Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.2005, Qupperneq 30
30 FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2005 Lífíð DV f r # • m # í kvöld hefst íslenska kvikmyndahátíðin Októberbíófest. Þar er margt um dýrðir og mun meðal annars kvikmyndaleik- stjórinn Quentin Tarantino kíkja við. Það er um að gera að drífa sig á kvik- myndahátíð, þó að einni sé nýlokið, þá er alltaf gaman í bíó. Þetta eru kvik- myndirnar sem sýndar eru í kvöld. m * • Isteifur Þórhallsson Framkvæmtiaritjóri hátldarinnar. Drabet Kvikmynd- in Drabet eftir Per Fly er þriðja kvikmyndin í röð hans um meðaljón- anna. Fyrri kvikmyndir hans eru Bænken og Arven. Kvikmyndin fjaliar um Carsten sem er grunnskólakennari. Hann lifir rólegu og hálf leiðinlegu lífi með konunni sinni en á í ástar- sambandi við nemanda sinn. Nemandinn lendir svo í heilmikl- um vandræðum og Carsten ákveð- ur að skilja við leiðinlegt líf sitt og hjálpa heldur stúlkunnu. Myndin er sýnd í kvöld klukkan 17:40 og 22:00 í Háskólabíói. VocesInnocentes Er sannkölluð suðuramerísk stórmynd. Kvikmyndin er eftir leikstjórann Luis Mandoki og hefur hann áður gert kvikmynd- ir á borð við When aMan Loves a Woman, I'i ^Messagelna Bottle og Angel Eyes. Kvikmyndin gerist í E1 Salvador og fjallar um ungan dreng sem á yfir höfði sér að vera kallað- ur í herinn. Þar þarf hann að berj- ast við uppreisnarmenn og skæru- liða fyrir hönd ríkisstjórnarinnar, en það er eitthvað sem hann er alls ekki viss um hvort að sé rétt. Kvik- myndin er sýnd í Háskólabíói klukkan 17:45 og 22:30. Tim Burtonís Corpse Bride Tim Burton er snillingur. Þetta er nýjasta kvikmynd hans og minnir hún mikið á Marthröð á Jólanótt en hún er gerð í alveg í sama stíl. Það er engir aðrir en JohnnyDepp, Emily Watson og Helena Bonham Carter sem sjá um talsetningu og ætti það bara vera alveg nóg. Kvikmyndin er sýnd í Háskólabíói klukkan 20. Grizzly Man Grizzly Man er vægast sagt mjög merkileg heimildarmynd. Hún fjallar um Timoty Treadwell en hann var mikill útiverumaður og sérstaklega hændur af skógarbjömum. Hann tileinkaði þeim líf sitt en var á endanum drepinn og étinn af þeim. Grizzly Man er sýnd í Háskóla- bíói klukkan 20. Separate Lives Handritshöf- undurinn, leik- arinn og fram- leiðandinn Julian Fellows hefur fengið rosalega góða dóma fyrir kvikmynd sína Separate Lives en það er hennar fyrsta leikstjóraverk- efiii. Julian vann óskarsverðlaun fyrir handrit sitt að kvikmyndinni Gosford Park en henni var leikstýrt af engum öðrum en Robert Alt- man. í aðalhlutverkum em Emily Watson, Tom Wilkinson og Rupert Everett. Kvikmyndin er sýnd í Regnboganum í kvöld ldukkan 18. Kung Fu Hustle Kung Fu Hustle hefur vakið gríð- arlegaat- hygli. Eins ogsegirá heimasíðu Októberbíófest þá er hún sam- blanda af Jackie Chan, Buster Keaton, Quentin Tarantino, Bugs Bunny, grín, drama, hasar, bardag- ar og söngvar. Það ætti að segja allt sem segja þarf. Myndin er sýnd í Regnboganum klukkan 18. Crónicas Þessi mynd er ekki fyrir viökvæma. Hún er frá sömu fram- leiðendur og gerðu „Y Tu mamá también" og íjallar um morð- ingja og fjölmiðla. Kvikmyndin er framlag Ekvadors til Óskarsverð- launanna. Crónicas er sýnd í Regn- boganum klukkan 18. y of Love Þessi kvik- mynd fékk bæði mikla at- hygli og aðsókn á Kvikmyndahátíð- inni í Reykjavík. Kvik- myndin íjallar um tvær ólíkar stúlkur í Bretlandi og ástir sem takast á milli þeirra eitt sjóð- heitt sumar. Kvikmyndin er sýnd í Regnboganum klukkan 20. Lords of Dogtown Lords of Dogtown er eftir Cathrine Hardwicke. Kvik- myndin tjallar um þijá drengi sem gera lftið annað en að renna sér á hjólabrett- um. Það voru þeir sem komu þessari miklu hjóla- brettabylgju af stað sem náði meira að segja alla leið til íslands. En eins og svo oft áður þá er ekki hægt að blanda viðskiptum og vin- skap. Kvikmyndin er sýnd í kvöld klukkan 20 í Regnbog- anum. Adams Æbler AdamsÆbler er eftir Anders Thomas Jen- sen. Þarna er á ferðinni bráð- fyndin og skemmtileg grínmynd. Hún vakti mikla athygli á Kvikmyndahátíðinni í Reykjavík og fékk afbragðsdóma. Adams Æbler er snilldarræma. í aðalhlutverkum eru Ulruich Thomsen úr Festen, Mads Mikkel- sen úr Pusher myndunum og Niko- laj Lie Kaas úr Brothers. Kvikmynd- in er sýnd í Regnboganum klukkan 22. YES Yes er kvikmynd eftir Sally Pott- er og í henni leika meðal annars gömlu kempurnar Sam Neill og Joan Allen. Kvikmynd- in íjallar um eld- heitt ástarsam- band amerískr- ar konu við karla frá frá Miðaustur- löndum. Kvik- myndin deilir harkalega á trú- mál, stjórnmál og kynlíf. Kvikmyndin er sýnd í Regnboganum klukkan 22. Pusher II Pusher 2 er framhald á kvikmyndinni Pusher sem.kom út árið 1996. Kvik- myndin naut gíf- urlegra vinsælda en hún var talin líkja raun- verulega eftir lífi dópsala í Kaupmanna- höfn. Framhalds myndirnar gefa ekkert eftir og eru bæði spennandi, kó- mískar og blóð- ugar. j Quentin Tarantino ; Msetir á hátlöina I ! nóvember.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.