV-mynd Pjetur Stórskyttan Kristi- an Kjefling Hefur ekki miklar áhyggjur af Islendingum. Kjelling en minnist ekki einu orði á ís- lendinga sem em þriðju andstæðingar Norðmanna á mótina Hvort þetta segir eitihvað um stöðu ís- lenska landsliðs- ins í hand- boltaheim- inum í dag skal ósagt látið en landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson benti blaðamanni á að hringja í vikomandi leikmann að leik íslands og Noregs loknum og spyija hann álits á ís- lenska landsliðinu þá. „Já, við virðumst ekki vera hátt skrifaðir en það þarf ekki endilega að vera neitt óeðh- legt Okkur hefur ekki gengið vel í síðustu stórmótum og það þýðir ekkert að fara í fel- ur með það. Að við skulum vera vanmetnir er meiri plús heldur en hitt enda erum við sterkastir í þeirri aðstöðu." Fimmtán stiga tap í Finnlandi Keflavík hóf í gær leik í Áskor- endakeppni Evrópu í körfubolta þegar liðið mætti Lappeenranta frá Finnlandi ytra. Sigurður Ingi- mundarson, þjálfari Keflavíkur, sagði að markmið liðsins hafi verið fyrir leikinn að vinna sigur á Finn- unum og hafi því leikurinn valdið talsverðum vonbrigðum. „Við vorúm ekki að spila vel og má reyndar segja að allir leikmenn liðsins hafi verið að spila undir getu allan leikinn," sagði Sigurður. „Þeir börðust reyndar og lögðu sig fram en það hefði margt mátt vera betra í okkar leik - sóknarleikurinn okkar var til að mynda mjög kafla- skiptur. Við hittum mjög illa.“ Sigurður segir greinilegt að finnska liðið sé gott en ekki of sterkt fyrir Keflavíkurliðið. „Við eigum að hafa nægan styrk í okkar mönnum til að vinna þetta lið. Tapið í dag var allt of stórt." Aðspurður sagði Sigurður að Adrian Henning, bandaríski leik- maðurinn sem Keflavík fékk til að spila með liðinu í Evrópukeppn- inni, hafi ekki staðið sig nógu vel en þetta var hans fyrsti leikur með liðinu. „Hann hefði mátt leggja meira til liðsins. Hið sama má segja um Makedónann og reyndar flesta aðra leikmenn liðsins. Ég held að við eigum nóg inni hjá þessum leikmönnum sem eru ekk- ert sérstaklega góðar fréttir fýrir andstæðinga okkar." Næsti leikur liðsins er gegn BK Riga frá Lettlandi á morg- un. Finnarnir unnu Lettana í fyrsta leik riðilsins og eru því í góðri stöðu en tvö lið komast áfram upp úr riðlinum. Það er því nauðsynlegt fyrir Keflvíkinga að standa uppi sem sigurvegarar gegn lettneska liðinu ætli liðið sér áfram í keppninni. Stig Keflavíkur: AJ Moye 24, Magnús Þór Gunnarsson 16, Adri- an Henning 14, Arnar Jónsson 8, Zlatko Gocevski 5, Gunnar Einarsson 4, Jón Nordal Haf- steinsson 4, Elentín- us Magnússon 2. eirikurst@dv.is Jón Nordal Hafsteinsson Gerðifjögur stig fyrir Keflvík- inga í Finnlandi í gær. DV-mynd Stefán Keflvíkingar byrjuðu ekki nógu vel i Evrópukeppninni íslenska landsliðið í handbolta hefur í dag undirbúning sinn fyrir Evrópumótið í handbolta sem fer fram í Sviss í janúar, Liðið mætir liði Póllands klukkan 17 í dag að íslenskum tíma en leikurinn er sá fyrsti í fjögurra liða móti sem lýkur á laug- ardag. Noregur og Danmörk eru einnig með á mótinu. í dag hefst fjögurra liða mót hand- boltalandsliða i Pól- landi og er ísland þar meðal þátttakenda auk Norðmanna, Dana og heimamanna. Snorri Steinn Guðjónsson segir að gaman hafi verið að hitta hina landsliðsmennina á nýjan leik og að góður andi riki i hópnum. Nútyrst á okkur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.