Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Page 24
-1
Aðalheiður Ólafsdóttir hefur
fyrir löngu heilllað landsmenn með
fagurri rödd sinni, geislandi útliti
og ljúfri framkomu. DV ákvað að
líta í heimsókn til stúlkunnar sem
hefur í mörgu að snúast þessa dag-
anna enda er hún að fylgja plötu úr
hlaði og undirbúa jólin eins og
sannri jólastúlku sæmir.
Tónlistarkonan Heiða hefur fyrir
löngu heillað landsmenn upp úr
skónum með kraftmiklum s.öng sín-
um og ljúfmannlegri framkomu.
Hún gefur út plötuna sína um miðj-
an nóvember. Þetta er svolítið
dramatísk plata en einnig mjög
kraftmikil að hennar sögn. Við
leyfðum okkur að láta okkur dreyma
um hátíðarnar með þessari hæfileik-
aríku jólastelpu.
„Þetta er svona tónlist sem er
auðvelt að setja sig inn í. Ég verð hluti
af laginu og textanum og gleymi mér
þar þegar ég syng þessi lög,“ útskýrir
Heiða og segir að einmitt þannig vilji
hún hafa þetta. „Ég vil segja sögu og
koma henni vel til skila."
Semur þú sjálf?
„Ég geri það. En það verður ekkert
eftir mig á þessari plötu. Mér finnst
ég ekki orðin nógu góður lagasmiður
og er pínu feimin við það. Á plötunni
fæ ég reyndari og betri lagasmiði til
að lána mér lög á plötuna sem auð-
vitað kemur miklu betur út.“
Allt í steik en allt fór vel
„Einu sinni þegar ég var lítil var
búið að vera vont veður á aðfanga-
dag. Eins og gerist nú oft á íslandi.
Allavega þá fór rafmagnið á milli
klukkan fimm og sex á aðfangadag.
Steikin náttúrulega í ofninum og allt
í volli. Við systkynin vorum orðin
pínu stressuð að þurfa að bíða og
bíða eftir pökkunum og svona. Þetta
stóð yfir í smátíma en svo kom
rafmagnið aftur á sem betur fer
þannig að jólahaldið tafðist aðeins.
En allt small á endanum," segir hún
og hlær.
Nauðsynlegt að vera með
fjölskyldunni
„Það er algjörlega nauðsynlegt
fyrir mig á jólunum að vera með mín-
um nánustu. Staðsetning skiptir ekki
öllu máli svo framarlega sem maður
er með þeim sem maður elskar. Alltaf
á jólunum förum við mamma í
messu klukkan sex í kirkjunni á
Hólmavík og á meðan brúnar pabbi
kartöflurnar og slíkt," segir Heiða
dreymin og greinilega mikið jólabarn
þvi tilhlökkunin leynir sér eldd í aug-
um hennar og ómótstæðilegu bros-
inu. „Messan finnst mér æðisleg,
maður fyllist svo miklum friði og
kyrrð og dásamlegt að heyra kirkju-
klukkurnar hringja inn jólin. Mín jól
hafa alltaf verið á Hólmavík og mér
finnst það alveg ffábært. Um leið og
ég er sest í bílinn að keyra burt úr
borginni og á leiðinni til Hólmavíkur I
finn ég kyrrð og allt stress og amstur
líður úr mér. Það er ómetanlegt að
eiga svona griðastað úti á landi."
Hefðirnar góðar
„Jólin snúast auðvitað að miklu j
leyti um hefðir hjá öllum, held ég. Til
dæmis að keyra út jólapakkana sem
mín fjölskylda gerir alltaf á aðfanga-
dag. Og eftir mat og pakka lesum við
jólakortin og förum svo í heimsóknir j
til ammanna og afanna. Ég er nefni-
lega svo rík, föður- og móðurafi og j
amma búa öll á Hólmavík og stutt er j
á milli húsa. Svo auðvitað er allt mat-
arstússið um jólin æðislegt þar sem
ég er mikið matargat. Bakstur og til-
heyrandi er æði. Svo ekki sé nú
minnst á skötuna á Þorláksmessu
sem mér finnst algjört nammi og >
nauðsynlegur partur af jólaundir-
búningnum," segir Heiða þegar
kvatt er og bætir við að hún verði á
Hólmavík með fjölskyldunni sinni.
„Það verður æði og ég hlakka strax
mikið til að hlaða batteríin."
elly@dv.is