Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Side 27
DV Fréttir FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 27 Halldór Laxness fær nóbelsverðlaun Á þessum degi árið 1955 úhlutaði sænska akademían Halldóri Laxness rithöfundi bókmenntaverðlaun Nóbels, fyrstum íslendinga. Nóbelinn fékk hann fyrir að „enudmýja hina miklu íslensku frásagnarlist," eins og sagði í umsögn akademíunnar. Hann veitti verðlaununum viðtöku í Stokk- hólmi þann tíunda desember. HaUdór Guðjónsson fæddist þann 23. apríl á Laugavegi 32 í Reykjavík, sonur hjónanna Guðjóns Helga Helga- sonar og Sigríðar Halldórsdóttur. Þremur árum síðar flutti hann með fjölskyldu sinni á bæinn Laxnes í Mos- m m fellssveit. Halldór lauk gagnfræðinámi árið 1918 en hætti í menntaskóla 1919. Það sama ár kom fyrsta skáldsaga hans, Bam náttúrunnar, út. Halldór nam erlendis, fyrst hjá benediktarmunkum í Lúxemborg 1922 til 1923 og síðan í kristmunkaskóla í London 1923 til 1924. Árið 1923 skírðist hann til kaþólskrar trúar og tók um leið upp nafitið Kiljan eftir kaþólskum dýrling. Vefarinn mikli frá Kominn heim með Nóbelinn ÞúsundirIslend- inga hylltu Halldór þegar hann kom heim frá SvtþjóO eftir að hafa veitt Nóbeln- um viðtöku í Svíþjóö. Kasmír er uppgjör við kaþólska tímabil Halldórs og síðargerðist hann ein- arður sósíalisti eins og sjá má í ritgerðum Alþýðu- bókarinnar. Halldór dvald- ist langdvölum erlendis en frá 1945 átti hann fast heimili að Gljúfrasteini í Mosfellssveit. Halldór Kiljan Laxness lést þann 8. I dag árið 1647 lést líallgrímur Pétursson, prestur og skáld, 60 ára að aldri. Hann var eitt helsta trúar- skáld íslendinga og hafa Passíusálmar hans verið gefnir út yfir sextíu sinn- um. febrúar 1998,95 ára að aldri. Efirlifandi eiginkona Halldórs er Auður Sveins- dóttir Laxness og eignuðust þau tvær dætur, Sigríði og Guðnýju. Fyrri kona Halldórs var Ingibjörg Einarsdóttir Laxness og er sonur þeirra Einar Lax- ness. Með Málfríði Jónsdóttur eignað- ist Halldór dóttirina Maríu. Ur bloggheimum Um nýjan Ópal „Hver er ábyrgur fyrir þvi að koma með nýtt útlit á opal pakkana sykur- lausulégerbúinað kviða þessu í nokkur ár, búin að kvlða því að það sé eitthver þarna úti með nógu mikil völd ognógu lélegan smekk sem komi svona slysi á markaðinn. en ég keypti mér samt einn. og sykurlausa appelsín í plasti." Diljá Ámundadóttir - dilja.blogspot.com Paris Hilton Flúðamanna „Smelltum okkur svoá Útlagann á laugar- dagskvöldið, og ég verð að viðurkennaþaðaðþaðer spennulosun að koma á þann stað, hann er bara . wtf'- H ] eitthvaösvopasslegastór og Flúðafólkalmennilegt. Verst að maður skyldi ekki rekast á Paris Hilton þeirra Flúðamanna, það er sko skutla I lagi, ójá." Sævar Einarsson -isspissJs Lost! „Held ég hafi aldrei verið jafn spennturyfir neinu sjón- varpsefni og ég eryfir Lost þáttunum. Þetta er án efa besti klukkutími vikurnar, og svo þeir klukkutímar sem fylgja á eftir við að lesa sam- særiskenningar á spjallborðum á netinu, google-a alltsem kom fram og fá hausverkyfirþessu öllu slðan." Oddur Snær Magnússon -oddur.01.is Djöfullmikið afkellingum. „„Djöfull er þetta mikið afkellingum", sagði einn drengur á vinnustaðnum þarsem hann starði ofan i fréttamyndir dagblaö- anna af kvennafrideginum.Já, þetta var reiðinnar ósköp og ég varþarna, með skær- bleikt kröfuspjald á lofti. Það varsvogóð tilfinning að vera með i þessu og ég æpti úr mér lungun. Verst fannst mér að fólk hafði ekki nóg læti. Meðan við stóðum á öskrinu létu sumir eins og þeir væru I likfylgd. Kannski voru þaö konurnar sem gengu fyrir 30 árum, þær sjá að eftir 30 ár hefur litið þokast ijafnréttisbaráttunni og ákveðið að nú þyrfti bara að fylgja henni til grafar, þetta væri tapað spil." Þórhildur Ólafsdóttir - isdrottningin.blogspot.com Lesendur DVeru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar. Geir Ágústsson segir íslendinga hefna sín á aldalangri kúgun Dana með friðsömum samningum en ekki of- beldi. Frjálshyggjumaðurinn segir ■ •* ansrf.’l ý ■ --1 i Hlúum að eldri borgurum Ólöf skrifar. Er virkilega ekki hægt að gera betur við eldri borgara en nú er gert? Það er ekki laust við að maður spyrji í kjölfar frétta síðustu daga. Einmana gamall maður var látinn í tvær vikur heima hjá sér og fannst ekki fyrr en hann fór að lykta og annar maður lá hjálparlaus heima hjá sér í nokkra daga áður en hon- um var komið til bjargar. Það mætti halda að við byggjum í vanþró- uðu og sárafá- tæku ríki sem hefði ekki efni á að gera vel við borg- ara sína. En svo er nú aldeilis ekki. Sífellt heyrir maður stjórn- málamenn- ina tala um Lesendur góðæri og síðan henda fjölmiðlarn- ir framan í okkur einhverjum rann- sóknum sem eiga að sýna hvað sé gott að búa á Islandi. Hvernig er hægt að halda þessu fram þegar margt gamalt fólk hefur það eins skítt og þeir gera. Ég held að það ætti að kippa þessum stjórnmála- mönnum út úr þessum sykurhúð- aða heimi sínum inn í raunveru- leikann. Því raunveruleikinn er ekki eins fullkominn og þeir vilja af láta. Látum þá prófa að lifa á venjuleg- um ellilífeyri. Látum þá inn á her- bergi á Sólvangi með tveimur öðr- Rangt millinafn í umfjöllun vegna þess að tíu ár eru liðin frá snjóflóðinu á Haldið til haqa Flateyri var dóttir Lilju Ásgeirs- dóttur, sem lést í flóðinu, rang- nefnd. í blaðinu stóð að hún héti Kristrún Eva en hún heitir réttu nafni Kristrún Ragna. Er hún beð- in velvirðingar á þessum mistök- um þar sem þeir fá eina hillu fyrir sína einkamuni. Mér þætti gaman að sjá hve lengi þeir lifðu þetta af. Að mínu mati ætti það að vera forgangsverkefni stjórnmálamanna að kippa málefnum aldraðra í lið- inn. Þetta er fólk sem hefur stritað og erfiðað allt sitt líf til að eiga fyrir mat. Látum það ekki svelta í ellinni. Röng bensínstöð í frétt sem birtist í DV í gær var sagt að Héraðsdómur Reykja- Haldið til haqa víkur hefði dæmt Olís til að greiða fýrrverandi starfsmanni, Florije Fejzullah, 4,8 milljónir í bætur. Það var ekki rétt því það var Esso sem var dæmt til að greiða starfsmanninum bætur eftir að hún datt á rassinn úr stól. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Heimsveldið ísland íslenskir kaupsýslumenn hafa, eins og kunnugt er, verið í miklum fyrirtækjakaupum í Evrópu á síðustu misserum. Ekki er nóg með að við- skiptabankar íslands hafl verið að skjóta niður rótum um alla álfuna, heldur hafa flugfélög, verslanakeðjur og sjávarútvegsíyrirtæki einnig verið ofarlega á kauplistanum. Danir finna mjög fyrir þessari kaupgleði íslend- inga. Kaup íslendinga á Magasín, 111- um og Sterling-flugfélaginu hafa vakið athygli í landi Bauna, og þeir hlægja góðlátlega að því þegar sagt er að bráðum verði Danmörk orðin að íslenskri nýlendu, og að þannig nái íslendingar að hefna sín á alda- langri kúgun Dana á íslendingum. Munurinn er hins vegar sá að hin ís- lenska nýlendustelria byggist á frið- sömum samningum á hinum frjálsa markaði, en ekki á herskipaflota og ofbeldi. Islensk nýlendustefha hefur líka, ólíkt hinni dönsku frá fyrri tíð, í för með sér aukna velmegun þess hertekna, og bætt lífskjör. Peningar hafa tekið við byssum, og samningar hafa komið í stað ofbeldis. Alþjóða- væðing hefur tekið við heimsstyrj- öldum, peningaliturinn er orðinn mikilvægari en húðliturinn, við- skiptavitið er komið í stað herkænsk- unnar, og heimsvaldsstefnan byggist nú á kapítalisma og friðsömum samningum en ekki morðum og sós- íalisma. Þetta gera vonandi sem flestir sér grein fyrir. Hefnd fslendinga Danirfínna fyrirkaup- gleöi íslenskra viðskiptamanna. Vill efla virðingu fyrir eldri borgurum Jón Kristinn Óskarsson er ekki lítill maður, hvorki á líkama né sál. Hann telur sig heppinn að halda heilsu og þakkar það íþróttum sem hann stundaði af kappi, en hann lék handbolta í fleíri ár með FH."Já, ég er mikill FH-ingur og styð mitt lið með ráði og dáð. Það er nauð- synlegt að hreyfa sig reglulega og skiptir aldurinn engu máli í því," segir Jón sem hefur boðið sig fram til eins af efstu sætum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði fyrir sveitarstjómarkosningar næsta árs. „Það var skorað á mig af stjórn 60+ í Hafnarfirði. Ég hef líka gífur- legan áhuga á lífinu og tilverunni. Áhugi minn hefur í seinni tíð mið- ast að málefnum eldri borgara. Það er skammarlega lítill áhugi ríkis og sveitarfélaga á hagsmunum eldri borgara. Ég starfaði í yfir 40 ár hjá Símanum og fór á eftirlaun sextug- ur. Þegar 38% skattur er dreginn af eftirlaunum er lítið eftir fyrir flesta. Þegar ég borgaði í lífeyrissjóð greiddi ég skatt af því. Síðan er skattheimtan endurtekin núna. Þetta kalla ég glapræði. Eftirlauna- skattur í Svíþjóð er til dæmis bara 15% og þykir mönnum nóg um þar. Það verður að breyta þessu sem allra fyrst." Þrátt fýrir éldmóð sinn gegn skattheimtu stjómvalda er Jón „Eftirlaunaskattur i Svíþjóð er til dæmis bara 15% og þykir mönnum nóg um þar." glaður og ánægður með lífið. „Maður verður að hafa einhver markmið og halda huganum upp- teknum. Svo er bara málið að njóta lífsins," segir Jón Kristinn hlæj- andi. ^Jón Kristinn óskarssonf^dist í ingarinnar og stefnir á kjör (bæjarstjórn Hafnarfjarðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.